SKÝRSLAN: Þorsteinn Már bjargar bitlausu KR liði
Hvað réði úrslitum?
Góð fyrirgjöf frjá Halli beint á kollinn á Þorsteini. Annars virtist boltinn ætla að neita að fara í markið. Keflvíkingar sköpuðu fín færi úr skyndisóknum en náðu ekki að skora og KR-ingar voru mjög bitlausir þótt þeir hafi verið töluvert meira með boltann.
Bestu leikmenn
1. Þorsteinn Már Ragnarsson (KR)
Mörk breyta leikjum og í leik þar sem boltinn vildi ekki inn þá er eini maðurinn sem gerði það sá sem á þennan heiður skilið. Þorsteinn var auk þess frekar líflegur eftir að hann kom inn á.
2. Nacho Heras (Keflavík)
Það tókst næstum því að halda hreinu og Nacho var mjög stór partur af því. Átti mjög góðan leik í vörninni.
Atvikið
Mögulega rauða spjaldið. Beitir Ólafsson hleypur út úr markinu og strauar niður sóknarmann Keflvíkinga þar sem opið markið er bakvið hann. Margir hefðu gefið rautt spjald þarna en þetta var svo sem töluvert út í kant sem er eina afsökun dómarans.
Hvað þýða úrslitin?
KR sækir dýrmætan sigur og heldur sér í efri hlutanum með 10 stig í 6. sæti.
Keflavík dettur niður í 10. sæti með aðeins 4 stig eftir 7 leiki.
Vondur dagur
Sóknarlína KR. Atli, Kjartan og Stefán fengu nóg af færum og nóg af möguleikum til að skapa færi en þeir voru algjörlega bitlausir. Ef að KR ætlar sér eitthvað í þessari deild verða þessir menn að spila betur.
Dómarinn - 6
Pétur og hans teymi eiga alveg fínan leik en mér finnst brotið hjá Beiti vera rautt spjald og því fer einkunin frekar lengra niður.




