SKÝRSLAN: Leiknismenn fallnir á heimavelli í Árbæ eftir niðurlægingu frá Keflavík
Hvað réði úrslitum?
Keflavík voru einfaldlega miklu betra lið. Þeir spiluðu án pressu og á tímabilum voru þeir einfaldlega að leika sér að Leiknismönnum sem hurfu inn í skelina.
Bestu leikmenn
1. Adam Ægir Pálsson (Keflavík)
Adam skorar 2 og lagði upp 1. Hann var frábær sóknarlega í dag og fékk nokkur færi til að klára þrennuna en því miður fyrir það tókst það ekki.
2. Dagur Ingi Valsson (Keflavík)
Það er erfitt að velja í þennan dálk þar sem það voru margir sem áttu góðan leik. Dagur kom hinsvegar inn á með miklum krafti og skoraði 2 mörk. Góð innkoma.
Atvikið
Frans brýtur af sér frekar harkalega á 60. mínútu og var þegar á gulu spjaldi. Hann hefði léttilega getað fengið annað gult og þar með rautt þarna og þá hefði leikurinn líkast til litið auðruvísi út þar sem staðan var 3-1 á þessum tímapunkti.
Hvað þýða úrslitin?
Leiknir eru fallnir niður í Lengjudeild.
Keflavík eru svo gott sem búnir að tryggja sér 7. sætið þar sem Framarar geta bara orðir jafnir þeim að stigum en eru með mun verri markatölu.
Keflavík eru svo gott sem búnir að tryggja sér 7. sætið þar sem Framarar geta bara orðir jafnir þeim að stigum en eru með mun verri markatölu.
Vondur dagur
Vörn Leiknis sem heild frá fremsta manni til þess síðasta var algjör hörmung. Keflavík átti góðan leik en Leiknir gerði þeim oft lífið létt þar sem þeir litu stundum út fyrir að þeir væru búnir að gefast upp.
Dómarinn - 5
Að mínu mati á Frans að fá rautt spjald í þessum leik svo er annað atvik sem er spurningamerki um rautt líka en ég er ekki viss um það sjálfur. Annars er annað nokkuð vel dæmt.




