Fotbolti.net
Besta deildin
@BreiiiiiiiiiiiSölvi Haraldsson
Sölvi Haraldsson
Besta-deild karla
Malbikstöðin að Varmá
Afturelding
Afturelding
4 - 3
KR
KR
0 - 16' Guðmundur Andri Tryggvason 0 - 29' Aron SigurðarsonBenjamin Stokke 30'1 - 2Benjamin Stokke 53'2 - 22 - 358' Eiður Gauti SæbjörnssonAron Elí Sævarsson 78'3 - 3Hrannar Snær Magnússon 80'4 - 3
Leik lokið!
AFTURELDING SIGRAR KR!
Mosfellingar jafna KR á stigum og vinna þá í rugluðum leik í Mosfellsbænum í rugluðu veðri. Takk fyrir samfylgdina í dag.
97. mín
Aukaspyrna frá miðjum velli sem fer inn á teiginn og Mosfellingar skalla aftur fyrir í horn en þá er flaggið komið á loft og þetta er svo gott sem komið hjá Aftureldingu.
KR
96. mín
Gult spjald

Finnur Tómas Pálmason

Afturelding
96. mín
Gult spjald

Elmar Kári Enesson Cogic

Afturelding
94. mín
InnSigurpáll Melberg Pálsson
ÚtBjartur Bjarmi Barkarson
KR
94. mín
Gult spjald

Gabríel Hrannar Eyjólfsson

KR
91. mín
Gult spjald

Alexander Helgi Sigurðarson

90. mín
5 mínútur í uppbótartíma
KR
88. mín
Gult spjald

Matthias Præst Nielsen

Afturelding
87. mín
InnBjarni Páll Linnet Runólfsson
ÚtBenjamin Stokke
87. mín
Fáum við einhverja meiri dramatík?
KR
85. mín
InnRóbert Elís Hlynsson
ÚtSigurður Breki Kárason
Afturelding
80. mín
JÁ ÉG SKAL SEGJA YKKUR ÞAÐ!

Hrannar Snær Magnússon (stoðsending: Þórður Gunnar Hafþórsson)

Þórður Gunnar með stórbrotna fyrirgjöf inn á teiginn þar sem Hrannar Snær er mættur og klárar í netið. Þetta er algjör þvæla þessi leikur og einhvernveginn heldur maður að dramatíkin sé rétt að byrja.
KR
79. mín
InnSigurður Breki Kárason
ÚtAlexander Rafn Pálmason
Mjög ung skipting
Afturelding
78. mín
Þeir jafna aftur!

Aron Elí Sævarsson

Já þvílíkur leikur sem við erum að fá hérna. Þórður Gunnar tekur spyrnuna inn á teiginn og það myndast mikið klafs inni á teignum áður en Aron Elí nær að pota boltanum í netið. Fyrirliðinn jafnar og ég held að þetta sé ekki seinasta mark leiksins.
77. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
76. mín
Vallarmetið er slegið!
1180 áhorfendur í Mosfellsbænum sem er nýtt vallarmet á hjá Aftureldingu. Til hamingju með þetta Mosfellingar.
Afturelding
76. mín
InnEnes Þór Enesson Cogic
ÚtAron Jóhannsson
Afturelding
76. mín
InnÞórður Gunnar Hafþórsson
ÚtSævar Atli Hugason
74. mín
Mosfellingar hreinsa eftir misheppnaða útfærslu hjá KR-ingum.
73. mín
KR að fá horn!
71. mín
Sláin!
Elmar Kári tekur hornspyrnu inn á teiginn sem fer á Axel Óskar, hann skallar í slána. Þetta er heldur betur líflegur leikur.
64. mín
Ástbjörn lætur vaða á markið eftir útfærslu á horni hjá KR en skotið hans fer yfir.
63. mín
Eiður Gauti fær bolta í gegn sem hann tekur í fyrsta en Jökull ver aftur fyrir í horn.
KR
60. mín
InnAtli Sigurjónsson
ÚtAron Sigurðarson
KR
58. mín
Skemmtikraftar deildarinnar standa fyrir sínu!

Eiður Gauti Sæbjörnsson (stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson)

Gabríel Hrannar gerir mjög vel og kemur boltanum fyrir markið og þar er Eiður Gauti mjög ákveðinn og stýrir boltanum í netið. Áfram heldur markaveislan áfram í leikjum KR. Þeir hljóta að fara að rukka aukalega fyrir svona veislu í hverri viku.
56. mín
Jökull ver skot Arons Sig af löngu færi.
Afturelding
53. mín
ÞEIR JAFNA!

Benjamin Stokke (stoðsending: Georg Bjarnason)

Georg Bjarna fær boltann við endalínuna og rennir boltanum fyrir markið. Þar er Benjamin Stokke mættur og klárar í netið. Þvílikur leikur hjá Stokke sem er heldur betur að stimpla sig inn í rauðu treyjunni!
51. mín
Præst nær ekki að stýra fyrirgjöf Alexanders Rafns á markið.
KR
46. mín
InnÁstbjörn Þórðarson
ÚtJúlíus Mar Júlíusson
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn!
Gestirnir byrja þetta fyrir okkur á ný!
KR
46. mín
InnJóhannes Kristinn Bjarnason
ÚtGuðmundur Andri Tryggvason
45. mín
KR-ingar leiða í hálfleik.
45. mín
+3 í uppbót
42. mín
Afturelding tekur hornspyrnu stutt sem rennur í sandinn.
38. mín
KR í færi
Aron kemur með góðan bolta inn á teiginn sem fer til Eiðs Gauta. Eiður gerir glæsilega inn á teignum áður en hann tekur skotið rétt framhjá.
Afturelding
30. mín
Stórkostleg afgreiðsla!

