Fotbolti.net
Besta deildin
@SEinarssonSverrir Örn Einarsson
Besta-deild karla
Víkingsvöllur
Logn, skýjað og smá úði. Gerist ekki betra.
Víkingur R.
Víkingur R.
2 - 2
Valur
Valur
Helgi Guðjónsson 26'1 - 0Kyle Douglas Mc Lagan 33'2 - 02 - 139' Tryggvi Hrafn Haraldsson2 - 257' Peter Oliver Ekroth (sjm)
Dómari: Ívar Orri Kristjánsson

SKÝRSLAN: Fjörugt jafntefli í Fossvogi

Hvað réði úrslitum?

Færanýting liðanna. Bæði lið misnotuðu þó nokkur dauðafæri í leiknum hvort heldur sem það var tréverkið eða markmenn liðanna sem sem voru að flækjast fyrir. Ef leikurinn er skoðaður sem heild er sennilega hægt að segja að úrslitin séu sanngjörn.

Bestu leikmenn

1. Frederik Schram

Bjargaði nokkrum sinnum á ögurstundu leiksins og þar með talið á lokaandartökum hans. Sé hann ekki fara úr markinu hjá Val á næstunni.

2. Helgi Guðjónsson

Skoraði gott mark og var oft á tíðum að búa til opnanir fyrir félaga sína. Á öðrum degi hefði það skilað fleiri mörkum en dagurinn var bara ekki Víkinga.

Atvikið

Varsla Frederik Schram á lokaandartökum leiksins þegar Sigurður Steinar Björnsson var að hlaða í Hollywood endi með því að táa boltann inn af markteig með síðustu spyrnu leiksins sagði Frederik stopp og varði boltann með glæsibrag og tryggði liði sínu eitt stig.

Hvað þýða úrslitin?

Innbyrðisstaða Víkinga og Vals breytist ekki í 3-4 sæti deildarinnar. Víkingar hinsvegar dragast aftur úr Blikum og það sem meira er þurfa að treysta á að KA tapi stigum til að taka annað sætið.

Vondur dagur

Hann spilaði alls ekki illa svo það komi skýrt fram og var ef eitthvað er einn besti maður vallarins þegar kom að því að koma sér í færi. En færanýtingin fór með kvöldið hjá Daniel Djuric fyrir mér og er hann eflaust manna svekktastur að hafa ekki skorað því færin fékk hann svo sannarlega.

Dómarinn - 6.5

Þessi reitur er alltaf óþægilegur þegar maður er stuðningsmaður annars liðsins. Það eru nokkrir dómar hér og þar sem eflaust má færa rök fyrir því að hafi verið rangir til að mynda aukaspyrna Vals sem Tryggvi skorar úr. Málið með Ívar er samt að hann selur manni á vellinum að hann sé að taka réttar ákvarðanir og maður treystir þeim. Heilt yfir bara ágætur dagur í hröðum og skemmtilegum leik.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.