SKÝRSLAN: Víkingur er alltaf Víkingur í bikarnum
Hvað réði úrslitum?
Grindavík vörðust vel lágt á vellinum og Víkingar náðu fyrir vikið ekki að skapa sér mörg færi. Undir lok leiks stigu Grindvíkingar hærra upp á völlinn og Víkingar refsuðu. Grindavík geta verið stoltir af frammistöðu sinni en gæðin hjá Víkingum skinu í gegn og kláruðu leikinn.
Bestu leikmenn
1. Danijel Dejan Djuric
Danijel er með gæði og fleira, braut ísinn fyrir Víkinga og ógnaði mikið í leiknum. Skoraði einnig gott mark sem var réttilega dæmt af vegna rangstöðu.
2. Josip Krznaric
Króatinn geðugi var flottur á miðju Grindavíkur, var nálægt því að skora í fyrri hálfleik og skoraði svo gott mark í þeim seinni.
Annars erfitt að velja einhverja tvo sem stóðu sérstaklega upp úr.
Annars erfitt að velja einhverja tvo sem stóðu sérstaklega upp úr.
Atvikið
Mark Valdimars Þórs var af dýrari gerðinni, smurði honum í vinkilinn og gerði út um leikinn.
Hvað þýða úrslitin?
Víkingar verða í pottinum þegar dregið verður í 8- liða úrslit Mjólkurbikarsins.
Vondur dagur
Aron Dagur Birnuson missti boltann undir sig í fyrsta marki leiksins og þar af leiðandi þurftu Grindvíkingar að elta allan leikinn eftir þau mistök.
Dómarinn - 8
Arnar Þór Stefánsson og félagar með fínasta leik. Eitt atvik þar sem ég hefði viljað sjá aukaspyrnu boltinn fór greinilega í hendina á varnarmanni eftir skot að marki. Annars engin stór vafaatriði.



