Leik lokið!
90+5
Twana flautar af. Fyrsti deildarsigur Vals í sumar er staðreynd.
Viðtöl og skýrsla innan skamms.
90. mín
90+1
Adam Ægir sloppinn einn í gegn og Jónatan með honum. Í stað þess að renna boltanum á Jónatan ákveður hann að skjóta og Stubbur ver
90. mín
uppbótartími amk 5 mínútur
90. mín
Gult spjald
Patrick Pedersen
Fyrir brot á vallarhelmingi KA87. mín
InnMikael Breki Þórðarson
ÚtBjarni Aðalsteinsson
86. mín
Nú er það Patrick Pedersen sem liggur á vellinum. Valsmenn búnir með skiptingarnar svo vonandi getur hann haldið leik áfram
84. mín
InnTómas Bent Magnússon
ÚtMarius Lundemo
Seinasta skipting Vals í kvöld
84. mín
Adam Ægir Pálsson með gott skot fyrir utan teig en boltinn naumlega framhjá.
83. mín
Áfram er KA að reyna. Ásgeir með skot við enda vítateigsins en beint á Stefán í markinu.
82. mín
Hallgrímur er kominn inn á aftur
80. mín
Leikurinn stopp núna. Hallgrímur liggur eftir árekstur. Virðist frekar þjáður. Vonandi að þetta sé ekki alvarlegt
78. mín
Gestirnir aðð auka pressuna. Mark fljótlega myndi setja þennan leik í uppnám
76. mín
KA menn ekki langt frá því að gera þetta að leik. Dagur Ingi kominn í ákjósanlega stöðu eftir fínt uppspil en skotið fer í hliðarnetið. Sýndist hann fyrst hafa farið í markið
74. mín
InnKristinn Freyr Sigurðsson
ÚtLúkas Logi Heimisson
74. mín
InnAdam Ægir Pálsson
ÚtTryggvi Hrafn Haraldsson
74. mín
InnIngimar Torbjörnsson Stöle
ÚtKári Gautason
72. mín
Það má segja að hér hafi Jónatan verið rændur stoðsendingu. Með geggjaða sendingu innfyrir á Tryggva sem er of lengi að athafna sig og sóknin rennur út í sandinn
71. mín
Gult spjald
Marius Lundemo
Fyrir brot á miðjum velli61. mín
InnJakob Snær Árnason
ÚtMarcel Ibsen Romer
Þreföld breyting hjá gestunum eftir markið. Spurning hvort þeir nái að hrista upp í þessu
61. mín
InnHrannar Björn Steingrímsson
ÚtGuðjón Ernir Hrafnkelsson
61. mín
InnDagur Ingi Valsson
ÚtJóan Símun Edmundsson
60. mín
MAAAARK!
Ásgeir Sigurgeirsson (stoðsending: Bjarni Aðalsteinsson )
Núna skorar Ásgeir. Skallar boltann í netið eftir fyrirgjöf frá Bjarna59. mín
Gestirnir nálægt því að minnka muninn. Ásgeir kominn í ágætis færi en Stefán ver vel í markinu
58. mín
InnAron Jóhannsson
ÚtOrri Hrafn Kjartansson
56. mín
Skelfilegur varnarleikur hjá KA
Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Birkir Heimisson)
Sama uppskrift og í marki tvö. Birkir Heimis með langan bolta yfir vörn KA. Jónatar nær boltanum við endalínuna og fer framhjá varnarmanni KA eins og að drekka vatn áður en hann skorar framhjá Stubbi50. mín
Valsmenn eru áfram sterkari á upphafsmínútum seinni hálfleiks. Maður er ekki að sjá að gestirnir að norðan eigi afturkvæmt hérna.
46. mín
Þetta er farið af stað aftur
46. mín
InnJakob Franz Pálsson
ÚtMarkus Lund Nakkim
Heimamenn breyta í hálfleik
45. mín
Twana flautar og það er kominn hálfleikur. Brekka framundan fyrir KA í seinni hálfleik
43. mín
Þetta þarf ekki að vera flókið
Tryggvi Hrafn Haraldsson (stoðsending: Birkir Heimisson)
Birkir með ótrúlega flotta sendingu yfir varnarmenn KA og allt í einu er Tryggvi einn á móti Stubbi og rennir boltanum undir hann.43. mín
Eftir nokkuð langa sókn Valsmanna berst boltinn á Lúkas Loga fyrir utan teig en skotið yfir
37. mín
Jónatan nálægt því að bæta við. Stungusending frá Patrick en KA menn verjast vel
34. mín
Hallgrímur Mar með ágætis skottilraun framhjá
33. mín
Gult spjald
Markus Lund Nakkim
Fyrsta spjall leiksins. Keyrir í leikmann KA29. mín
Átti KA að fá víti?
Marcel Romer með góða fyrirgjöf og Jóan Símun rétt missir af boltanum. Vill meina að varnarmaður Vals hafi ýtt á bakið á sér og allt annað en sáttur að fá ekki víti
22. mín
Aðeins meira líf í KA núna. Álitlegar sóknir en ekkert almennilegt færi ennþá
16. mín
Það verður forvitnilegt að sjá hvernig gestirnir bregðast við þessu
14. mín
Listilega vel gert
Jónatan Ingi Jónsson (stoðsending: Tryggvi Hrafn Haraldsson)
Jónatan fær langa sendingu fram, sýndist það vera Tryggvi sem átti sendinguna. Jónatan leikur á varnarmann KA og á skot sem fer í varnarmann. Hann fær boltann aftur og þá skorar hann.7. mín
Aftur eru Valsmenn í ágætis færi. Aukaspyrna inn á teiginn utan af velli en Patrick náði ekki að stýra boltanum á markið
5. mín
Birkir Heimis nálægt því að skora
Ekkert að gerast og Birkir lætur vaða af löngu færi en boltinn naumlega framhjá
1. mín
Þetta er farið af stað. Heimamenn byrja með boltann
0. mín
Fólk byrjað að týnast í stúkuna. Engin ástæða til annars. Ljómandi fínt veður hérna
0. mín
Spáð í spilin
Jóhann Ingi Hafþórsson á Mogganum situr hérna við hliðina á mér og spáir 2-0 sigri heimamanna. Jónatan og Patrick með börnin
0. mín
Byrjunarliðin eru klár!
Valur gerði 3-3 jafntefli gegn KR í síðasta deildarleik og þjálfari Vals Srdjan Tufegdzic, Túfa, tvær breytingar á liði sínu frá þeim leik. Hólmar Örn Eyjólfsson, fyrirliði Vals, er í leikbanni í dag og í hans stað kemur Marius Lundemo. Patrick Pedersen er með fyrirliðabandið. Lúkas Logi Heimisson kemur þá inn í liðið í stað Albin Skoglund sem er utan hóps í dag. Á bekknum hjá Val eru m.a. þeir Aron Jóhannsson, Kristinn Freyr Sigurðsson og Adam Ægir Pálsson.
KA tapaði 0-4 gegn Víkingi í síðasta deildarleik. Þjálfari KA, Hallgrímur Jónasson, Haddi, gerir tvær breytingar frá þeim leik. Viðar Örn Kjartansson fór meiddur af velli gegn Víkingi og er ekki með í dag. Inn fyrir hann kemur Marcel Römer sem kom frá Lyngby fyrir viku síðan. Þá kemur Kári Gautason inn í liðið fyrir Hrannar Björn Steingrímsson sem sest á bekkinn.
Marcel Römer kemur inn í lið KA

