Man Utd ætlar að hreinsa til í leikmannahópnum - Vardy orðaður við Valencia
Fram
1
0
Tindastóll
Murielle Tiernan '92 1-0
23.05.2025  -  17:30
Lambhagavöllurinn
Besta-deild kvenna
Dómari: Bríet Bragadóttir
Maður leiksins: Murielle Tiernan
Byrjunarlið:
1. Elaina Carmen La Macchia (m)
3. Olga Ingibjörg Einarsdóttir
5. Dominiqe Evangeline Bond-Flasza
6. Katrín Erla Clausen
9. Murielle Tiernan
10. Una Rós Unnarsdóttir ('65)
11. Lily Anna Farkas ('79)
13. Mackenzie Elyze Smith (f)
19. Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
30. Kamila Elise Pickett
35. Telma Steindórsdóttir
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
33. Þóra Rún Óladóttir (m)
7. Alda Ólafsdóttir
8. Karítas María Arnardóttir
18. Júlía Margrét Ingadóttir
20. Freyja Dís Hreinsdóttir
22. Ólína Sif Hilmarsdóttir
23. Ólína Ágústa Valdimarsdóttir ('65)
25. Thelma Lind Steinarsdóttir
77. Eyrún Vala Harðardóttir ('79)
- Meðalaldur 22 ár

Liðsstjórn:
Óskar Smári Haraldsson (Þ)
Svava Björk Hölludóttir
Thelma Björk Theodórsdóttir
Pálmi Þór Jónasson
Gareth Thomas Owen
Kirian Elvira Acosta
Guðlaug Embla Helgadóttir

Gul spjöld:
Katrín Erla Clausen ('51)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Þetta er búið!

Þvílíkur endir á þessum leik, Murielle tryggir Fram gríðarlega mikilvæg þrjú stig.

Skýrsla og viðtöl seinna í kvöld, takk fyrir mig!
92. mín MARK!
Murielle Tiernan (Fram)
Stoðsending: Sara Svanhildur Jóhannsdóttir
FLAUTUMARK??? Vááaá!!

Sara Svanhildur með frábæra fyrirgjöf á nær þar sem Murielle er mætt og stýrir boltanum í netið!!
90. mín
Amk 2 mínútum bætt við Er það nóg fyrir sigurmark?
87. mín
Heimakonur fá hornspyrnu.
85. mín
Það er frekar mikil deyfð yfir þessu og hvorugt liðið mjög líklegt til að setja mark.
84. mín
Birgitta Rún með fyrirgjöf sem Elaina grípur.
81. mín
Eyrún Vala strax farin að láta til sín taka, prjónar sig í gegnum vörnina en nær ekki nógu góðu skoti.
79. mín
Inn:Eyrún Vala Harðardóttir (Fram) Út:Lily Anna Farkas (Fram)
77. mín Gult spjald: Birgitta Rún Finnbogadóttir (Tindastóll )
74. mín
Fram fær aukaspyrnu á hættulegum stað upp við endalínu.
68. mín
Kamila með skot sem Genevieve ver frábærlega.

Fram konur vilja víti og það tryllist allt í stúkunni og á Fram bekknum. Ólína fellur í teignum en virist bara hafa verið samstuð.
65. mín
Inn:Ólína Ágústa Valdimarsdóttir (Fram) Út:Una Rós Unnarsdóttir (Fram)
60. mín
Stólarnir vinna boltann ofarlega á vellinum, Makala fær boltann og snýr af sér Telmu og kemur skoti á markið sem Elaina ver í horn.
58. mín
Tindastóll fær horn.
56. mín
Lily Anna með skot yfir markið.
51. mín Gult spjald: Katrín Erla Clausen (Fram)
Brýtur á Makala sem er að bera boltann upp völlinn eftir hornspyrnuna.
50. mín
Fram fær hornspyrnu.
46. mín
Kamila með skot af löngu færi sem Genevieve á ekki í vandræðum með.
46. mín
Seinni hálfleikur hafinn
45. mín
Hálfleikur
Allt jafnt í hálfleik.

Heimakonur verið sterkari það sem af er og skapað sér fleiri færi.

Við hljótum að fá einhver mörk í seinni hálfleik.
45. mín
Lily Anna með skot rétt yfir markið eftir klafs í teignum í kjölfarið á hornspyrnunni.
45. mín
Fram fær hornspyrnu hinum megin.

Fáum við mark fyrir hlé?
44. mín
María Dögg með fyrirgjöf sem Elaina grípur. Hún hirðir allt sem í teiginn kemur.
41. mín
Góð sókn hjá Fram. Sara, Una og Lily með flott samspil og Una nær svo skoti á markið en Genevieve sér við henni.
39. mín
Fram fær horn.

Una með spyrnuna og boltinn flýgur í gegnum allan teiginn.
37. mín
Sara Svanhildur með boltann á vinstri vængnum, kemur sér skemmtilega í skotstöðu en skotið rétt yfir markið.
35. mín
Tindastóll fær aukaspyrnu á stórhættulegum stað beint fyrir utan teig.

Makala með fast skot rétt yfir markið.
34. mín
Gestirnir í færi Birgitta Rún sleppur ein í gegnum vörn Fram en Elaina ver þetta í horn.
31. mín
Sláin! Fram heldur áfram að liggja í sókn, Una Rós fær boltann við vítateigslínuna og á skot í slá!

