Palace opið fyrir því að selja enska tvíeykið - Real Madrid vill að Man Utd nýti endurkaupsrétt sinn á Alvaro - Vardy orðaður við Leeds
Breiðablik
4
0
Víkingur R.
Heiða Ragney Viðarsdóttir '10 1-0
Agla María Albertsdóttir '17 , víti 2-0
Agla María Albertsdóttir '38 3-0
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir '80 4-0
03.05.2025  -  14:00
Kópavogsvöllur
Besta-deild kvenna
Dómari: Brynjar Þór Elvarsson
Maður leiksins: Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Byrjunarlið:
25. Telma Ívarsdóttir (m)
4. Elín Helena Karlsdóttir
5. Samantha Rose Smith ('57)
7. Agla María Albertsdóttir (f) ('78)
8. Heiða Ragney Viðarsdóttir
11. Andrea Rut Bjarnadóttir ('66)
17. Karitas Tómasdóttir
18. Kristín Dís Árnadóttir
22. Heiðdís Lillýardóttir
23. Berglind Björg Þorvaldsdóttir ('78)
28. Birta Georgsdóttir
- Meðalaldur 27 ár

Varamenn:
12. Katherine Devine
14. Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir ('57)
21. Guðrún Þórarinsdóttir ('78)
24. Helga Rut Einarsdóttir ('78)
26. Líf Joostdóttir van Bemmel ('66)
30. Edith Kristín Kristjánsdóttir
40. Lilja Þórdís Guðjónsdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Nik Chamberlain (Þ)
Bjarki Sigmundsson
Edda Garðarsdóttir
Sævar Örn Ingólfsson
Valdimar Valdimarsson
Erna Katrín Óladóttir
Eiríkur Raphael Elvy

Gul spjöld:

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Breiðablik heldur áfram að vinna stórt á heimavelli Brynjar Þór Elvarsson flautar til leikksloka. Öruggur 4-0 sigur Breiðablik staðreynd.

Takk fyrir mig í dag, umfjöllun og viðtöl innan skamms.
90. mín
Þremur mínútum bætt við í Kópavogi.
86. mín
Inn:Gígja Valgerður Harðardóttir (Víkingur R.) Út:Linda Líf Boama (Víkingur R.)
80. mín MARK!
Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Birta Georgsdóttir
Varamaðurinn er kominn á blað Birta Georgsddóttir fær boltann á miðjum vallarhelmingi Víkinga og gerir frábærlega, finnur Hrafnhildi Ásu innfyrir vörn Víkinga og Hrafnhildur klárar frábærlega framhjá Sigurborgu.

Game over.

78. mín
Inn:Helga Rut Einarsdóttir (Breiðablik) Út:Berglind Björg Þorvaldsdóttir (Breiðablik)
78. mín
Inn:Guðrún Þórarinsdóttir (Breiðablik) Út:Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
75. mín
Inn:Júlía Ruth Thasaphong (Víkingur R.) Út:Jóhanna Elín Halldórsdóttir (Víkingur R.)
73. mín
Bergdís fær boltann skoppandi fyrir utan teig og lætur vaða en boltinn framhjá.
68. mín
Birta Georgs keyrir inn á teiginn og reynir að finna Berglindi Björg en Berglind nær ekki að teygja sig í boltann.
66. mín
Inn:Dagný Rún Pétursdóttir (Víkingur R.) Út:Ísfold Marý Sigtryggsdóttir (Víkingur R.)
66. mín
Inn:Líf Joostdóttir van Bemmel (Breiðablik) Út:Andrea Rut Bjarnadóttir (Breiðablik)
65. mín
Síðari hálfleikurinn ekki verið mikil skemmtun ef ég á að vera alveg hreinskilinn en Breiðablik hafa ekkert þurft að skipta um gír enda með þægilegt forskot. Víkingar reyna og reyna en gengur ekkert.
58. mín
Víkingar vinna hornspyrnu.
57. mín
Inn:Hrafnhildur Ása Halldórsdóttir (Breiðablik) Út:Samantha Rose Smith (Breiðablik)
49. mín
Víkingar fá hornspyrnu
47. mín
Berglind Björg fær bolann inn á teiginn en Áslaug með frábæran varnarleik og nær að trufla Berglindi í skotinu.
46. mín
Síðari hálfleikurinn er farinn af stað.
45. mín
Hálfleikur
Brynjar Þór lítur á klukku sína og flautar til hálfleiks. Breiðablik fer með nokkuð þægilegt forskot inn í hálfleikinn.

Tökum okkur pásu í korter og komum síðan með síðari hálfleikinn.
45. mín
Ein mínúta í uppbótartíma
38. mín MARK!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Þriðja markið er komið Agla María fær boltann fyrir utan teig og hamrar boltanum í netið.

