Fotbolti.net
Besta deildin
@Johannthor21Jóhann Þór Hólmgrímsson
Besta-deild kvenna
Boginn
Þór/KA
Þór/KA
1 - 0
Stjarnan
Stjarnan
Sandra María Jessen 21'1 - 0
Dómari: Stefán Ragnar Guðlaugsson

SKÝRSLAN: Þór/KA hélt hreinu í fyrsta sinn

Hvað réði úrslitum?

Þór/KA var með yfirhöndina og markamaskínan Sandra María Jessen má ekki fá sekúndu á boltann til að skora.

Bestu leikmenn

1. Sandra María Jessen

Skorar markið sem skildi liðin að. Það er ekkert vafamál hversu mikilvæg hún er þessu liði enda einn besti leikmaður deildarinnar.

2. Jessica Grace Berlin

Var örugg í rammanum og þurfti einu sinni að taka á honum stóra sínum þegar hún varði vel frá Hrefnu Jónsdóttur.

Atvikið

Úlfa Dís féll í teig Þór/KA á 37. mínútu en ekkert dæmt. Tel að það hafi verið réttur dómur

Hvað þýða úrslitin?

Þrír sigrar í röð hjá Þór/KA sem situr í 4. sæti með 15 stig, stigi á eftir toppliðunum þremur. Fyrsta sinn sem liðið heldur hreinu í deildinni á tímabilinu. Stjarnan er í 6. sæti með níu stig en liðið hafði unnið þrjá af síðustu fjórum leikjunum fyrir leik dagsins.

Vondur dagur

Sóknarleikur Stjörnunnar heldur bitlaus í dag. Þurfa að gera miklu betur.

Dómarinn - 7

Flottur leikur hjá teyminu. Eina mögulgea umdeilda atvikið var vítakall Stjörnunnar sem teymið var með á hreinu.
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.