SKÝRSLAN: Gæðalítið og leiðinlegt í fallbaráttuslag
Hvað réði úrslitum?
Bæði lið fengu færi til að skora en tókst ekki að klára þau. Seinni hálfleikurinn var frekar lokaður og gæðin lítil. Bæði lið hafa litið illa út sóknarlega í upphafi tímabils og ekki batnaði það í kvöld.
Bestu leikmenn
1. Dröfn Einarsdóttir (Keflavík)
Var lífleg á kantinum hjá Keflavík og það var mikið að gerast í kringum hana. Hún átti nokkrar góðar fyrirgjafir en það vantaði að skila boltanum í netið.
2. Helena Jónsdóttir (ÍBV)
Stóð sig vel í vörninni hjá ÍBV og getur gengið ánægð frá þessum leik með sína frammistaða.
Atvikið
Það voru nokkur atvik í fyrri hálfleiknum þar sem liðin fengu dauðafæri. Kristín Erna Sigurlásdóttir fékk frábær færi til að skora en tókst ekki að gera það. Þá fékk Sandra Voitane einnig góð færi fyrir Keflavík.
Hvað þýða úrslitin?
ÍBV er í fallsæti eftir daginn og Keflavík er þarna rétt fyrir ofan, með einu stigi meira.
Vondur dagur
Kristín Erna Sigurlásdóttir og Sandra Voitane vilja gleyma þessum leik. Þær hefðu svo sannarlega átt að skora í leiknum.
Dómarinn - 7,5
Dæmdi þennan leik bara flott. Svo sem ekki erfiður leikur að dæma.




