SKÝRSLAN: Kórdrengir sigruðu Gróttu í bragðdaufum leik
Hvað réði úrslitum?
Kórdrengir skora snemma og ná bara að halda út. Grótta voru mikið með boltann en sköpuðu lítið og það var það sem skildu liðin að.
Bestu leikmenn
1. Axel Freyr Harðarson
Kominn aftur í Kórdrengi. Þvílík gæði sem hann hefur og á ekki heima í þessari deild. Var hættulegur á kantinum en það slökknaðist aðeins á honum undir lok leiks þegar hann var færður í vinstri bakvörð.
2. Luke Rae
Var hættulegasti maður Gróttu í dag. Með mikla snerpu á kantinum.
Atvikið
Eitt mark í leiknum og þá liggur beinast við að skrá það sem atvik leiksins. Ekki mikið annað sem gékk á.
Hvað þýða úrslitin?
Liðin í kring náðu ekki að nýta sér tap Gróttu og þeir haldast í 2. sæti. Kórdrengir fara upp í 7. sæti þar sem það eru bara þrjú stig í Gróttu.
Vondur dagur
Sóknarlína Gróttu voru ekki á sínum besta degi í dag, meðal annars Kjartan Kári sem er markahæstur í deildinni. Ég man bara ekki eftir einu skoti á markið hjá Gróttu.
Dómarinn - 9
Bara flottur í dag.


