Fotbolti.net
Sverrir Örn Einarsson
Pepsi Max-deild karla
HS Orku völlurinn
Skýjað NA 4 m/s og hiti um 13 gráður
Keflavík
Keflavík
0 - 5
FH
FH
0 - 145' Baldur Logi Guðlaugsson 0 - 253' Jónatan Ingi Jónsson Ígnacio Heras Anglada 74'0 - 389' Jónatan Ingi Jónsson 0 - 490' Oliver Heiðarsson0 - 595' Jónatan Ingi Jónsson (víti)
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: FH slátraði Keflavík í síðari hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Gestirnir úr Krikanum voru heilt yfir bara mikið betri. Héldu upp tempói leiksins og þótt færin hafi látið standa á sér hertu þeir skrúfstykkið smátt og smátt þar til eitthvað gaf sig í Keflavíkurliðinu. Vissulega voru heimamenn manni færri í restina en vont að slökkva á sér í lokin og tapa 5-0 í stað þess að halda í 2-0

Bestu leikmenn

1. Jóntan Ingi Jónsson

Þrenna og tvær stoðsendingar teljast nokkuð gott en hefði allt eins geta gert fleiri.

2. Logi Hrafn Róbertsson

Fór hægt af stað og var ekki 100% í fyrri hálfleik. Bætti það upp með því að vera frábær í þeim síðari.

Atvikið

Rauða spjaldið á Nacho eftir að hann á að hafa slegið í hnakka Jóhanns Ægis Arnarssonar var sérstakt í framkvæmd. Dómarar leiksins tóku sér góðan tíma að fara yfir málin og báði Jóhann Ævar meðal annars yfirgefa völlinn eftir að hann fékk aðhlynningu en það á hann ekki að þurfa að gera ef spjald er gefið fyrir brot. Eftir töluverðar rökræður komst þó niðurstaða í málið og Nacho fékk rautt.

Hvað þýða úrslitin?

FH siglir lygnan sjó í deildinni en stefnir líklega á að ná 4.sæti deildarinnar. Keflavík er í stórhættu á að sogast af fullri alvöru í fallbaráttuna og þurfa að sækja sigur.

Vondur dagur

Væri auðvelt að velja Keflavíkurliðið í heild hér en þessi vafasami heiður fellur til Nacho Heras í þetta sinn. Reynslumikill leikmaður sem eflaust ætlaði sér ekkert illt en lét grípa sig fyrir að slæma hendi í hnakka andstæðings sem erfitt er að verja.

Magnús Þór fyrirliði Keflavíkur þarf að fara semja við betri lukkudísir en hann sneri aftur í lið Keflavíkur í dag eftir höfuðmeiðsli en fór af velli af sömu ástæðu eftir að hafa skollið saman við Guðmann Þórisson sem einnig þurfti að fara af velli

Dómarinn - 6,5

Leikurinn var eflaust ekki sá auðveldasti að dæma en líklega voru stóru atriðin rétt. Maður setur samt spurningamerki við framkvæmdina í rauða spjaldi Nacho og tímann sem ákvörðunin tók.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.