Fotbolti.net
Besta deildin
Unnar Jóhannsson
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
HS Orku völlurinn
Rok og rigning. Blautur völlur
Keflavík
Keflavík
1 - 0
Selfoss
Selfoss
Anita Lind Daníelsdóttir 28'1 - 0
Dómari: Soffía Ummarin Kristinsdóttir
Áhorfendur: 100
Leik lokið!
Keflavík spilar í Besu deildinni 2024
Sanngjarn sigur.

Mikill fögnuður í Keflavík eðlilega.

Vel gert
91. mín
Selfoss fær horn.
90. mín
+2 í uppbót
Keflavík
90. mín
Gult spjald

Caroline Mc Cue Van Slambrouck

Of lengi að taka aukaspyrnu.
Ánægður með SOffíu dómara þarna
84. mín
Keflavík fær enn eitt hornið
Ekkert verður úr því.
Selfoss
82. mín
InnBrynja Líf Jónsdóttir
ÚtKatla María Þórðardóttir
Keflavík
82. mín
InnKristrún Blöndal
ÚtÞórhildur Ólafsdóttir
81. mín
Selfoss fær sitt besta færi
Mistök hjá Mikaelu í vörninni, Embla Dís sleppur innfyrir en skotið rétt framhjá. Þarna munaði litlu, skotið rétt framhjá stönginni
80. mín
Dröfn í dauðafæri!
Dröfn líkleg í teignum, skotið af varnarmanni afturfyrir.
Ekkert verður úr horninu
79. mín
Stúkan vaknar
Heimamenn sjá fram á sæti í Bestu deildinni á næstu leiktíð. Peppa sínar stelpur inn í síðustu 10 mínúturnar
78. mín
Dröfn komin út hægra megin, fyrirgjöf sem endar sem skot, framhjá
76. mín
Þórhildur með skot langt fyrir utan teig sem stefndi framhjá. Karen ver.

Eftir hornið á Ameera skalla framhjá.
Selfoss
75. mín
Gult spjald

Elsa Katrín Stefánsdóttir

Gult fyrir peysutog.

Hárrétt
74. mín
Keflavík vill aftur víti!
Ameera fellur í teignum eftir samstuð við Karen.
Sýndist þetta vera víti héðan sem ég sit.

Soffía segir nei
Keflavík
72. mín
InnMargrét Lea Gísladóttir
ÚtSandra Voitane
Selfoss
69. mín
InnElsa Katrín Stefánsdóttir
ÚtÞóra Jónsdóttir
68. mín
Keflavík vill víti
Fyrirgjöf frá Dröfn og Melanie fellur í teignum. Ekkert dæmt
66. mín
Melanie stuttu síðar með skot fyrir utan teig en framhjá. Keflavík að hóta öðru marki
65. mín
Dauðafæri hjá Dröfn
Skot úr teignum vinstra megin, ekki nógu gott skot sem fer framhjá.
59. mín
Keflavík fær horn
Keflavík líklegri að bæta við þessa stundina.
Melanie með hornið sem er skot og Karen þarf að hafa fyrir því að verja það.

Síðara hornið afturfyrir endamörk
57. mín
Sandra með fyrirgjöf frá hægri, yfir Karen í Selfoss markinu en heimastúlkur ná ekki að gera sér mat úr því
Selfoss
55. mín
InnÁsdís Þóra Böðvarsdóttir
ÚtJóhanna Elín Halldórsdóttir
Selfoss
55. mín
InnAuður Helga Halldórsdóttir
ÚtGuðrún Þóra Geirsdóttir
Selfoss
55. mín
InnEmbla Dís Gunnarsdóttir
ÚtUnnur Dóra Bergsdóttir
Selfoss
53. mín
Gult spjald

Jóhanna Elín Halldórsdóttir

Fyrir brot á miðjum vallarhelmingi Keflavíkur
52. mín
Madison brýtur á Unni við bekk Selfoss. Réttilega dæmt aukapsyrna, það er að færast harka í þetta
50. mín
Katla María brýtur á Ameeru inn á miðjunni, stúkan vill spjald en Soffía ekki sammála
49. mín
Madison með gamla góða Zidane snúninginn en endar á samherja sínum. Ekki vel framkvæmt en hugmyndin góð.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Soffía flautar til hálfleiks
Fáum okkur kaffi og komum aftur með síðari hálfleikinn héðan úr Keflavík
45. mín
Katla María með fína aukaspyrnu en enginn hleypur inn í þá sendingu og boltinn afturfyrir.

