Fotbolti.net
@fotboltinetJón Ólafur Eiríksson
Lengjudeild karla
Olísvöllurinn
Andvari, úði, hiti 10 gráður
Vestri
Vestri
2 - 4
KV
KV
0 - 112' Björn Axel Guðjónsson0 - 241' Björn Axel Guðjónsson0 - 353' Grímur Ingi Jakobsson0 - 461' Grímur Ingi JakobssonDeniz Yaldir 63'1 - 4Pétur Bjarnason 67'2 - 4
Dómari: Helgi Mikael Jónasson

SKÝRSLAN: KV fór illa með Vestra

Hvað réði úrslitum?

Vestra menn voru arfaslakir í dag og KV gerðu sitt vel. Héldu bolta vel, pressuðu á réttum stöðum og vissu hvernig átti að sækja á þessa 5 manna vörn Vestra.

Bestu leikmenn

1. Björn Axel Guðjónsson

Var stórhættulegur allan leikinn. Vörn heimamanna réð ekkert við hann og hann var síógnandi með vilja sínum og krafti.

2. Grímur Ingi Jakobsson

Spilaði boltanum vel, vel tímasett hlaup og skoraði tvö góð mörk til að gera út um leikinn.

Atvikið

Rautt spjald á Vlademir Tufegdzic. Hafði engin áhrif á úrslit leiksins en Tufa mótmælti mikið þar sem varnarmaður KV kom neðarlega til þess að skalla boltann. Helgi Mikael var viss í sinni sök og rak hann beint útaf.

Hvað þýða úrslitin?

Vestri er að sýna að þeir hafa í raun ekkert erindi í toppbaráttu í sumar. KV fylgja eftir sigri Þórs í gær og halda fallbaráttunni galopinni.

Vondur dagur

Ef ég ætti að taka fyrir leikmann í Vestra sem átti vondan dag gæti ég skrifað fram á nótt. Ég man hreinlega ekki eftir að hafa séð jafn slaka frammistöðu á heimavelli, en reyndar hef ég slakt minni og enn verri sjón.

Dómarinn - 8

Fannst hann flottur. Nálægt atvikum og stýrði leiknum vel. Nokkur vafaatriði sem ég get ekki fullyrt að hafi verið rangur dómur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.