Fotbolti.net
Besta deildin
@Stefanmarteinn7Stefán Marteinn Ólafsson
Stefán Marteinn Ólafsson
Besta-deild karla
Kórinn
Alltaf sama blíðan inni í Kórnum
HK
HK
4 - 3
Stjarnan
Stjarnan
0 - 11' Emil AtlasonArnþór Ari Atlason 27'1 - 1Viktor Helgi Benediktsson 45'2 - 1Hilmar Árni Halldórsson (sjm) 48'3 - 13 - 287' Haukur Örn Brink3 - 389' Emil AtlasonAtli Hrafn Andrason 92'4 - 3
Dómari: Pétur Guðmundsson

SKÝRSLAN: Föstu leikatriðin urðu Stjörnunni að falli

Hvað réði úrslitum?

Föstu leikatriðin gerðu út um leikinn í dag. HK skorar úr þremur föstum leikatriðum og Stjarnan einu. Stjarnan skorar eftir um 30 sek en HK skorar svo úr þremur föstum leikatriðum á eftir. Stjarnan nær að jafna leikinn á ótrúlegum kafla undir restina en það var svo Atli Hrafn sem skoraði sigurmarkið frá miðjuboganum og tryggði HK stigin þrjú.

Bestu leikmenn

1. Þorsteinn Aron Antonsson

Varnarlína HK var frábær í dag og fórnaði sér fyrir málstaðin. Héldum að Þorsteinn Aron hefði skorað þriðja markið en það reyndist svo sjálfsmark. Fær heiðurinn fyrir hönd varnarlínu HK.

2. Emil Atlason

Kannski skrítið val miðað við þau færi sem fóru forgörðum en hann skoraði tvö og það var alltaf eitthvað um að vera þegar hann komst í færi við boltann. Þunn lína milli þess að vera skúrkur eða hetja mögulega. Hann er eflaust pirraður á að hafa ekki náð að gera meira og þetta val þætti hið eðlilegasta ef ekki hefði verið fyrir þessa sleggju frá miðju í uppbótartímanum svo ég held mig við Emil Atla hér.

Atvikið

Markið frá Atla Hrafn var rosalegur endir á þessum leik! Fengum alvöru þvælu þarna í lokin og þegar mómentið var með Stjörnunni voru það HK sem stigu upp og settu sigurmarkið í restina.

Hvað þýða úrslitin?

HK fer í 8.sætið og eru bara þremur stigum frá fjórða sætinu. Stjarnan eru í 5.sætinu áfram.

Vondur dagur

Varnarleikur Stjörnunnar í föstum leikatriðum. Eins og Jökull sagði eftir leik þá vegur þetta þungt og það má vel færa rök fyrir því að þetta var það sem skildi á milli þegar uppi er staðið.

Dómarinn - 7

Fínasta frammistaða hjá Pétri og hans teymi í dag. Rock solid 7-a.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.