Fotbolti.net
Besta deildin
@GunnarBjarturGunnar Bjartur Huginsson
Besta-deild karla
AVIS völlurinn
10° og smá vindkæling
KR
KR
2 - 3
Fram
Fram
0 - 117' Jakob ByströmAron Sigurðarson 20'1 - 11 - 223' Jakob Byström1 - 325' Vuk Oskar DimitrijevicAron Sigurðarson 69'2 - 3
Dómari: Elías Ingi Árnason

SKÝRSLAN: Markaleikur og með því á AVIS-vellinum

Hvað réði úrslitum?

Mörk og einstaklingsgæði, þó það sé asnalegt að segja það. Bæði lið hefðu hæglega geta skorað fleiri mörk en í þetta skiptið skoruðu Framarar bara fleiri. Auk þess sáum við gríðarleg gæði frá Tibbling og Byström fyrir gestina og hið sama má segja um Aron Sigurðarson, fyrirliða heimamanna. Svo vil ég nefna markvörslu en Viktor varði oft feykilega vel.

Bestu leikmenn

1. Jakob Byström

Þvílík byrjun í frumraun sinni í Bestu deildinni. Skorar tvö frábær mörk og skapaði mikinn usla. Einnig vert að nefna Simon Tibbling í þessu samhengi.

2. Aron Sigurðarson

Ótrúleg frammistaða í kvöld og ef við horfum á leikinn burtséð frá úrslitum, þá var hann besti leikmaður vallarins í kvöld. Tvö mörk frá honum úr hæsta gæðaflokki.

Atvikið

Í raun og veru þessi tvö stórkostlegu mörk sem Aron Sigurðarson skorar. Þetta sér maður ekki oft og hvað þá í sama leiknum. Má einnig nefna atvikið þegar FInnur Tómas missir hausinn og uppsker rautt spjald (seinna gula).

Hvað þýða úrslitin?

Úrslitin þýða að Framarar fara úr áttunda sæti og taka við 4. sætinu af KR-ingum. KR-ingar falla niður í fimmta sætið úr því fjórða.

Vondur dagur

Þetta verður að skrifast á Finn Tómas fyrir seinna gula spjaldið og þ.a.l. rauða spjaldið, sem hann fær. Lætur Guðmund Magnússon veiða sig í þetta. Vörnin fær auk þess þrjú mörk á sig.

Dómarinn - 7

Elías Ingi leyfði leiknum mikið að fljóta og dæmdi þetta bara nokkuð vel.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.