SKÝRSLAN: ÍA svo gott sem fallið eftir jafntefli í Breiðholti
Hvað réði úrslitum?
Það var mikil barátta í leiknum . Bæði lið fóru illa með góð færi og urðu því að gera sér sitthvort stigið að góðu. Stig sem gerir lítið fyrir bæði lið.
Bestu leikmenn
1. Emil Berger
Mark og stoðsending í dag. Var nálægt því að bæta við mörkum
2. Steinar Þorsteinsson
Tvær stoðsendingar
Atvikið
Lokaflautið. Það mátti greina vonbrigði í andlitum allra leikmanna beggja liða enda staðan ansi slæm hjá báðum liðum
Hvað þýða úrslitin?
ÍA er svo gott sem fallið eftir úrslit dagsins enda getur liðið bara náð FH að stigum og markatalan mikið lakari. Leiknismenn sömuleiðis í vondum málum enda fjórum stigum frá öruggu sæti og 6 stig eftir í pottinum.
Vondur dagur
Vondur dagur fyrir ÍA enda liðið að kveðja efstu deild. ÍA með sína sögu á einfaldlega að gera þá kröfu að spila í deild þeirra bestu. Sömuleiðis slæmt fyrir Leikni að fá á sig mark í tvígang eftir að hafa náð forystunni
Dómarinn - 8
Bara fínt hjá Erlendi í dag. Hef ekkert út á hans störf að setja.




