SKÝRSLAN: Vestri nældi í sinn fyrsta sigur gegn lánlausum KA mönnum
Hvað réði úrslitum?
KA menn byrja mótið illa. Klárlega þeirra slakasti leikur til þessa, nýliðarnir hófu leikinn af krafti og voru hreinlega alltaf líklegri og áttu sigurinn skilið.
Bestu leikmenn
1. Fatai Gbadamosi
Var eins og kóngur á miðjunni. Það fór lítið sem ekkert framhjá honum.
2. Jeppe Gertsen
Frábær í vörninni og kórónaði það með sigurmarkinu. Benedikt Waren var einnig líflegur í sóknarleik liðsins.
Atvikið
Sigurmarkið. Boltinn datt fyrir Gertsen eftir hornspyrnu og hann var ekki lengi að átta sig og skoraði gott mark.
Hvað þýða úrslitin?
Vestri komið með sinn fyrsta sigur í efstu deild en KA er í stórkostlegum vandræðum eftir að hafa safnað aðeins einu stigi úr fyrstu þremur leikjunum sem hafa allir verið heimaleikir.
Vondur dagur
KA liðið í heild, erfitt að pikka einhvern út úr því. Alls ekki nógu góð frammistaða í dag.
Dómarinn - 7
Ekki erfiðasta verkefni sem hann mun taka að sér. Dæmdi leikinn vel.A



