Fotbolti.net
Besta deildin
Halldór Gauti Tryggvason
Besta-deild kvenna - Neðri hluti
Samsungvöllurinn
8°C, skýjað og létt gola
Stjarnan
Stjarnan
2 - 1
Tindastóll
Tindastóll
0 - 11' Jordyn RhodesHulda Hrund Arnarsdóttir 24'1 - 1Hrefna Jónsdóttir 48'2 - 1
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson
Áhorfendur: 74
Myndir: Tryggvi Már Gunnarsson
Leik lokið!
Stjarnan sigrar!
Leik lokið hér í Garðabænum! Stjarnan sigrar 2-1.

Viðtöl og skýrlsa koma inn seinna í dag!
90. mín
Uppgefin uppbótartími er 4 mínútur
89. mín
Rétt framhjá!
Úlfa Dís með skot rétt fyrir utan teig. Hittir hann vel en boltinn fer framhjá.
Tindastóll
88. mín
InnKristrún María Magnúsdóttir
ÚtElise Anne Morris
Þreföld skipting hjá gestunum.
Tindastóll
88. mín
InnBergljót Ásta Pétursdóttir
ÚtGabrielle Kristine Johnson
Tindastóll
88. mín
InnSigríður H. Stefánsdóttir
ÚtMonica Elisabeth Wilhelm
80. mín
Dauðafæri!
Jordyn Rhodes næstum búin að jafna metin! Kemur bolti inn á teiginn beint á Jordyn sem er með heilan helling af plássi. Hittir boltann illa og hann lekur framhjá stönginni.
Stjarnan
79. mín
InnHalla Margrét Hinriksdóttir
ÚtErin Katrina Mcleod
Erin fær heiðurskiptingu í sínum seinasta leik fyrir Stjörnuna.
79. mín
Hætta!
Hrefna Jónsdóttir komin í gegn ein á móti markmanni en vel varið hjá Monicu
Tindastóll
75. mín
InnSaga Ísey Þorsteinsdóttir
ÚtHugrún Pálsdóttir
75. mín
Jordyn Rhodes með fast skot á mark. Beint á Erin.
Stjarnan
72. mín
InnHenríetta Ágústsdóttir
ÚtKatrín Erla Clausen
70. mín
Gestirnir verið mun sókndjarfari síðastliðnar mínútur.
65. mín
Arna Dís á skot fyrir utan teig. Þéttingsfast en boltinn tiltölulega beint á Monicu í markinu.
Tindastóll
64. mín
Gult spjald

Gabrielle Kristine Johnson

61. mín
Úlfa Dís á hörkuspretti upp vinstri kantinn og vinnur hornspyrnu.

Boltinn berst á Úlfu sem á hörkuskot. Vel varia hjá Monicu.
Stjarnan
60. mín
Gult spjald

Eyrún Embla Hjartardóttir

Stjarnan
60. mín
InnAndrea Mist Pálsdóttir
ÚtGyða Kristín Gunnarsdóttir
59. mín
Gott skot!
Alfa Dís með frábært skot fyrir utan teig. Hittir hann vel og þar Monica að hafa sig alla við til að verja þetta.
58. mín
Hulda Hrund komin í stórhættulega stöðu en flaggið fer á loft.
56. mín
Tindastóll að vinna aukaspyrnu á hættulegum stað úti á hægri kantinum. Kjörið tækifæri til að koma boltanum inn á teiginn.

Taka þetta stutt á Elísu sem á skot yfir markið.
53. mín
Hætta!
Fín sókn hjá gestunum. Boltinn á Birgittu sem á skot rétt framhjá.
Stjarnan
48. mín
Frábærlega gert!

Hrefna Jónsdóttir

Stjarnan komin yfir!

Vel gert hjá Hrefnu! Fær boltann fyrir utan teig. Prjónar sig framhjá varnarmönnum Stólana og kemur sér ein á móti markmanni og hamrar hann svo í netið. Vel klárað! Geggjuð byrjun á seinni hálfleiknum fyrir heimakonur.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Bæði lið gera eina breytingu á sínu liði í hálfleik.
Tindastóll
45. mín
InnLara Margrét Jónsdóttir
ÚtAldís María Jóhannsdóttir
Stjarnan
45. mín
InnArna Dís Arnþórsdóttir
ÚtKarlotta Björk Andradóttir
45. mín
Svipmyndir úr fyrri!
Tryggvi Már Gunnarsson, ljósmyndari, er á leiknum!

Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson


Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson

45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik!
Fyrri hálfeikur að baki og er allt jafnt er liðin ganga til búnigsherbergja. Tvö mörk komin í þetta og fáum vonandi enn fleirri í seinni hálfleik!

Tökum okkur korterspásu og komum svo með seinni hálfleikinn!
45. mín
Uppgefin uppbótartími í fyrri hálfleik er 1 mínúta.
42. mín
Gestirnir að fá horn.

