SKÝRSLAN: Vestri með tæpan sigur á Selfoss
Hvað réði úrslitum?
Fyrstu 20 mínútur leiksins. Selfyssingar voru ekki til staðar fyrr en Gary Martin minnkar muninn og voru lélegasta lið sem ég hef séð í sumar á Olísvellinum. Mörkin voru líka af ódýrari gerðinni og gestirnir hljóta að naga sig í handarbökin að uppskera ekkert frá þessum leik.
Bestu leikmenn
1. Hrannar Snær Magnússon
Átti frábæran leik í vinstri bakverðinum. Pakkaði Silas Songani saman hvað eftir annað og vann úr sínum einvígum fullkomnlega.
2. Gary Martin
Skoraði flott skallamark og var alltaf hættulegur þegar boltinn barst til hans. Hann er með gæði sem sáust vel í dag og vill sennilega sjálfur meina að hann hefði átt að skora fleiri en eitt í dag.
Atvikið
Mark Selfyssinga kveikti í þeim og gerði þetta að leik. Vestramenn virtust ætla að sigla í gegnum leikinn í lága drifinu en fyrirgjöf í hæsta gæðaflokki og skalli kom þeim inn í leikinn. Selfoss fengu urmul færa sem hægt væri að tína til einnig.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri styrkir stöðu sína í playoffs baráttunni á meðan Selfyssingar þurfa sárlega að sækja stig í næstu leikjum til þess að vera ennþá í þeirri súpu.
Vondur dagur
Ibrahima Balde. Var ekki tengdur inná miðjunni í dag, slakar sendingar trekk í trekk og ósýnilegur þess á milli. Fleiri í Vestraliðinu eiga tilkall þarna þrátt fyrir að vera í sigurliðinu en Ibra átti sérstaklega slæman og daufan dag.
Dómarinn - 9
Frábær í dag. Var búinn að hlaða í 10 en lét gabba sig einu sinni og gaf Selfyssingum aukaspyrnu á hættulegum stað. Ákveðinn dómari sem heldur sig við sína línu allan leikinn, það er það sem allir vilja sjá frá dómara.