0. mín
Adam Ægir Pálsson er snúinn aftur til Vals eftir að hafa leikið á Ítalíu í vetur. Adam sem fékk félagaskipti á dögunum hélt upp á það með því að skora eitt af þremur mörkum Vals í 3-1 sigri á Grindavík í 32 liða úrslitum Mjólkurbikarsins
„Ég var búinn að hugsa þetta lengi. Mér leið ekki nógu vel þarna úti svo ég ákvað að þetta væri tímasetningin. Það er í raun ein og hálf vika eftir af tímabilinu úti auk umspils og ég bara spurði reglulega hvort ég mætti fara. Loksins fékk ég já og mér fannst þetta rétti tímapunkturinn. Því fyrr sem ég væri kominn í Val og gæti spilað fleiri mínútur og farið að spila fótbolta aftur sem var fyrst og fremst það sem ég var að hugsa,“ sagði Adam í viðtali við Fótbolta.net.
„Mér leið ekki nógu vel þarna úti“

19.04.2025 17:49
Adam Páls: Maður þarf að þroskast líka sem persóna
0. mín
Bæði lið áfram í bikar
Bæði lið fóru áfram í bikarnum um páskana. Valur vann 3-1 sigur gegn Grindavík á meðan KA vann 4-0 sigur gegn KFA
0. mín
KA er enn í leit að sínum fyrsta sigri. Liðið gerði 2-2 jafntefli gegn KR í fyrstu umferð en fékk svo skell gegn Víkingum í seinustu umferð og tapaði 4-0


0. mín
Valsmenn koma inn í leikinn undir pressu en þeir hafa valdið vonbrigðum í fyrstu tveimur leikjunum. Fyrst gerðu þeir jafntefli gegn Vestra í fyrstu umferðinni áður en liðið þurfti að sætta sig við svekkjandi jafntefli gegn KR þar sem jöfnunarmark KR kom úr vítaspyrnu í uppbótartíma. Þá fékk fyrirliðinn, Hólmar Örn Eyjólfsson, rautt spjald og missir því af leiknum í kvöld

0. mín
Komið sæl og verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá viðureign Vals og KA í Bestu deildinni. Leikurinn er liður í 3.umferð deildarinnar.