Heimakonur mun líklegri í þessum fyrri hálfleik, hálf ótrúlegt að þær séu ekki búnar að skora.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín
Kamila fær boltann út til vinstri og keyrir í átt að markinu, reynir svo fyrirgjöf eða skot og boltinn fer framhjá markinu.
28. mín
Kamila fær sendinguna í gegn og er í góðu færi en Genevieve ver gríðarlega vel.
23. mín
Dominiqe í flottu færi eftir sendingu frá Katrínu Erlu. Fram ansi líklegar þessa stundina!
22. mín
Fram fær hornspyrnu.
21. mín
Inn:Saga Ísey Þorsteinsdóttir (Tindastóll ) Út:Laufey Harpa Halldórsdóttir (Tindastóll )
Laufey Harpa hefur lokið leik í kvöld. Sá ekki hvað gerðist en hún haltraði og settist svo niður.
20. mín
Laufey Harpa liggur eftir og þarf aðhlynningu. Leikurinn stöðvaður.
19. mín
Murielle!! Dominique aftur með geggjaðan bolta inn á teig og Murielle nær snertingunni en boltinn fer rétt framhjá markinu. Stórhættulegt!
18. mín Gult spjald: Snæfríður Eva Eiríksdóttir (Tindastóll )
17. mín
Birgitta með hættulega fyrirgjöf en Elaina er örugg í teignum og nær til boltans.
13. mín
Sara Svanhildur reynir skot rétt fyrir utan teiginn en Genevieve gerir vel og ver þetta.
13. mín
Murielle með skalla rétt framhjá markinu eftir fyrirgjöf frá Dominique.
9. mín
TINDASTÓLL Genevieve
María Dögg - Nicola - Bryndís - Kathrine
Snæfríður
Lara Margrét - Hrafnhildur Salka
Laufey Harpa - Makala - Birgitta Rún

sirka svona.
8. mín
FRAM Elaina
Dominiqe - Olga - Telma - Kamila
Mackenzie
Lily - Katrín Erla
Una - Murielle - Sara Svanhildur
7. mín
Tindastóll fær aukaspyrnu í góðri fyrirgjafarstöðu eftir að brotið var á Makala.

Framarar skalla frá.
5. mín
Katrín Erla með fína skottilraun fyrir utan teig en boltinn fer yfir markið.
2. mín
Stólarnir sækja hornspyrnu.

Laufey Harpa tekur spyrnuna og hún fer beint í hendurnar á Elaina.
1. mín
Þetta er farið af stað! Gestirnir hefja leik og sækja í átt að sundlauginni.
Fyrir leik
Byrjunarliðin Tvær breytingar á liði Fram frá tapinu gegn Þór/KA. Telma Steindórs og Katrín Erla Clausen koma inn fyrir Öldu Ólafs og Freyju Dís.

Hjá Tindastól kemur Lara Margrét inn í liðið fyrir Elísu Bríet sem er fjarri góðu gamni í kvöld.
Fyrir leik
Eigum von á jöfnum leik hér í dag en samkvæmt stuðlunum á Epic eru Framarar aðeins líklegri til sigurs á stuðlinum 2,20 á meðan stuðullinn á gestina frá Sauðárkróki er 2,90.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Spáin Guðrún Karítas Sigurðardóttir sóknarmaður Fylkis spáir í leiki 6. umferðarinnar. Svona spáir hún í þennan leik:

Fram 1 – 3 Tindastóll
Eftir sterkan sigur í síðustu umferð mun Tindastóll halda áfram á sigurbraut og tryggja sér góðan útisigur gegn Fram. Elísa Bríet mun skora eitt mark og Makala Woods mun nýta hraðann sinn vel til að bæta við tveimur mörkum. Alda mun svara fyrir Fram og minnka muninn, en það mun ekki nægja til að ná í stig að þessu sinni.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Makala Woods
Fyrir leik
Frítt á völlinn!
Fyrir leik
Systkinaslagur Alvöru systkinaslagur í kvöld þar sem Óskar Smári þjálfari Fram mætir systur sinni, Bryndísi Rut sem er fyrirliði Tindastóls.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Liðin eru jöfn í deildinni Liðin sitja í 7. og 8. sæti deildarinnar með sex stig eftir sex leiki. Tindastóll er með betri markatölu.

Fram fékk Þór/KA í heimsókn í síðustu umferð og tapaðast leikurinn 1-3. Murielle Tiernan skoraði mark Fram.

Tindastóll gerði sér góða ferð í Fossvoginn og unnu 1-4 sigur á Víkingum. Elísa Bríet gerði tvö mörk og Makala Woods og Birgitta Rún gerðu skoruðu eitt hvor.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Elísa Bríet skoraði tvö gegn Víking
Fyrir leik
Gleðilegan föstudag! Verið velkomin í beina textalýsingu frá Lambhagavellinum þar sem Fram tekur á móti Tindastól í sjöundu umferð Bestu deildar kvenna.

Leikar hefjast kl. 17:30.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
1. Genevieve Jae Crenshaw (m)
3. Bryndís Rut Haraldsdóttir (f)
4. Hrafnhildur Salka Pálmadóttir
6. Laufey Harpa Halldórsdóttir ('21)
9. María Dögg Jóhannesdóttir
11. Snæfríður Eva Eiríksdóttir
13. Birgitta Rún Finnbogadóttir
14. Lara Margrét Jónsdóttir
18. Katherine Grace Pettet
21. Nicola Hauk
27. Makala Woods
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Sigríður H. Stefánsdóttir (m)
2. Saga Ísey Þorsteinsdóttir ('21)
5. Bergljót Ásta Pétursdóttir
17. Katla Guðný Magnúsdóttir
23. Magnea Petra Rúnarsdóttir
- Meðalaldur 19 ár

Liðsstjórn:
Konráð Freyr Sigurðsson (Þ)
Halldór Jón Sigurðsson (Þ)
Margrét Ársælsdóttir
Nikola Stoisavljevic

Gul spjöld:
Snæfríður Eva Eiríksdóttir ('18)
Birgitta Rún Finnbogadóttir ('77)

Rauð spjöld: