Fotbolti.net
@gummi_aaGuðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Mjólkurbikar karla
JÁVERK-völlurinn
Mjög fínar
Ægir
Ægir
1 - 3
FH
FH
0 - 154' Kjartan Kári Halldórsson0 - 269' Úlfur Ágúst Björnsson (víti)Cristofer Moises Rolin 84'1 - 21 - 385' Kjartan Kári Halldórsson
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason
Myndir: Fótbolti.net - J.L.
Leik lokið!
FH, sem fór í bikarúrslit í fyrra, heldur áfram vegferð sinni í bikarnum. Fyrri hálfleikurinn var ströggl hjá Fimleikafélaginu en þeir komu sterkari inn í hálfleikinn og lönduðu að lokum góðum sigri.
90. mín
Þremur mínútum bætt við
FH
85. mín
Jæja, þetta var stutt gaman hjá Ægi

Kjartan Kári Halldórsson

Klaufagangur í vörn Ægis og það nýtir Kjartan Kári sér. Var mættur á fjærstöngina og er yfirvegaður þegar hann klárar færið. Kjartan Kári hefur átt ljómandi fínan leik í liði FH í dag.
Ægir
84. mín
HEYRÐU HEYRÐU!

Cristofer Moises Rolin

Tempóið í leiknum var farið að hægast mjög. Ægir nýtir sér það og minnkar muninn. Rolin fær boltann með bakið í markið, snýr varnarmenn af sér og klárar frábærlega. Þetta er alvöru skrokkur og erfitt að ráða við hann. Ef hann myndi alltaf klára færin sín svona þá væri hann líklega að spila á mun hærra stigi.
79. mín
Ægir í álitlegri sókn en Ivo reynir skot af einhverjum 25-30 metrum. Líklega auðveldasta skot sem Sindri Kristinn hefur varið á ævi sinni.
FH
76. mín
InnLogi Hrafn Róbertsson
ÚtDani Hatakka
FH
76. mín
InnKjartan Henry Finnbogason
ÚtDavíð Snær Jóhannsson
FH
76. mín
InnSteven Lennon
ÚtÚlfur Ágúst Björnsson
74. mín
Þetta hefur verið afskaplega þægilegt fyrir FH í seinni hálfleiknum og þeir eru líklegir til að bæta við fleiri mörkum.
72. mín
Kjartan Kári í mjög fínu færi til að gera þriðja mark FH en setur boltann yfir markið.
Ægir
71. mín
InnAnton Breki Viktorsson
ÚtBaldvin Þór Berndsen
Ægir
71. mín
InnRagnar Páll Sigurðsson
ÚtRenato Punyed Dubon
70. mín
Úlfur Ágúst gerði annað mark FH
FH
69. mín
MARK!!!

Úlfur Ágúst Björnsson

Úlfur Ágúst skorar úr vítaspyrnunni og kemur FH í 0-2. Stutt tilhlaup og Stefán var í boltanum en í netið fer hann.
Ægir
68. mín
Gult spjald

Stefan Dabetic

Oliver Heiðarsson fer niður í teignum. Ekki mikil snerting en vítaspyrna dæmd.
68. mín
VÍTI!!
66. mín
Kjartan Kári með skot að marki en mjög vel varið hjá Stefáni í marki Ægis.
63. mín
Ivo Alexandre Pereira Braz tekur aukaspyrnuna. Ekki galin tilraun en ratar ekki á markið.
63. mín
Ægir fær hér aukaspyrnu, ekki langt fyrir utan teig. Nálægt því að vera vítaspyrna.
62. mín
Tokic mættur inn á hjá Ægi
FH
61. mín
InnBjörn Daníel Sverrisson
ÚtGyrðir Hrafn Guðbrandsson
Ægir
61. mín
InnHrvoje Tokic
ÚtBjarki Rúnar Jónínuson
Ægir
61. mín
InnIvo Alexandre Pereira Braz
ÚtDimitrije Cokic
60. mín
Þessi seinni hálfleikur hefur verið eign FH. Ægismenn mögulega að verða bensínlausir.
55. mín
Kjartan Kári skoraði fyrir FH
FH
54. mín
MARK!!!

Kjartan Kári Halldórsson (stoðsending: Úlfur Ágúst Björnsson)

Keyrir inn á teiginn, fær boltann svo aftur frá Úlfi Ágústi og á skot sem endar í markinu. Boltinn fer í varnarmann Ægis á leiðinni í markið. FH-ingar búnir að brjóta ísinn á Selfossi.
48. mín
Kjartan Kári kemst í ágætis stöðu en hann á ekki möguleika í Stefan Dabetic sem hefur verið frábær í leiknum.
47. mín
Úlfur í dauðafæri!!
Frábær sending í gegnum vörninni og Úlfur er kominn einn í gegn. Hann er hins kærulaus í færinu og lyftir boltanum yfir markið. Þetta var besta færi FH í leiknum.
Ægir
46. mín
InnAtli Rafn Guðbjartsson
ÚtBele Alomerovic
46. mín
Seinni hálfleikur er hafinn
45. mín
Það er kominn hálfleikur á Selfossi. Ægismenn væntanlega gríðarlega ánægðir með hvernig þetta hefur spilast.
45. mín
Þremur mínútum bætt við fyrri hálfleik
41. mín
Váááá!!!
Bele gerir frábærlega og nær skoti sem fer í slánna!!! Ægismenn svo nálægt því að taka forystuna í þessum leik. Rolin nær frákastinu en er lengi að athafna sig og skot hans fer í varnarmann.
40. mín
Davíð Snær með hættulegt skot rétt fyrir utan teig sem fer fram hjá markinu. Fast var það en ekki alveg hnitmiðað.
38. mín
Það verður að hrósa Ægismönnum fyrir þennan fyrri hálfleik. Þeir eru búnir að verjast mjög vel og hafa sjálfir skapað sér ágætis færi til að skora.
34. mín
Haraldur Einar með skot að marki úr aukaspyrnunni sem fer rétt yfir markið. Ágætis tilraun hjá honum.
Ægir
33. mín
Gult spjald

