SKÝRSLAN: Fylkir vann loksins fótboltaleik
Hvað réði úrslitum?
Eftir að HK komast yfir í leiknum mjög snemma leiks þá kveiknaði á Fylkismönnum og þeir svöruðu mjög fljótt með þremur góðum mörkum og silgdu þessum sigri svo bara hægt og rólega heim þrátt fyrir nokkuð góð áhlaup HK
Bestu leikmenn
1. Þórður Gunnar Hafþórsson (Fylkir)
Þórður Gunnar var frábær á vellinum í dag og hefði léttilega geta skorað svona fimm mörk. Gott fyrir Fylkismenn ef þessi gæji er að koma sér í gang.
2. Aron Snær Guðjónsson (Fylkir)
Aron Snær var frábær á vellinum í kvöld. Benedikt Daríus var líka einnig mjög öflugur og skoraði eitt mark í kvöld.
Atvikið
Jöfnunarmark Fylkis. Fylkir lyftu boltanum inn fyrir á Þórð Gunnar og Stefán Stefánsson tók skógarhlaup út úr marki sínu og rennur og Þórður Gunnar setti boltann í autt markið.
Hvað þýða úrslitin?
Fylkir verður í hattinum þegar dregið verður í 8 liða úrslitin í Laugardalnum eftir helgi. Bikar ævintýri HK er úti í ár
Vondur dagur
Stefán Stefánsson - Fékk að verja mark HK og gerði sig sekan um tvö dýrkeypt mistök og mun hann líklega ekki sofa vel í kvöld. Fyrst henti hann sér í skógarhlaup úr marki sínu og rann og gaf Þórði Gunnari jöfnunarmark Fylkis. Gaf svo klaufalegt víti sem Fylkismönnum mistókst að skora úr.
Dómarinn - 8
Twana og hans menn voru nokkuð solid í dag og enginn dómur sem öskraði á mig.



