Fotbolti.net
Besta deildin
Ingi Snær Karlsson
Besta-deild kvenna
Kópavogsvöllur
Breiðablik
Breiðablik
1 - 0
Selfoss
Selfoss
Hildur Antonsdóttir 29'1 - 0
Dómari: Arnar Ingi Ingvarsson
Myndir: Hrefna Morthens

SKÝRSLAN: Blikar færast upp töfluna

Hvað réði úrslitum?

Blikar héldu betur í boltann og voru með góða pressu. Almennt meiri gæði í Breiðablik. Selfoss átti erfitt með að skapa alvöru færi.

Bestu leikmenn

1. Natasha Moraa Anasi

Breiðablik spilaði góðan varnarleik og Natasha á stóran þátt í því. Mjög öflug í loftinu og erfitt að komast framhjá henni.

2. Áslaug Munda Gunnlaugsdóttir

Var kraftmikil í vinstri bakverði og var á fleygiferð upp völlinn nánast allan leikinn.

Atvikið

Ekki mikið um sérstök atvik í leiknum. Markið var vel tekið hjá Hildi Antons.

Hvað þýða úrslitin?

Breiðablik færist upp í fjórða sætið með 15 stig og Selfoss fellur niður í það fimmta með 15 stig einnig en verri markatölu.

Vondur dagur

Alexandra Jóhanns átti mikið inni í dag miðað við hvað hún getur og þarf að sanna að hún sé besti leikmaðurinn í þessari deild.

Dómarinn - 8

Fínasta dómgæsla
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.