Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetEyþór Daði Kjartansson
Besta-deild kvenna
Hásteinsvöllur
ÍBV
ÍBV
3 - 2
Keflavík
Keflavík
0 - 113' Vigdís Lilja KristjánsdóttirSandra Voitane 24'1 - 1Olga Sevcova 31'2 - 12 - 246' Ana Paula Santos SilvaKristín Erna Sigurlásdóttir 55'3 - 2
Dómari: Atli Haukur Arnarsson

SKÝRSLAN: ÍBV vann Keflavík í hörkuleik í Vestmannaeyjum.

Hvað réði úrslitum?

ÍBV gerðu 2 risamistök en voru betra liðið í leiknum í dag. Þetta var nokkuð jafn leikur í fyrri hálfleik en það hjálpaði auðvitað ÍBV að vera yfir í hálfleik og koma síðan út í seinni hálfleik með vind í bakið.

Bestu leikmenn

1. Olga Sevcova

Hún var bara lang best í dag eins og oft áður. Olga er klárlega að stimpla sig inn sem einn af betri leikmönnum deildarinnar. Hún og Sandra voru mjög góðar á köntunum hjá ÍBV í dag.

2. Vigdís Lilja Kristjánsdóttir

Fannst hún vera best í Keflavíkurliðinu og kemur mér rosalega á óvart að hún sé ekki að fá tækifæri með Breiðablik. Skorar og leggur upp og var alltaf að ógna vörn eyjakvenna. Hrikalega spennandi leikmaður.

Atvikið

Bæði mörk Keflavíkur voru stór mistök en annað markið kom strax í byrjun seinni hálfleiks og hefði vel getað breytt leiknum meira en það gerði í raun og veru.

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV eru nú taplausar í 4 síðustu leikjum í deildinni og eru komnar með 14 stig, bara 2 stigum frá 2. sæti. Keflavík er hins vegar bara búnar að sækja 1 stig í síðustu 6 deildarleikjum og eru dottnar út úr bikarnum til að bæta gráu ofan á svart. Þær eru samt með 7 stig eftir góða byrjun á deildinni og eru 4 stigum frá fallsæti.

Vondur dagur

Auðvitað eru þetta hræðileg mistök hjá Rögnu Söru í fyrsta markinu og hjá Guðný í öðru markinu en fyrir utan það þá áttu þær báðar nokkuð góða leiki þannig erfitt að setja þetta á þær. Dómaratríóið má líka fá tilnefningu, en ekki fyrir frammistöðuna í leiknum heldur fyrir það að hafa misst af Herjólfi í dag og þurftu að láta sækja sig á RibSafari bát. Það er hrikalega lélegt að geta ekki verið á réttum tíma en vonum að þau hafi góða ástæðu fyrir þessari skitu.

Dómarinn - 4

Falleinkunn fyrir að hafa misst af bátnum. En þau áttu fínan leik þrátt fyrir það.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.