Benjamin Stokke (stoðsending: Aron Elí Sævarsson)

Aron Elí keyrir upp vinstri vænginn og kemur boltanum fyrir. Þar er Stokke mættur við vítateigslínuna og klárar í fyrsta stórglæsilega. Skorar sitt fyrsta deildarmark fyrir Aftureldingu með glæsibrag.
KR
29. mín
Gult spjald

Guðmundur Andri Tryggvason

27. mín
Misheppnuð útfærsla hjá Aftureldingu sem KR-ingar höndla vel.
27. mín
Afturelding að fá hornspyrnu!
Aron tekur skot í fyrsta sem Halldór Snær ver stórglæsilega.
19. mín
Mosfellingar verjast þessu vel
19. mín
KR að fá horn!
19. mín
KR-ingar meira með boltann þessar upphafsmínútur og líklegri að bæta við ef eitthvað er.
Afturelding
12. mín
Gult spjald

Sævar Atli Hugason

KR
11. mín
Gult spjald

Hjalti Sigurðsson

Hárrétt spjald.
KR
9. mín
Draumabyrjun KR-inga!

Aron Sigurðarson

Aron Sig tekur aukaspyrnu rétt fyrir utan vítateig Aftureldingar sem fer í netið. Jökull ræður ekki við þetta, góð spyrna hjá Aroni sem kemur KR í 2-0!
KR
6. mín
Frábær byrjun KR!

Guðmundur Andri Tryggvason (stoðsending: Gabríel Hrannar Eyjólfsson)

Aron Sig gerir vel og kemur boltanum á Gabríel Hrannar sem sendir boltann fyrir markið á Guðmund. Guðmundur stýrir boltanum í netið, stöngin inn. Hans fyrsta deildarmark fyrir KR eftir að hafa komið í KR en hann skoraði einnig í bikarnum í vikunni.
1. mín
Þetta er komið í gang!
0. mín
KR-ingar eru ekki að fara að keyra alla leið í Mosó til að skora 1 mark, ekki sjéns, Epic er að bjóða upp á KR yfir 2 mörk á stuðlinum 2,04. Yfir 3,5 mörk leiknum á 1,82 er líka skemmtilegt.
0. mín
Byrjunarliðin komin í hús
Heimamenn gera engar breytingar á liðinu sínu úr seinasta leik þegar þeir fóru vestur á Ísafjörð og töpuðu 2-0 fyrir Vestra. Gestirnir úr Vesturbænum gera allt að þrjár breytingar á liðinu sínu hins vegar. Alexander Helgi Sigurðarson, Guðmundur Andri Tryggvason og Aron Sigurðarson koma inn í liðið fyrir Jóhannes Kristinn Bjarnason, Luke Rae og Aron Þórð Albertsson.
0. mín
Spáð í spilin
Eyþór Aron Wöhler, sóknarmaður Fylkis, spáir í leikina að þessu sinni. Auk þess að vera öflugur fótboltamaður, þá er Eyþór skemmtikraftur utan vallar en hann er partur af tónlistartvíeykinu Húbba Búbba sem var að gefa út lag fyrir EM kvenna núna á dögunum. Afturelding 3 - 0 KR (19:15 í kvöld) ÚFFFFF. Eftir samtal mitt við Axel Andrésar í Krónunni á dögunum tel ég Aftureldingu töluvert sigurstranglegra. Heyrði að Hjalti Úrsus er kominn inn í þjálfarateymið hjá Mosfellingum þannig að ég spái Aftureldingu 2-0 sigri. Andri Freyr hefur ekki skorað í 30 leikjum í röð en hann skorar tvö í þessum leik. Sömuleiðis er nýja Mosólagið með Steinda og Dóra DNA á leiðinni á næstu dögum þannig að þetta gæti dottið í 3-0. Sjökell Andresson neitar að fara í viðtal eftir leik og setur í vörina.
0. mín
Þriðja liðið
Sigurður Hjörtur Þrastason sér um að dæma þennan leik í kvöld, honum til aðstoðar verða þeir Kjartan Már Ólafs og Patrik Freyr Guðmundsson. Guðmundur Páll Friðbertsson er varadómari leiksins en Gylfi Þór Orrason er eftirlitsmaður KSÍ.
0. mín
KR á toppinn?
KR-ingar geta með sigri farið á toppinn, allaveganna tímabundið. Eftir fyrstu 6 leiki deildarinnar eru Vesturbæingar með 10 stig og eru í 4. sætinu, eina ósigraða liðið í deildinni.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
0. mín
Afturelding geta jafnað KR á stigum
Afturelding fór vestu á Ísafjörð í seinustu umferð og töpuðu þar 2-0 gegn Vestra. Mosfellingar eru í 9. sæti eftir fyrstu 6 leikina með 7 stig en með sigri í kvöld geta þeir jafnað KR á stigum sem eru í 4. sætinu.
Mynd: Helgi Þór Gunnarsson
0. mín
Mosó heilsar!
Heilir og sælir ágætu hálsar og veriði hjartanlega velkomin í þessa þraðbeinu textalýsingu fra leik Aftureldingar og KR í Bestu deild karla í kvöld.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.