Fotbolti.net
Sigríður Dröfn Auðunsdóttir
Mjólkurbikar kvenna
AVIS völlurinn
Þróttur R.
Þróttur R.
6 - 3
Víkingur R.
Víkingur R.
Þórdís Elva Ágústsdóttir 6'1 - 0Þórdís Elva Ágústsdóttir 23'2 - 0Þórdís Elva Ágústsdóttir 35'3 - 0Brynja Rán Knudsen 46'4 - 0Unnur Dóra Bergsdóttir 57'5 - 05 - 160' Dagný Rún Pétursdóttir5 - 262' Bergdís SveinsdóttirSigríður Theód. Guðmundsdóttir 65'6 - 26 - 369' Ísfold Marý Sigtryggsdóttir
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Markaveisla í Laugardal

Hvað réði úrslitum?

Víkingar réðu ekkert við gjörsamlega frábæran sóknarleik Þróttara í dag. Framan af leik lágu Þróttarar í sókn og komust í 5-0 áður en Víkingar mættu til leiks og þá var um seinan.

Bestu leikmenn

1. Þórdís Elva Ágústsdóttir

Þórdís Elva var einfaldlega stórkostleg í dag. Skorar þrjú frábær mörk þar sem mikil gæði hennar koma bersýnilega í ljós. Hún og Caroline náðu virkilega vel saman og komu Þrótturum í sífellu í góðar stöður eftir gott spil á hægri vængnum.

2. Caroline Murray

Sú var öflug á hægri kantinum í dag. Átti tvær fyrirgjafir sem enduðu með marki og í raun hefðu hún hæglega getað lagt upp að minnsta kosti 4 mörk. Það skapaðist alltaf hætta þegar hún komst á sprett upp hægri kantinn. Brynja Rán Knudsen fær líka að vera nefnd á nafn hér en hún átti frábæran leik.

Atvikið

Hér er að nógu að taka. Þegar Þórdís Elva skorar sitt þriðja mark eftir 35 mínútna leik og virtist ætla að klára þennan leik upp á sitt einsdæmi. Aftur á móti var fjörið bara rétt að byrja þá og á 13 mínútna kafla í seinni hálfleik eru skoruð 4 mörk.

Hvað þýða úrslitin?

Þróttarar eru áfram í Mjólkurbikarnum og verða í pottinum þegar dregið verður í 8-liða úrslit en Víkingar hafa lokið leik í keppninni þetta árið.

Vondur dagur

Varnarmenn Víkings fá þetta í dag. Það var mikið um klaufagang og lélegar hreinsanir sem að Þróttarar náðu að nýta sér.

Dómarinn - 7

Vel dæmdur leikur, mögulega eitt - tvö innköst sem voru vafa atriði en annars líklega þægilegur leikur að dæma og hann leyfði leiknum að fljóta vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.