Fotbolti.net
Besta deildin
Kjartan Leifur Sigurðsson
Kjartan Leifur Sigurðsson
Besta-deild karla - Neðri hluti
Norðurálsvöllurinn
ÍA
ÍA
3 - 2
ÍBV
ÍBV
0 - 14' Felix Örn Friðriksson 0 - 250' Breki Ómarsson Viktor Jónsson 72'1 - 2Ármann Ingi Finnbogason 74'2 - 2Hlynur Sævar Jónsson 90'3 - 2
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson

SKÝRSLAN: Skagamenn sýndu klærnar

Hvað réði úrslitum?

Á 70. mínútu benti ekkert til þess að Skagamenn gætu komist inn í leikinn. Hinsvegar voru skiptingar Skagamanna mjög svo góðar á meðan skiptingar Eyjamanna voru ekki jafn góðar og riðluðu gott flæði liðsins. Þetta dæmigerða Skagabrjálæði náði svo sigurmarkinu yfir línuna undir lokin.

Bestu leikmenn

1. VIktor Jónsson

Mjög flottur framherji sem vinnur flest alla skallabolta og gaman að sjá þennan hæfileikaríka leikmann blómstra á ný eftir meiðsli. Mark og tvær stoðsendingar í dag

2. Ármann Ingi Finnbogason

Breytti algjörlega leiknum með innkomu sinni. Flottur leikmaður sem er óhræddur að keyra á menn og láta vaða á markið. Skoraði einnig stórglæsilegt mark. Gaman að sjá unga leikmenn blómsta í þessari deild.

Atvikið

Sigurmarkið í lokin var frábær endahnútur af þessari glæsilegu endurkomu ÍA. Gott móment fyrir Skagamenn til þess að fagna loksins

Hvað þýða úrslitin?

ÍBV tapar sínum fyrsta leik í neðra umspilinu og missa því af efsta sætinu sem þeir gerðu sér líklega vonir til þess að ná. Skagamenn lifa til að sjá annan dag en staðan er þó ennþá sú að möguleikarnir til þess að halda sér uppi eru gríðarlega litlir.

Vondur dagur

Skiptingar Hermanns Hreiðarssonar voru ekki góðar eins og hann benti sjálfur á í viðtali eftir leik. Hann fær þennan titil í dag.

Dómarinn - 6

Sigurður var heilt yfir fínn. Í lok leiks fannst mér hann þó eiga að benda á punktinn þegar Sigurður Hrannar féll til jarðar.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.