SKÝRSLAN: ÍR styrkir stöðu sína í umspilsbaráttunni
Hvað réði úrslitum?
ÍR-ingar voru heilt yfir betra liðið í dag. Fjölnismenn byrjuðu betur en Breiðhyltingar komu sér vel inn í leikinn eftir að leið á. Það sem réði leiknum af miklu leiti voru hinsvegar stórir vafa dómar sem ég mun fara nánar út í, í "Dómarinn" hlutanum.
Bestu leikmenn
1. Arnór Gauti Úlfarsson (ÍR)
Arnór var klettur í vörninni í dag, fór lítið sem ekkert framhjá honum, og kom boltanum frá sér virkilega vel.
2. Renato Punyed (ÍR)
Renato var besti maður ÍR sóknarlega í dag fannst mér. hann var virkilega líflegur með boltan framarlega á vellinum og náði í eina stoðsendingu.
Atvikið
Fjölnismenn jafna leikinn á 94. mínútu en dómarinn dæmir rangstöðu. Ég valdi að treysta dómaranum bara við fyrstu sín. Hinsvegar er ég búinn að sjá nokkrar myndir eftir leikinn þar sem virðist vera að þetta hafi verið rangur dómur. Þessi dómur gæti reynst risastór þegar stigin eru talin í lok tímabils.
Hvað þýða úrslitin?
Fjölnir er enn í 2. sæti en Keflavík er aðeins 3 stigum á eftir þeim og eiga eftir að spila í þessari umferð. ÍBV sem er einu stigi á undan Fjölni á einnig eftir að spila og gætu því búið til smá bil í næstu lið. ÍR styrkti sig heldur betur í baráttunni um umspils sæti. Þeir eru í 5. sæti en eru jafnir Njarðvík og Keflavík á stigum.
Vondur dagur
Axel Freyr Harðarson fékk að bíta í það súra epli að vera rekinn af velli. Hann fékk 2 gul spjöld og heimamenn vildu meina að það hafi verið fyrir ansi litlar sakir. Það breytir því hinsvegar ekki að hann fór af velli, liðið hans tapaði og hann verður í banni í næsta leik.
Dómarinn - 5
Mér finnst mjög erfitt að gefa einkun í dag. Það var rosalega mikið af vafa atriðum, og ég er ekki viss um að ég geti dæmt um megnið af þeim hvort þau hafi verið rétt. Þau sem mér finnst ég hafa séð best hinsvegar var í fyrsta marki ÍR vildu Fjölnismenn fá innkast. Ég sá ekki hvort boltinn hafi farið af velli en mér fannst nokkuð greinilegt á líkamstjáningu Braga að hann var að bíða eftir flautinu. Svo er það rangstöðu mark Fjölnis í lokin sem mér sýnist miðað við endursýningar hafa verið vitlaust dæmt. Ívar og hans teymi voru hinsvegar með nokkur atriði eins og nokkur gul spjöld sem var erfitt að dæma um hárrétt. Það er þess vegna sem teymið fær ekki algjöra fall einkun.