Alvöru mark frá Öglu!
34. mín
Víkingar nálægt því að minnka muninn Freyja með frábæran bolta inn á teiginn á Bergdísi sem nær skallanum en boltinn rétt framhjá.
32. mín
Hvað gerðist þarna?? Einhver miskilningur í öftustu línu hjá Víkingum og boltinn berst til Birtu sem er á leiðinni að koma Blikum í 3-0 en Sigurborg ver frábærlega.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Lítið að gerast inni á vellinum þessar síðustu 10 mínútur. Blikarnir halda meira í boltann en hvorugt liðið að skapa sér eitthvað að viti.
21. mín
Birta Georgsdóttir!! Skyndilega er Birta bara sloppin aleinn inn fyrir gegn Sigurborgu og ætlar að leika framhjá henni og setja boltann í netð en snertingin svíkur Birtu og boltinn rúllar afturfyrir.
21. mín
Blikarnir að leita að þriðja markinu Berglind Björg fær boltann inn á teiginn, er með varnarmann í bakinu og nær að snúa og nær fínu skoti en boltinn beint á Sigurborgu
17. mín Mark úr víti!
Agla María Albertsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
Blikar eru að tvöfalda forskot sitt Agla María örugg. Setur boltann niðri í vinstra hornið.
15. mín
BLIKAR FÁ VÍTI!!! Agla María með sturlaðan bolta inn á Birtu sem er sloppinn í gegn og Birta er tekinn niður og Brynjar bendir á punktinn.
11. mín
Víkingar reyna að svara strax Linda Líf keyrir inn á teiginn og nær ágætuskoti á markið en boltinn yfir markið.
10. mín MARK!
Heiða Ragney Viðarsdóttir (Breiðablik)
Stoðsending: Agla María Albertsdóttir
FYRSTA MARKIÐ ER KOMIÐ!! Agla María er með hornspyrnu frá vinstri inn á teiginn og eftir mikinn darraðadans inn á teig Víkinga dettur boltinn fyrir fætur Heiðu sem neglir boltanum í netið

1-0.
8. mín
Breiðablik að vinna hornspyrnu
6. mín
Freyja Steánsdóttir fær boltann inn á teiginn og nær skoti fer beint á Telmu í marki Blika.
1. mín
Leikur hafinn
Game ON Þetta er farið af stað!
Fyrir leik
Þriðja liðið Brynjar Þór Elvarsson sér um að allt fari vel fram í Kópavoginum í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Guðmundur Valgeirsson og Eydís Ragna Einarsdóttir.

Varadómari er Guðni Freyr Ingvason.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Staðan? Ríkjandi Íslandsmeistarar Breiðablik eru á toppi Bestu deildarinnar og er liðið með 7.stig. Liðið hefur unnið tvo og gert eitt jafntefli.

Breiðablik fékk Fram í heimsókn í síðustu umferð og vann liðið stórsigur á nýliðum Fram.

Víkingur Reykjavík situr í 6.sæti deildinnar með þrjú stig. Víkingar eru búnar að vinna einn og tapa tveimur. Víkingart fóru í Laugardalinn í síðustu umferð og töpuðu gegn Þrótti Reykjavík á heimavelli 0-1.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Birta skoraði eitt og átti góðan leik gegn Fram í síðustu umferð.
Fyrir leik
Leikdagur á Kópavogsvelli Góðan og gleðilegan daginn og verið hjartanlega velkomin með okkur í Kópavoginn þar sem Breiðablik tekur á móti Víking Reykjavík í fjórðu umferð Bestu deildar kvenna.

Flautað verður til leiks klukkn 14:00

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Byrjunarlið:
1. Sigurborg K. Sveinbjörnsdóttir (m)
3. Áslaug Dóra Sigurbjörnsdóttir
4. Erna Guðrún Magnúsdóttir
5. Emma Steinsen Jónsdóttir
8. Birta Birgisdóttir
9. Freyja Stefánsdóttir
13. Linda Líf Boama ('86)
16. Jóhanna Elín Halldórsdóttir ('75)
20. Bergþóra Sól Ásmundsdóttir
21. Ísfold Marý Sigtryggsdóttir ('66)
26. Bergdís Sveinsdóttir (f)
- Meðalaldur 21 ár

Varamenn:
30. Eva Ýr Helgadóttir (m)
2. Gígja Valgerður Harðardóttir ('86)
7. Dagný Rún Pétursdóttir ('66)
11. Júlía Ruth Thasaphong ('75)
19. Tara Dís Ármann
22. Birgitta Rún Yngvadóttir
23. Sif Atladóttir
27. Þórdís Hrönn Sigfúsdóttir
28. Rakel Sigurðardóttir
- Meðalaldur 26 ár

Liðsstjórn:
John Henry Andrews (Þ)
Lisbeth Borg
Selma Dögg Björgvinsdóttir
Númi Már Atlason
Ingólfur Orri Gústafsson
Lára Hafliðadóttir
Björn Sigurbjörnsson

Gul spjöld:

Rauð spjöld: