Fotbolti.net
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Grótta
Grótta
Lengjudeild karla
Vivaldivöllurinn
2 - 3
Dalvík/Reynir
Dalvík/​Reynir
0 - 120' Freyr JónssonGabríel Hrannar Eyjólfsson 30'1 - 11 - 236' Hassan Jalloh1 - 349' Áki SölvasonPétur Theódór Árnason 59'2 - 3
Dómari: Gunnar Oddur Hafliðason

SKÝRSLAN: 10 töp í 11 leikjum hjá Gróttu

Hvað réði úrslitum?

Dalvíkingar voru ofan á í baráttunni og vildu þetta meira. Eins ógeðslega leiðinleg útskýring og það kann að hljóma en þá var það bara þannig. Dalvíkingar voru betri í dag fannst mér og áttu þetta bara skilið.

Bestu leikmenn

1. Borja López

Ég hef aldrei farið leynt með það að mér finnst þetta vera mikilvægasti leikmaður Dalvíkurliðsins. Gefur því svo ótrúlega mikið og það sást hvað þeir misstu þegar hann meiddist á miðju tímabili. Á líka þessa gullfallegu sendingu á Frey Jónsson í fyrsta markinu. Frábær í dag hann Borja.

2. Gunnlaugur Rafn Ingvarsson

Var mjög flottur í hægri bakverðinum í dag. Lagði upp þriðja mark Dalvíkinga á Áka Sölva mjög vel. Var mjög iðinn í baráttunni eins og sjá má best í öðru marki Dalvíkur.

Atvikið

Ég verð eiginlega að velja 2-1 markið þegar Hassan Jalloh skorar. Tek ekkert af Hassan en þetta mark einkennir eiginlega Gróttu liðið. Litlir í baráttunni og Hassan fær bara of mikinn tíma þegar hann er að skjóta. Gróttumenn nýbúnir að jafna og það er eins og það þeir voru með mómentið með sér en svo bara kasta þeir þessu frá sér sísvona.

Hvað þýða úrslitin?

Dalvík/Reynir jafnar Gróttu að stigum en þau eru bæði í fallsæti aðeins þremur stigum á eftir Leikni Reykjavík sem er í öruggu sæti. Þetta er einnig tíunda tap Gróttu í röð sem hefur aðeins unnið einn leik í seinustu 12 leikjum. Þungir dagar á Nesinu.

Vondur dagur

Mér fannst allt Gróttuliðið frekar soft í dag. Það er einhver neikvæð ára yfir Gróttuliðinu og mjög vond orka. Sóknarleikurinn var enginn í seinni hálfleik og þeir köstuðu sér niður eins og stungnir grísir í hvert sinn sem þeir fundu fyrir minnstu snertingu. Ekki veit ég afhverju en Chris Brazell tók ekki í höndina á neinum nema Dragan eftir leik. Þegar leikmenn Dalvíkur fóru að honum og ætluðu að þakka honum fyrir leikinn sagði hann bara eitthvað til þeirra sem myndaði smá hita eftir leik í staðinn fyrir að þakka fyrir leikinn. Hann fær líka shout hérna.

Dómarinn - 9

Mér fannst þetta mjög vel dæmdur leikur hjá Gunnari. Erfiður leikur að dæma, það er klárt mál, en hann gerði það vel að mínu mati. Féll ekki í neina gildru og var flottur ásamt aðstoðarmönnum hans.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.