Fotbolti.net
@sarakristinvSara Kristín Víðisdóttir
Lengjudeild kvenna
Kórinn
HK
HK
0 - 0
Fylkir
Fylkir
Dómari: Olgeir Halldórsson

SKÝRSLAN: Bragðdaufur leikur í góða veðrinu í Kórnum

Hvað réði úrslitum?

Bæði lið náðu ekki að skapa mikið af færum . HK átti fínar sóknir en náðu ekki að binda endahnútinn á þær. Fylkir átt fleiri skyndisóknir og alveg eins og HK þá náðu þær ekki að skapa almennileg færi úr þeim. Þau fáu færi sem liðin fengu nýttu þau síðan ekki.

Bestu leikmenn

1. Kristín Anítudóttir Mcmillan

Vann alla bolta sem Fylkir reyndi að koma inn fyrir vörnina

2. Isabella Eva Aradóttir

Skilaði sínu mjög vel inni á miðjunni

Atvikið

HK vildi fá víti á 80, mínútu sem hefði breytt úrslitum leiksins og þær höfðu eitthvað til síns máls. Síðan er alveg hægt að nefna lokaflautið hjá Olgeiri þegar Fylkir voru að sleppa í gegn

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin í dag þýða að Fylkir er komið upp í 7. sæti og á leik til góða en HK situr ennþá í 3. sæti

Vondur dagur

Sóknarleikur beggja liða var slappur. Svo að ég segi að sóknarmenn beggja liða hafi átt vondan dag. Liðin áttu sín móment sem nánast aldrei varð neitt úr. Frekar bragðdaufur leikur heilt yfir.

Dómarinn - 5

Of mörg vafaatriði á báða bóga
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.