Hættuleg spyrna frá Laufeyju inn á teiginn. Boltinn skoppar á milli leikmanna en Erin handsamar hann að lokum.
38. mín
Mikið um hornspyrnur hér í Garðabænum! Tindastóll fær horn, 14. hornspyrnu leiksins!

Góð spyrna, smá darraðadans inn á teig Stjörnunar en þær hreinsa að lokum
35. mín
Stjarnan fær horn.

Gyða með fínan bolta inn á teiginn en gestirnir hreinsa.
30. mín
Tindastóll fær horn.

Mikil hætta skapast inn á teig Stjörnunar. Boltinn dettur fyrir Birgittu sem á skot í hliðarnetið.
29. mín
Stólarnir að pressa heimakonur hátt á vellinum. Stjarnan í töluverðu basli að spila sig úr henni.
Stjarnan
24. mín
Allt orðið jafnt!

Hulda Hrund Arnarsdóttir

MAAARK!

Stjarnan verið að vinna sig inn í leikinn og eru búnar að jafna! Boltinn kemur inn á teiginn og Hulda neglir honum í netið. Vel klárað. Allt jafnt!
23. mín
Stjarnan að ógna! Vinna hornspyrnu.
17. mín
Skot á mark!
Fín skyndisókn hjá Tindastól. Boltinn berst á Jordyn sem kemur sér í skotfæri. Skýtur á mark en varið af Erin.
12. mín
Hrefna Jónsdóttir gerir vel úti á vinstri kantinum og vinnur hornspyrnu fyrir Stjörnuna.

Góð hornspyrna en gestirnir bægja hættunni frá.
9. mín
Jessica Ayers með skot fyrir utan teig. Hittir hann ágætlega en boltinn beint á Monicu í markinu.
7. mín
Gestirnir hafa byrjarð þennan leik mjög vel. Haldið áfram að sækja eftir þetta stórglæsilega mark Jordyn.
3. mín
Stjarnan fær horn.

Gestirnir hreinsa.
Tindastóll
1. mín
EKKI LENGI GERT!!

Jordyn Rhodes

Geðveikt mark!!

Stólarnir skora eftir 35 sekúndna leik! Jordyn Rhodes fær boltann vel fyrir utan teig og þrykkir honum í samskeytin. Geðveikt mark.

Þvílík byrjun!
1. mín
Leikur hafinn
Komið í gang!
Stjarnan byrjar með boltann.
Fyrir leik
Erin Katrina heiðruð fyrir leik en þetta er síðasti leikur hennar fyrir Stjörnuna.

Mynd: Tryggvi Már Gunnarsson
Fyrir leik
Þetta fer að byrja!
Liðin ganga inn á völlinn. Styttist óðfluga í upphafsflautið!
Fyrir leik
Fínustu aðstæður í Garðabænum.
Fínar aðstæður hér í dag. 8°C, skýjað og létt gola.
Fyrir leik
Leikir liðanna í sumar
Liðin hafa mæst tvisvar í sumar í Bestu-deildinni og þetta er þriðja og síðasta viðureignin.
Í fyrri leik liðanna voru það Stólarnir sem höfðu betur en seinni leikur liðanna endaði með markalausu jafntefli. Verður gaman að sjá hvað gerist hér í dag.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Neðri hlutinn
Svona lítur taflan í neðri hlutanum út.

Stjarnan - 22 stig
Tindastóll - 19 stig
Fylkir - 13 stig
Keflavík - 11 stig

Það er kannski ekki til mikils að keppa í dag en Tindastóll getur jafnað Stjörnuna að stigum með sigri. Vonumst eftir fjörugum og skemmtilegum leik hér í dag!

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Gengi liðanna
Eins og fram hefur komið eru bæði Stjarnan og Tindastóll örugg með áframhald í Bestu deildinni og munu ekki falla. Þessi leikur er liður í lokaumferð neðri hluta deilarinnar og er þetta því síðasti leikur liðanna í sumar.

Tindastóll
Tindastóll hefur unnið báða leiki sína eftir að deildinni var skipt upp. Stólarnir mættu Fylki í síðustu umferð og unnu þar 3-0 sigur.

Mynd: Sigurður Ingi Pálsson


Stjarnan

Stjarnan fór í heimsókn til Keflavíkur í síðustu umferð. Þar var mikið fjör, enda átta mörk sem litu dagsins ljós! Leikurinn endaði 4-4 og fóru bæði lið með eitt stig af velli.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Lokaumferð í neðri hlutanum!
Góðan dag og verið hjartanlega velkomin í þráðbeina textalýsingu á viðureign Stjörnunnar og Tindastóls í Bestu deild kvenna! Þetta er síðasti leikur liðanna í sumar og eru bæði lið búin að tryggja sér áframhaldandi viðveru í deildinni. Leikurinn fer fram á Samsung-vellinum og hefst kl. 14:00!
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.