Leik lokið!
Twana Ahmed flautar til leiksloka
Víkingar vinna hér þriðju deildarlið Magna frá Grenivík 6-2 og Víkingar verða í pottinum þegar dregið verður í 16-liða úrslitin.
Takk fyrir mig í dag.
84. mín
InnTómas Ernir Guðmundsson
ÚtBirgir Valur Ágústsson
84. mín
InnÞorsteinn Ágúst Jónsson
ÚtKristinn Þór Rósbergsson
83. mín
InnDavíð Örn Atlason
ÚtSölvi Stefánsson
80. mín
Birkir Hauksson brýtur á Sveini Gísla og Víkingar fá aukaspyrnu á góðum stað fyrir utan teig.
Arnór Borg með aukaspyrnuna en boltinn yfir.
73. mín
MAAARK
Arnór Borg Guðjohnsen (stoðsending: Helgi Guðjónsson)
Helgi Guðjónsson fær nægan tíma úti við endralínu hægra megin og lyftir boltanum á Arnór Borg sem skallar boltann í netið. Magnamenn orðnir bensínlausir sýnist mér.70. mín
InnGunnar Berg Stefánsson
ÚtViktor Már Heiðarsson
70. mín
Góð sókn hjá Magna
Birgir Valur gerir vel og kemur boltanum á Birki sem finnur Viktor Má fyrir utan sem reynir skot en boltinn beint á Þórð Ingason.
68. mín
Gult spjald
Gísli Gottskálk Þórðarson
67. mín
InnÖrvar Óðinsson
ÚtOttó Björn Óðinsson
67. mín
InnBirkir Már Hauksson
ÚtHalldór Mar Einarsson
65. mín
InnBirnir Snær Ingason
ÚtDanijel Dejan Djuric
65. mín
InnHalldór Smári Sigurðsson
ÚtLogi Tómasson
63. mín
Game over?
Sveinn Gísli Þorkelsson (stoðsending: Helgi Guðjónsson)
Logi Tómasson með frábæran bolta inn á Helga Guðjóns sem sér hlaup frá Sveini Gísla og leggur boltann út á Svein sem kláraði frábærlega.59. mín
MAAAARK!
Helgi Guðjónsson
Helgi Guðjónsson fær boltann inn fyrir og klárar vel í fjær hornið.57. mín
Arnór Borg setur boltann rétt yfir!
Sveinn Gísli kemur aftur með frábæra fyrirgjöf inn á teiginn á Arnór Borg sem skóflar boltanum rétt yfir!
53. mín
Sveinn Gísli fær boltann upp vænginn vinstra megin og kemur með góða fyrirgjöf og boltinn á hausinn á Arnóri Borg sem skallar boltann framhjá.
49. mín
MAARK!
Viktor Már Heiðarsson
Viktor Már fær boltann við vítateig Víkinga og klárar snyrtilega framhjá Þórði Ingasyni! Þetta er leikur!46. mín
Seinni hálfleikurinn er hafinn
45. mín
Hálfleikur
Víkingar leiða inn í hálfleikinn 3-1.
41. mín
MAAAARK!
Danijel Dejan Djuric
Fær boltann inn á teig Magna og setur boltann í netið40. mín
Magnaðir Magnamenn að skora!
Páll Veigar Ingvason (stoðsending: Halldór Mar Einarsson)
Frábær sókn hjá Magna. Magni vinna boltann og koma boltanum út til hægri á Halldór Mar sem kemur með geggjaðan bolta fyrir á Palla sem kláraði í autt netið! Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga gerði lítið annað en að klappa eftir þessa frábæru sókn hjá Magna.38. mín
MAAARK
Guðmundur Óli Steingrímsson (sjm)
Arnór Borg fær boltann út til hægri og keyrir að endarlínunni áður en hann setur boltann inn á teiginn og boltinn af Guðmundi Óla og í netið. 2-037. mín
Víkingar koma boltanum í netið en rangstæða dæmd
Helgi Guðjónson skilur ekkert í þessari ákvörðun hjá dómarateyminu.
33. mín
Djuric með aukaspyrnu fyrir utan teig Magna en boltinn fer framhjá.
28. mín
Sveinn Gísli fær boltann út til hægri og kemur með mjög góða sendingu inn á Helga Guðjóns sem nær ekki að setja boltann í netið.
27. mín
Gísli Gottskálk með skot rétt framhjá
Ekkert að þessari tilraun frá Gísla.
26. mín
Karl Friðleifur með skalla yfir
Víkingar taka hornspyrnu stutt, boltinn á Luigi sem finnur Kalla inn á teignum en skalli hans framhjá.
