Fotbolti.net
@haraldur_ornHaraldur Örn Haraldsson
Haraldur Örn Haraldsson
Lengjudeild karla
Würth völlurinn
Fylkir
Fylkir
2 - 2
Afturelding
Afturelding
Mathias Laursen Christensen 14'1 - 0Orri Sveinn Stefánsson 21'2 - 02 - 150' Elmar Kári Enesson Cogic2 - 293' Aron Elí Sævarsson (víti)
Dómari: Pétur Guðmundsson
Myndir: Raggi Óla

SKÝRSLAN: Dramatík á lokamínútu skilar stigi á Fylki og Aftureldingu

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið mættu til að vinna leikinn en hvorugum tókst það. Það var mikið fjör í leiknum þar sem það var sótt markana á milli á köflum. Klaufagangur í vörn og einstaklingsgæði í sókn er það sem réði úrslitum í dag.

Bestu leikmenn

1. Elmar Kári Enesson Cogic (Afturelding)

Elmar var potturinn og pannan í sóknarleik Aftureldingar í dag. Hefði líkast til getað skorað 3 mörk og lagt upp 2 ef heppnin hefði verið með honum í kvöld.

2. Ólafur Kristófer Helgason (Fylkir)

Ólafur þurfti nokkrum sinnum að taka á honum stóra sínum og gerði það vel. Ef ekki hefði verið fyrir hann þá hefði staðan í hálfleik ekki verið 2-0 Fylkir.

Atvikið

Fyrsta markið sem Fylkir skorar er alveg grátlega klaufalegt. Það er alveg gott og blessað að spila sig úr pressu en það verður líka að vera skilningur á því þegar maður hefur ekki möguleika á sendingu og þarf að setja boltan langt. Það klikkaði í dag hjá gestunum og því gáfu þeir Fylki fyrsta markið.

Hvað þýða úrslitin?

Fylkir fer upp í 3. sætið með 15 stig eftir 9 leiki og eru 3 stigum á eftir Selfoss sem er í fyrsta sæti. Afturelding heldur sér í 9. sæti og eru nú með 10 stig eftir 9 leiki.

Vondur dagur

Varnarleikur Aftureldingar var á köflum mjög klaufalegur. Það virtist oft vera eitthvað samskiptaleysi og þá sérstaklega milli hafsentana tveggja og markvarðar. Fylkir hefði jafnvel getað skorað fleiri mörk eftir varnarmistök gestana en þeir fóru bara illa með það.

Dómarinn - 7

Pétur og hans teymi áttu bara fínan leik. Var ekkert að spjalda eða stoppa leikinn út af einhverju tilgangslausu. Vítadómurinn var réttur.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.