Bele Alomerovic

Og FH fær aukaspyrnu á hættulegum stað.
32. mín
Núna á Brynjólfur hættulegt skot sem Sindri gerir vel í að verja.
31. mín
Hætta!!!!
Þarna skall hurð nærri hælum fyrir FH-inga!! Hornspyrna frá Renato skapar usla á teignum. Baldvin nær skoti á teignum en Úlfur Ágúst kemur sér fyrir. Svo á Cokic býsna gott skot sem fer rétt fram hjá markinu.
30. mín
Cokic að koma sér í ágætu stöðu en Hatakka verst vel. Ægir fær hins vegar hornspyrnu.
26. mín
Rolin fær höfuðhögg og lítur þetta ekkert sérlega vel út. Sýnist hann þó ætla að halda áfram.
23. mín
Haraldur með lúxussendingu inn fyrir en Davíð Snær missir af boltanum. FH að herða tökin.
21. mín
Besta færi FH
Úlfur Ágúst nær skoti að marki eftir fyrirgjöf frá Oliver en Stefán Þór gerir mjög vel í að verja. Þetta var besta færi FH í leiknum til þessa.
20. mín
Aukaspyrna á hættulegum stað. Kjartan Kári tekur spyrnuna en setur boltann beint í veggið. Nær frákastinu og það er lítill kraftur í því skoti.
16. mín
Renato Punyed með góða aukaspyrnu fyrir markið en FH-ingar skalla frá.
14. mín
Ægir í sókn. Brynjólfur Þór með sendingu fyrir en Sindri Kristinn grípur boltann örugglega. Fínasta sókn hjá heimamönnum.
14. mín
Kjartan Kári með skottilraun sem fer í varnarmann.
13. mín
Gyrðir fellur í teignum og heldur um magann. Fékk spark frá Bele sem fór hátt með fótinn. Þetta var utan teigs og því aldrei vítaspyrna, en mögulega aukaspyrna samt sem áður. Gunnar Oddur dæmdi ekkert.
7. mín
Þetta fer heldur rólega af stað. FH er að stjórna ferðinni en eru ekki að finna margar glufur þessar fyrstu mínútur. Ægismenn eru vel skipulagðir og eru óhræddir að við stíga upp völlinn.
2. mín
Hættulegt!
Oliver með skot rétt fyrir utan teig en boltinn fer hjá markinu. Þetta var ágætis færi.
1. mín
Þá er þetta farið af stað.
Fyrir leik
Liðin ganga hér út á völlinn.
Fyrir leik
Ægir ætlar greinilega ekki að liggja í vörn
Nenad Zivanovic, þjálfari Ægis, segir í samtali við RÚV fyrir leikinn að lífið sé of stutt til að spila varnarbolta. Skemmtileg ummæli.
Fyrir leik
Byrjunarliðin klár
Byrjunarliðin fyrir þennan leik eru klár. FH-ingar hrista vel upp í liði sínu. Athyglisvert er að varnarmaðurinn Ólafur Guðmundsson er með fyrirliðabandið. Sóknarmaðurinn Hrvoje Tokic byrjar á bekknum hjá Ægi. Ólafur Guðmundsson.
Fyrir leik
Allir leikir dagsins
13:30 Njarðvík-KFA (Nettóhöllin-gervigras) 14:00 Ægir-FH (JÁVERK-völlurinn) 15:00 Kári-Þór (Akraneshöllin) 15:00 Víkingur R.-Magni (Víkingsvöllur) 15:00 Grindavík-Dalvík/Reynir (Grindavíkurvöllur) 16:00 Sindri-Fylkir (Mánavöllur) 19:15 HK-KFG (Kórinn) 19:15 Grótta-KH (Vivaldivöllurinn)
Fyrir leik
FH
FH-ingar hafa byrjað ágætlega í Bestu deildinni og eru með fjögur stig eftir tvo leiki. FH vann síðasta deildarleik sinn gegn Stjörnunni, 1-0. Fimleikafélagið er auðvitað talsvert sigurstranglegra í þessum leik en það getur allt gerst í bikarnum.
Fyrir leik
Ægir
Ægismenn hafa átt ansi athyglisverðan vetur. Þeir enduðu í þriðja sæti 2. deildar í fyrra en komust upp eftir að það varð ljóst að Kórdrengir myndu ekki taka þátt. Þeir spila því í Lengjudeildinni í sumar.
Fyrir leik
Úrslitin í gær
Stjarnan 1 - 0 ÍBV Leiknir R. 1 - 0 Selfoss Fjölnir 0 - 2 Breiðablik KA 5 - 0 Uppsveitir KR 3 - 0 Þróttur V. Fram 2 - 3 Þróttur R. Valur 4 - 1 RB Keflavík 1 - 0 ÍA
Fyrir leik
Verið velkomin
Mjólkurbikarinn heldur áfram í dag. Ægir, sem leikur í Lengjudeildinni í sumar, mætir FH á gervigrasinu á Selfossi. Stuðst verður við útsendingu RÚV í þessari textalýsingu þar sem ekki er mikil fjölmiðlaaðstaða við leikvöllinn.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.