24. mín
Viktor staðinn á fætur og leikurinn farinn í gang aftur.
23. mín
Viktor Már liggur eftir
Lendir í baráttu við Sölva Stefánsson niður við hliðarlínu og þarf aðstoð.
Virðist hafa fengið högg á ökklann.
21. mín
Klaufagangur aftast hjá Magna og Helgi Guðjónsson fær boltann og á skot en Steinar ver það frábærlega!
17. mín
Víkingar eru komnir yfir!
Arnór Borg Guðjohnsen (stoðsending: Logi Tómasson )
Logi Tómasson fær boltann á miðjum vallarhelming Magna og lætur vaða og boltinn í stöngina og þaðan hrekkur boltinn á Arnór Borg sem gerir allt rétt og klárar vel framhjá Steinari í marki Magna.14. mín
Steinar Adolf í ruglinu
Fær boltann og ætlar að reyna einhverja krúsidúllu og tapar boltanum og boltinn á Danijel Djuric sem nær ekki að koma skoti á markið.
Steinar Adolf og Magnamenn heppnir þarna.
12. mín
Smá vandræðagangur á Magna aftast og boltinn á Loga Tómasson sem á skot fyrir utan teig og boltinn af Helga Guðjóns og afturfyrir.
7. mín
Víkingar verið með boltann þessar fyrstu sjö mínútur en hafa enþá ekki náð að skapa sér neitt. Magnamenn eru þéttir með alla fyrir aftan boltann.
1. mín
Logi Tómasson lyftir boltanum upp á Helga Guðjónsson sem er flaggaður rangstæður.
1. mín
Leikurinn er farinn af stað
Viktor Örlygur fyrirliði Víkinga sparkar þessu af stað.
Fyrir leik
Allir leikir dagsins
Við stöndum vaktina á þessum fyrsta sumardegi ársins og verðum með alla leikina í beinum textalýsingum.
13:30 Njarðvík-KFA (Nettóhöllin-gervigras)
14:00 Ægir-FH (JÁVERK-völlurinn)
15:00 Kári-Þór (Akraneshöllin)
15:00 Víkingur R.-Magni (Víkingsvöllur)
15:00 Grindavík-Dalvík/Reynir (Grindavíkurvöllur)
16:00 Sindri-Fylkir (Mánavöllur)
19:15 HK-KFG (Kórinn)
19:15 Grótta-KH (Vivaldivöllurinn)
Fyrir leik
Byrjunarliðin eru klár!
Þau má sjá hér til hliðanna. Arnar Gunnlaugsson þjálfari Víkinga hristir aðeins upp í þessu frá síðasta leik í Bestu deildinni og nokkrir fá tækifæri hér í dag.
Fyrir leik
Dómarateymið
Twana Khalid Ahmed verður með flautuna í dag og honum til aðstoðar verða þeir Antoníus Bjarki Halldórsson og Kári Mímisson.
Twana Khalid Ahmed flautar til leiks klukkan 15:00
Twana Khalid Ahmed flautar til leiks klukkan 15:00Fyrir leik
Magnaðir Magnamenn
Fyrir leik
Víkingur
Bikarmeistarar Víkings frá Reykjavík unnu Mjólkurbikarinn í fyrra eftir sigur á FH í rosalegum úrslitaleik sem fram fór á Laugardalsvelli en Víkingar hafa unnið bikarinn tvö ár í röð og spurningin er hvað þeir gera í ár.
Víkingar eins og alþjóð veit leika í Bestu deildinni og sitja lærisveinar Arnars Gunnlaugssonar á toppi deildarinnar eftir tvær umferðir spilaðar.
Víkingar unnu bikarinn í fyrra.
Víkingar unnu bikarinn í fyrra.Fyrir leik
Magni
Magni fékk Samherja í heimsókn í fyrsu umferð bikarsins og unnu þar þægilegan 4-0 sigur. Í 64-liða úrslitum fóru Magnaðir til Húsavíkur og vann liðið Völsung 0-1.
Magnamenn féllu úr annari deildinni síðasta sumar og leika í þriðju deild í sumar og vænta má að liðið stefni beint upp aftur.
Fyrir leik
Bikarinn heldur áfram að rúlla!
Gleðilegt sumar lesendur góðir og verið hjartanlega velkomin í beina textalýsingu frá heimavelli hamingjunnar. Hér í dag mætast bikarmeistarar Víkings Reykjavík og Magni frá Grenivík í 32-liða úrslitum Mjólkurbikarsins.



