Fotbolti.net
Besta deildin
@BaldvinBorgarsBaldvin Már Borgarsson
Baldvin Már Borgarsson
Besta-deild kvenna
Meistaravellir
Hlýtt, skýjað og lítill sem enginn vindur, toppaðstæður!
KR
KR
1 - 3
Þróttur R.
Þróttur R.
Hildur Lilja Ágústsdóttir 17'1 - 01 - 161' Katla Tryggvadóttir1 - 278' Katla Tryggvadóttir (víti)1 - 381' Katla Tryggvadóttir
Dómari: Twana Khalid Ahmed
Myndir: Fótbolti.net - Eyjólfur Garðarsson

SKÝRSLAN: Þróttarar vöknuðu í seinni hálfleik

Hvað réði úrslitum?

Þetta var leikur tveggja hálfleikja þar sem KR-stúlkur voru mun betri í fyrri hálfleik en Þróttara-stúlkur betri í þeim seinni. Þróttur hinsvegar skorar þrjú mörk í leiknum en KR bara eitt.

Bestu leikmenn

1. Katla Tryggvadóttir (Þróttur)

Einfalt val eftir að hafa skorað þrennu, gríðarlega kraftmikil allan leikinn en kom sér í réttar stöður í seinni hálfleik og skoraði góð mörk.

2. Murphy Agnew (Þróttur)

Murphy fann sig gríðarlega vel í seinni hálfleik, náði að nýta hraða sinn talsvert betur og var ógnandi, bjó til færi fyrir liðsfélagana ásamt því að koma sér sjálf í færi án þess þó að skora. Má til með að nefna Hildi Lilju úr KR hér líka, skoraði mark KR og var gríðarlega sterk varnarlega, stoppaði margar sóknir Þróttara.

Atvikið

Vítið sem Þróttur fær, vendipunktur leiksins þar sem Þróttur kemst loksins yfir og allur vindur barinn úr KR-stúlkum. Frábærlega gert hjá Murphy en ég verð að setja risastórt spuringarmerki við dóminn, mér fannst þetta ekki vera víti.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttur heldur áfram að blanda sér í toppbaráttuna en KR situr enn í botnsætinu.

Vondur dagur

Engin knattspyrnuleg frammistaða sem á heima hér enda flottur leikur hjá báðum liðum, en Ísabella Sara þarf að yfirgefa völlinn eftir um 13 mínútur vegna meiðsla, það er ótrúlega leiðinlegt fyrir hana eftir samstuð, vonandi ekkert alvarlegt.

Dómarinn - 3

Nokkrir furðulegir dómar, beitti hagnaðarreglu fyrir KR sem hagnaðist þeim nákvæmlega ekkert, dæmdi tvisvar í röð aukaspyrnu í hornspyrnu hjá sitthvoru liðinu nánast áður en spyrnan var tekin og ekkert bersýnilegt að frétta og svo verð ég að lasta þennan vítaspyrnudóm sem kostaði ansi mikið verður að segjast.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.