Fotbolti.net
Besta deildin
@fotboltinetSigurður Bibbi Sigurðarson
Besta-deild kvenna
Boginn
Þór/KA
Þór/KA
0 - 3
FH
FH
0 - 122' Valgerður Ósk Valsdóttir 0 - 227' Berglind Freyja Hlynsdóttir0 - 338' Elísa Lana Sigurjónsdóttir
Dómari: Ásmundur Þór Sveinsson

SKÝRSLAN: FH sigur í baráttuleik í Boganum

Hvað réði úrslitum?

Úrslitin réðust á 20 mínútum í fyrri hálfleik þegar FH stelpurnar fengu meiri tíma með boltann og gátu gert það sem þær vildu. Þór/KA var ekki með á nótunum þessar mínútur sem FH nýtti sér vel.

Bestu leikmenn

1. Aldís Guðlaugsdóttir

Þó margar hafi verið tilkallaðar þá hélt Aldís FH inni í leiknum í byrjun þegar heimastelpur óðu í færum. Leikurinn hefði þróast öðruvísi ef hún hefði ekki staðið fyrir sínu.

2. Elísa Lana Sigurjónsdóttir

Var dugleg á miðjunni og sótti vel á Þór/KA. Skoraði gott mark og var mjög eljusöm allan leikinn.

Atvikið

Markvarsla Aldísar á fyrstu mínútu þegar Sandra María slapp ein í gegn gaf gestunum og henni vítamínssprautu um leið og hún var sma´vatnsgusa framan í heimaliðið.

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að FH heldur sér heldur betur í toppbaráttunni en Þór/KA þarf að vinna í sínum málum, einkum að því að nýta færin því þau voru svo sannarlega fyrir hendi í dag.

Vondur dagur

Þetta var ekki dagur Þórs/KA liðsins. Eins og áður sagði var eins og óöryggi kæmist í miðju og vörn í kjölfar fyrsta marks FH og það hjálpaði gestunum að komast þremur mörkum yfir. Þegar Þór/KA náði aftur að koma sér inn í leikinn jafnaðist hann og ef eitthvað þá urðu heimastúlkur ofan á eftir það. En þessar mínútur voru ansi dýrar. Sóknarmenn heimaliðsins hefðu átt að vera búnar að ganga frá leiknum á upphafsmínútum hans en gerðu það ekki. Eins nýttu þær ekki færi sem sköpuðust seinna í leiknum til að koma sér inn í leikinn að nýju.

Dómarinn - 7

Dæmdi vel en hefði mátt taka á FH þegar þær fóru að tefja.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.