Fotbolti.net
Besta deildin
@mattimattMatthías Freyr Matthíasson
Matthías Freyr Matthíasson
Besta-deild karla
Akraneshöllin
Inn í Akrraneshöll.....
ÍA
ÍA
5 - 1
Fylkir
Fylkir
Hinrik Harðarson 11'1 - 045' Orri Sveinn StefánssonSteinar Þorsteinsson 51'2 - 0Jón Gísli Eyland Gíslason 54'3 - 0Viktor Jónsson 67'4 - 0Albert Hafsteinsson 77'5 - 05 - 185' Theodór Ingi Óskarsson
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Skagamenn Skagamenn skoruðu mörkin

Hvað réði úrslitum?

Það er rosa auðvelt að segja að rauða spjaldið sem Fylkir fékk á sig á 45 mínútu hefði verið úrslitaatriðið en Skagamenn voru samt komnir yfir áður en það gerist. Í kjölfarið á rauða spjaldinu brotna Fylkismenn algjörlega og Skagamenn gengu á lagið og kláruðu leikinn með fagmennsku og 5 mörkum. 4 mörk í síðasta leik og kannski geta stuðningsmenn ÍA farið loksins að syngja á ný ,,Skagamenn, Skagamenn skoruðu mörkin"

Bestu leikmenn

1. Hinrik Harðarson

Stórhættulegur leikmaður sem er að allan tímann og hleypur úr sér lifur og lungu og skoraði sitt fyrsta mark fyrir ÍA.

2. Oliver Stefánsson

Frábær í vörninni hjá ÍA og sést hversu mikill leiðtogi hann er inni á vellinum og stýrir liðinu eins og herforingi inn á vellinum og með góðar sendingar. Steinar Þorsteins, Viktor Jóns, Jón Gísli Eyland og Johannes Vall fá líka honarable mention.

Atvikið

Rauða spjaldið á 45 mínútu þegar Marko Vardic sleppur einn inn fyrir, Orri Sveinn aftasti varnarmaður tekur hann niður við vítateigslínuna og klárt rautt spjald.

Hvað þýða úrslitin?

Skagamenn með annan sigur í röð og eru þegar þetta er skrifað (leikur Vikings og Blika í gangi) eru þeir í efsta sæti deildarinnar. Fylkismenn eru enn án sigurs en hafa spilað vel í tvo leiki og einn hálfleik og þurfa ekki mikið til að hlutirnir gangi upp hjá þeim.

Vondur dagur

Orri Sveinn Stefánsson því miður fær þennan dóm á sig þar sem hann fær þetta rauða spjald sem gerir það að verkum að Fylkismenn spila manni færri. En síðan má alveg setja spurningamerki við liðsfélagana alla (nema Ólaf Kristófer) sem brotna við það.

Dómarinn - 8,5

Pétur var með leikinn á lás. Mjög vel dæmdur leikur að mínu mati.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.