Fotbolti.net
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Meistaradeild kvenna - 1. umferð
Siauliai leikvangurinn í Litháen
Völlurinn ekki góður en veðrið er huggulegt
Gintra
Gintra
1 - 8
Breiðablik
Breiðablik
0 - 110' Tiffany Janea Mc Carty0 - 242' Agla María Albertsdóttir 0 - 343' Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir 0 - 449' Tiffany Janea Mc CartyMadison Gibson 50'1 - 41 - 555' Heiðdís Lillýardóttir1 - 664' Agla María Albertsdóttir 1 - 771' Agla María Albertsdóttir 1 - 876' Hildur Antonsdóttir
Dómari: Henrikke Nervik (Noregur)

SKÝRSLAN: Bakverðirnir fá martraðir - Blikar skrefi nær riðlakeppninni

Hvað réði úrslitum?

Blikar voru bara miklu betri, og eru mikla betra fótboltalið. Þær komu vel tilbúnar inn í leikinn og sýndu gæði sín. Frábær kafli undir lok fyrri hálfleiks kláraði þennan leik; það var rosalega sætt að fá tvö mörk með stuttu millibili þar.

Bestu leikmenn

1. Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)

Þrenna. Var alltaf hættuleg. Rosalega góð og mætti alveg fá meira hrós fyrir það sem hún gerir inn á fótboltavellinum.

2. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir (Breiðablik)

Hún og Agla María eru martröð fyrir bakverði.

Atvikið

Þriðja markið sem Áslaug Munda skoraði undir lok fyrri hálfleiks. Glæsilegt mark sem róaði taugar Blikar inn í seinni hálfleikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik fer áfram í aðra umferð forkeppni Meistaradeildarinnar. Það verður dregið á morgun í næstu umferð keppninnar. Blikar eru einu skrefi nær riðlakeppninni.

Vondur dagur

Bakverðir Gintra sofa ekki vel í nótt. Réðu ekkert við Öglu Maríu og Áslaugu Mundu.

Dómarinn - 8

Bara mjög vel dæmdur leikur, en hann var svo sem ekkert erfiður að dæma.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.