SKÝRSLAN: Vindurinn feykti þremur stigum í Kaplakrika
Hvað réði úrslitum?
Þó ég hafi leikið mér með veðurfar í fyrirsögn þá spilaði vindurinn og aðstæður yfir höfuð aðeins lítið hlutverk í sigri FH. Liðið spilaði heilt yfir ágætlega og gekk til að mynda mun betur að skapa eitthvað gegn vindinum en Keflvíkingum þó að Keflavík hafi vissulega komist yfir og fengið betri færi í fyrri hálfleik. Gestirnir gengu svo á lagið í seinni hálfleik og hleyptu heimamönnum hvorki lönd né strönd auk þess að setja þunga pressu á varnarlínu þeirra.
Bestu leikmenn
1. Oliver Heiðarsson
Olli Rúnari Þór miklum hausverk og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Gríðarlegur hraði hans olli miklum vandræðum og áttu varnarmenn í miklu basli með hann.
2. Björn Daníel Sverrisson
Á góðum degi getur hann galdrað með fótunum og hann gerði það á köflum í dag. Frábær stoðsending úr aukaspyrnu auk þess að hann skapaði margar hættulegar stöður á vellinum með góðum sendingum.
Atvikið
Kaflinn á milli 55. og 57. mínútu þegar FH gerði tvö góð mörk og sneri leiknum sér í vil. Gríðarlega vel gert og sýndi liðið mikinn karakter að sigla þremur stigum heim
Hvað þýða úrslitin?
Fyrir heimamenn í Keflavík þýða þau fátt annað en að efsta sæti riðilsins er ekki öruggt. FH hins vegar er með örlögin í eigin höndum með fjögurra stiga forskot á Leikni og getur með sigri tryggt sæti sitt í deildinni í næstu umferð.
Vondur dagur
Auðvelt að benda á Sindra Kristinn sem hélt ekki skoti frá Kristni Frey heldur missti boltann fyrir fætur Úlfs í sigurmarki FH. En leikmenn gera mistök og það fylgir leiknum. Annars langar mig að tilnefna flesta sem að leiknum komu og voru útivið í roki og skítakulda. Eflaust þó nokkrir bollar af kakó verið gerðir í Keflavík og Hafnarfirði að leik loknum til að ná smá hita í kroppinn.
Dómarinn - 4
Nú hef ég ekki beint mikið vit á dómgæslu almennt en þegar bæði lið eru á löngum köflum ósátt við þín störf er eitthvað ekki eins og það á að vera. Það sem truflar mig með Einar eftir leik dagsins og reyndar áður líka er samræmið. Augljósum brotum (að mínu mati) á báða bóga sleppt en önnur sem orka meira tvímælis dæmd umsvifalaust. Einar er pottþétt vænsti piltur og frábær dómari á sínum degi en sá dagur mætti bara vera mun oftar.



