SKÝRSLAN: Endurreisn FH hafin!
Hvað réði úrslitum?
FH byrjuðu af krafti strax frá fyrstu mínútu og náðu snemma marki sem létti fyrir og náðu svo að drepa leikinn snemma í síðari hálfleik. Keflavík voru ekki á deginum sínum í dag.
Bestu leikmenn
1. Úlfur Ágúst Björnsson
Var hreint frábær í dag. Skoraði tvö og var Keflvíkingum mjög erfiður.
2. Ólafur Guðmundsson
Skoraði markið sem braut ísinn og var mjög ógnandi fram á við. Fer útaf í hálfleik líklega vegna meiðsla en var flottur fram að því
Atvikið
Rauða spjaldið í upphafi leiks setur óneitanlega smá blett á leikinn og riðlar öllu skipurlagi Keflvíkinga.
Hvað þýða úrslitin?
FH endar umferðina ekki í fallsæti og halda í 10.sætið en klár merki um bætingar og ef þeir spila svona það sem eftir lifir móts þá eru þeir ekki að fara lenda í neinum frekari vandræðum.
Keflavík misstígur sig í baráttu sinni um sæti í top 6.
Vondur dagur
Kian Williams fær þetta fyrir sínar 6 mínútur. Er rekinn útaf í upphafi leiks og hefur sennilega séð betri daga.
Dómarinn - 6
Stórt atvik í upphafi leiks sem hefur skiptar skoðanir en sennilega er þetta réttur dómur þetta rauða spjald. Hafði fín tök á leiknum.




