SKÝRSLAN: Alvöru dómaraklúður í tapi Breiðabliks gegn Sporting
Hvað réði úrslitum?
Sporting hófu leikinn miklu betur og voru kominar yfir eftir aðeins 4. mínútur. Sporting hélt áfram að halda vel í boltann og pressuðu vel þegar Blikar voru með boltann, en þrátt fyrir það stóðu Breiðablik mjög vel gegn erfiðum andstæðingum. Breiðablik byrjuðu seinni hálfleik með krafti og voru nálægt því að jafna leikinn áður en Sporting skoruðu seinna markið.
Bestu leikmenn
1. Telma Encarnação
Portúgalska Telma var ótrúleg í þessum leik. Átti mörg öflug færi og skoraði tvö glæsileg mörk.
2. Brittany Raphino
Var mjög hættuleg hjá Sporting. Skapaði mikið af færum og var nálægt því að skora nokkrum sinnum.
Atvikið
Í lok fyrri hálfleiks hleypur Hannah á móti Samantha sem stendur aðeins fyrir utan teig. Hannah tekur Samantha niður beint fyrir framan dómaran, en dómarin ákveður að taka strax upp gula spjaldið, ánn þess að spjalla við neinn línuvörð. Þetta brot hefði léttilega geta verið rautt spjald og það hefði breytt þessum leik töluvert.
Hvað þýða úrslitin?
Breiðablik eru þá úr leik í Meistaradeildinni í ár á meðan Sporting heldur áfram í annarri umferð.
Vondur dagur
Allir leikmenn á vellinum stóðu vel í leiknum. Sá sem átti sérstaklega vondan leik í dag var dómarin. Ég mun tala meira um það fyrir neðan, en alls ekki góð frammistaða hjá UEFA dómara.
Dómarinn - 2
Alls ekki vel dæmt hjá Ítalska dómaranum Deborah í dag. Línan var öll út um allt, maður vissi aldrei hvenær hún væri að fara gefa gult spjald og hvenær ekki, stundum dæmdi hún á lítil brot og stundum ekki. Bara almennt mjög léleg frammistaða og þá sérstaklega þegar hún gefur Hannah aðeins gult spjald fyrir að taka niður fremsta mann Blika. Léleg lína sem hallaðist lang oftast gegn Blikum í dag.



