Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Kaplakrikavöllur
Sól og logn
FH
FH
1 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Kjartan Henry Finnbogason 3'1 - 01 - 129' Birnir Snær Ingason1 - 242' Birnir Snær Ingason1 - 385' Erlingur Agnarsson
Dómari: Sigurður Hjörtur Þrastarson
Myndir: Fótbolti.net - J.L.

SKÝRSLAN: Iðnaðarsigur hjá Víkingi

Hvað réði úrslitum?

FH komust sanngjarn yfir í leiknum en svo breytti Arnar aðeins til og Víkingar komust aftur í leikinn og náðu að snúa honum sér í vil. FH var alls ekki lakari aðilinn í þessum leik og þegar allt er tekið saman þá voru það Víkingar sem nýttu færinn á meðan FH voru svolítið stöngin út.

Bestu leikmenn

1. Birnir Snær Ingason

Snýr leiknum fyrir Víkinga og skorar 2 frábær mörk. Óheppinn að bæta ekki við stoðsendingu líka og Biddi var on í dag sem betur fer fyrir Víkinga.

2. Davíð Snær Jóhannsson

Það var kraftur í honum og yfirleitt þegar FH mættu framar á völlinn og voru með einhverja hættu þá var Davíð Snær eitthvað viðlogandi það og óheppin að skjóta í stöngina í upphafi síðari hálfleiks.

Atvikið

Jöfnunarmark Víkinga þegar Birnir Snær lætur vaða fyrir utan teig og boltinn var að manni fannst endalaust á leiðinni í markið. Opnaði leikinn fyrir Víkinga og þeir tóku yfir leikinn.

Hvað þýða úrslitin?

Víkingar ná aftur sex stiga forskoti á toppnum. FH eru áfram í 6.sætinu stigi á eftir 4.sæti og með leik til góða.

Vondur dagur

Ástbjörn fær því miður shout hérna en hann átti hræðilegan bolta úr vörninni í öðru marki Víkinga sem Nikolaj kemst í og Víkingar uppskera mark út úr því. Nefni hann hér bara til að nefna einhvern en kannski ósanngjarnt að taka einhvern einn fyrir.

Dómarinn - 7

Fannst margt gott í frammistöðu dómarans i dag. Leikurinn var með gott flæði og var ekki mikið að flauta að óþörfu. Kom smá kafli eftir rauða spjadið þar sem tökin voru óstöðug en hann náði tökum aftur og var bara mjög solid.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.