SKÝRSLAN: Selfoss bjargar stigi í síðasta leik tímabilsins
Hvað réði úrslitum?
Selfoss fékk fleiri færi en náðu aðeins að nýta eitt af þeim en Grindvíkingar spiluð flottan leik aftur á móti
Bestu leikmenn
1. Katelyn Kellogg (Grindavík)
Varði mjög vel oft og greip nánast allar fyrirgjafir Selfoss og óheppin að halda ekki hreinu
2. Eva Lind Elíasardóttir (Selfoss)
Skoraði jöfnunarmark með síðustu spyrnu leiksins og gott fyrir Seflyssinga að klára tímabilið með einu marki
Atvikið
Karen virðist taka Unu niður inní teig Selfoss en Magnús var ósammála að því og fannst að hún hefði verið með leikaraskap
Hvað þýða úrslitin?
Selfoss mun spila í 2. deild á næsta ári en Grindavík heldur sér í Lengjudeildinni og mun spila þar á næsta ári
Vondur dagur
Vodur dagur fyrir Selfyssinga sem sköpuðu sér alveg fullt af færum en skoruðu aðeins eitt mark
Dómarinn - 5/10
Skrítin lína í leiknum og svo átti Grindavík að fá víti sem hann missti af en annars var leikurinn alltaf undir hans stjórn