Við erum komin í uppbótartíma
Keflavík
45. mín
Gult spjald

Anita Lind Daníelsdóttir

Soffia lengi að dæma þetta.
Tækling hægra megin fyrir utan teig Keflavíkur. Þóra í Selfoss liðinu jafnar sig eftir hjálp sjúkraþjálfara

Glenn ósáttur
42. mín
Sif brýtur á sér á miðjum vallarhelmingi sínum.
Skalli frá Söndru en laus skalli og beint á Karen í markinu.
42. mín
Lítur vel út hjá Keflavík
Það þarf mikið að gerast svo að Keflavík fari niður. Yfir í sínum leik og Tindastóll yfir fyrir norðan
38. mín
Unnur Dóra er tæp í bakverðinum á spjaldi. Fór í tæklingu en Soffia dómari notar hagnaðinn. Unnur verður að passa sig núna
31. mín
Næstum því sjálfsmark
Dröfn að spila ótrúlega vel á vinstri kantinum hjá Keflavík. Sending inn í teig sem Áslaug Dóra sparkar í átt að sínu marki. Karen Rós gerir vel í markinu og kemur í veg fyrir slysalegt mark
29. mín
Dröfn fær frábært færi stuttu síðar en Karen ver vel. Þarna munaði ekki miklu að heimakonur kæmust í 2-0
Keflavík
28. mín
MAAAARK!

Anita Lind Daníelsdóttir (stoðsending: Melanie Claire Rendeiro)

Fínt horn inn á miðjan teiginn. Darraðadans í teignum sem endar á skoti sem fer í varnarmann og inn
26. mín
Keflavík fær horn
25. mín
Selfoss fær horn
Katla með hornið sem er skallað í burtu
21. mín
Árekstur, Katla María liggur eftir samstuð en kemur strax aftur inná.
20. mín
Sif með skot frá 40 metrunum en vel framhjá. Hún ætlar að klára þetta tímabil með trompi
17. mín
Sif með aukaspyrnu sem fer afturfyrir endamörk
15. mín
Keflavík fær horn
Melanie með hornið sem er skallað afturfyrir. Annað horn frá hægri sem fer beint afturfyrir endamörk
13. mín
Virðist vera hliðarvindur. Mikil stöðubarátta þessar mínúturnar. Farnir að mynast pollar á vellinum
9. mín
Bæði lið virðast vera í 4-3-3
Keflavík:
Vera
Kristrún-Anita-Mikaela-Caroline
Þórhildur-Ameera
Madison
Dröfn-Melanie-Sandra

Selfoss:
Karen
Íris-Sif-Áslaug-Unnur
Katla-Þóra
Guðrún
Jóhanna-Barbára-Hekla
8. mín
Áslaug Dóra að kveinka sér, jafnar sig og áfram heldur leikurinn
Selfoss
5. mín
Gult spjald

Unnur Dóra Bergsdóttir

Sparkar niður Dröfn við vítateiginn
4. mín
Keflvíkingar byrja þetta örlítið betur, skot frá Melanie fyrir utan teig beint á Karen í markinu
1. mín
Leikur hafinn
Flautað af stað
Keflavík spilar í átt að Blue höllinni í fyrri hálfleik.
Fyrir leik
Allt að verða klárt
Liðin að gera sig líkleg að rölta inn á.
Það rignir og það er rok. Þetta verður áhugavert
Fyrir leik
Byrjunarliðin komin inn
Keflvíkingar stilla upp sama byrjunarliði og í sigurleiknum gegn ÍBV í síðustu umferð.

Hjá gestunum eru tvær breytingar.
Bergrós Ásgeirsdóttir fer úr byrjunarliði síðastas leiks og Íris Una kemur inn.
Embla Dís fer á bekkinn og Guðrún Þóra kemur inn í byrjunarliðið
Fyrir leik
Veðurspáin oft verið betri
Gert er ráð fyrir suðvestan 14 m/s og talsverðri úrkomu þegar flautað verður til leiks á HS Orkuvellinum. Vissara að klæða sig vel og hafa með sér regnhlíf á völlinn.

Mynd: Twitter

Fyrir leik
Dómari

Soffía Ummarin Kristinsdóttir er með flautuna í þessum mikilvæga leik á HS Orkuvellinum. Henni til aðstoðar eru Sigurður Schram og Bjarni Víðir Pálmason. Fjórðí dómari leiksins er Patryk Emanuel Jurczak og eftirlitsmaður KSÍ er Þórarinn Dúi Gunnarsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Hver er staðan og hvað getur gerst?
Staða liðanna

1. Tindastóll 23 stig markatala - 17
2. ÍBV 21 stig markatala - 12
3. Keflavík 21 stig markatala - 15
4. Selfoss 11 stig markatala - 27

Leikir umferðarinnar

Tindastóll - ÍBV
Keflavík - Selfoss

Hvað þarf Keflavík að gera?

Staðan er mjög einföld, vinni Keflavík er sæti liðsins í Bestu deildinni að ári tryggt óháð úrslitum í leik Tindastóls og ÍBV. Það má því segja að þær séu með örlög sín í eigin höndum.

Jafntefli gæti dugað þeim en þá þurfa þær að treysta á að Tindastóll vinni sinn leik gegn ÍBV. Jafntefli í báðum leikjum og Keflavík fellur á markatölu.

Tölfræðilega er mögulegt fyrir Keflavík að halda sæti sínu þrátt fyrir tap en þar þurfa þær aftur að treysta á Tindastól. Tapi Keflavík til að mynda 0-1 þarf Tindastóll að vinna ÍBV með fimm marka mun svo markatalan sveiflist nægjanlega til að Keflavík og ÍBV hafi sætaskipti. Ansi langsótt og raunhæft að ætla að tap þýði einfaldlega fall.
Fyrir leik
Keflavík
Keflavík situr í næst neðsta sæti deildarinnar fyrir þessa lokaumferð og er í bráðri fallhættu. Þær eru þrátt fyrir það með örlög sín í eigin höndum en víkjum að því ögn síðar.

Líkt og hjá gestunum hjá Selfossi hefur sóknarleikurinn verið þeirra helsti hausverkur þetta sumarið. Ellefu mörk skoruðu þær í hefðbundinni deildarkeppni og þurftu að bíta í það súra epli að missa sitt helsta sóknarvopn Linli Tu til Breiðabliks í glugganum.
Þær hafa þó bitið í skjaldarrendur þegar mest á reyndi og sigur þeirra á ÍBV setti allt í uppnám fyrir þessa lokaumferð neðri hluta deildarinnar.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Selfoss

Lið Selfoss er þegar fallið eftir mikið vonbrigðasumar svo ekki sé fastar að orði kveðið. Markmið liðsins voru í það minnsta háleitari en svo að fall yrði niðurstaðan. Þegar horft er til baka hefur sóknarleikurinn verið helsti hausverkur liðsins sem til að mynda skoraði aðeins tíu mörk í hefðbundinni deildarkeppni þetta árið.

Framundan er því leikur upp á stoltið hjá liðinu og uppbygging til framtíðar í Lengjudeildinni að ári. Alls er óvíst hvernig þjálfaramálum verður háttað og einnig hvort að leikmenn eins og Sif Atladóttir taki slaginn með liðinu í Lengjudeildinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Velkomin á HS Orku völlinn
Framundan er mikilvægur leikur í fallbaráttunni. Selfoss eru fallnar úr deildinni. Keflvíkingar þurfa sigur til að bjarga sér frá falli.

Verða þetta liðin sem fara saman niður í Lengjudeildina ?
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.