
Fylkir
1
2
Leiknir R.

0-1
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson
'21
0-2
Þorsteinn Emil Jónsson
'59
Þóroddur Víkingsson
'62
1-2
04.06.2025 - 19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Djorde Vladisavljevic, Leiknir
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Maður leiksins: Djorde Vladisavljevic, Leiknir
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson

3. Arnór Breki Ásþórsson
('60)

5. Orri Sveinn Segatta
7. Tumi Fannar Gunnarsson

9. Eyþór Aron Wöhler
('71)

10. Benedikt Daríus Garðarsson
('60)

11. Pablo Aguilera Simon
17. Birkir Eyþórsson
('60)

19. Arnar Númi Gíslason
77. Bjarki Steinsen Arnarsson
('60)
- Meðalaldur 25 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
6. Þorkell Víkingsson
13. Þórður Ingi Ingimundarson
('60)

14. Þóroddur Víkingsson
('60)


15. Axel Máni Guðbjörnsson
('60)

20. Theodór Ingi Óskarsson
('60)


34. Guðmar Gauti Sævarsson
('71)
- Meðalaldur 20 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Sævar Snær Pálsson
Ólafur Engilbert Árnason
Gul spjöld:
Tumi Fannar Gunnarsson ('32)
Ásgeir Eyþórsson ('77)
Theodór Ingi Óskarsson ('96)
Rauð spjöld:
Leik lokið!
Leiknum er lokið með 1 - 2 sigri Leiknis. Ágúst Gylfason skilar sigri í fyrsta leik og fjórða stigi liðsins í sumar. Fylkir enn með fimm stig eftir sex leiki. Viðtöl og skýrsla koma síðar í kvöld.
96. mín
Gult spjald: Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)

Theódór fór illa með Dusan, lék að marki þar sem Djorde varði boltann, Fylkismenn segja með hendi. Theódór fær gult fyrir að kvarta.
94. mín
Tvær mínútur eftir og Fylkir fær sitt annað horn á stuttum tíma. Ekkert kom út úr því.
87. mín

Inn:Aron Einarsson (Leiknir R.)
Út:Sindri Björnsson (Leiknir R.)
Fjórða skipting Leiknis.
86. mín
Hvað heyrist oftast í stúkunni, nei hvorki Leiknir eða Fylkir eða álíka stuðningur. Hér er stöðugt öskrað "Dómari!" af pirringi út í hvernig Leiknir nær að hægja á leiknum.
83. mín
Axel Freyr spólar framhjá fjórum og á gott skot að marki sem Ólafur Kristófer ver.
81. mín
Axel liggur í smá tíma í grasinu en þarf ekki aðhlynningu. Leiknismenn klókir að ganga á klukkuna.
78. mín
Það er farið að fara verulega í taugarnar á mætum mönnum í Fylkisstúlkunni hvað Leiknir nær að hægja á leiknum og tefja. Þeir láta vel í sér heyra en þetta er bara eðlilegt upplegg hjá Leiknisliðinu sem er yfir í leiknum og að taka sér tíma í þetta allt.
71. mín

Inn:Guðmar Gauti Sævarsson (Fylkir)
Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
Síðasta skipting Fylkis í kvöld. Eyþór hefur ekki enn skorað mark í sumar.
70. mín
Pablo með skot rétt framhjá marki Leiknis, boltinn fór í andstæðing svo það er horn sem ekkert kom úr.
62. mín
MARK!

Þóroddur Víkingsson (Fylkir)
Stoðsending: Arnar Númi Gíslason
Stoðsending: Arnar Númi Gíslason
Skiptingin er aldeilis að skila sér. Eftir fyrigjöf Núma frá vinstri sem kom innarlega á teiginn fékk Þóroddur boltann og náði að pota af stuttu færi með hægri.
60. mín

Inn:Þórður Ingi Ingimundarson (Fylkir)
Út:Birkir Eyþórsson (Fylkir)
Þolinmæðin brostin hjá Árna Frey Guðnasyni þjálfara Fylkis sem gerir fjórfalda skiptingu beint eftir markið.
59. mín
MARK!

Þorsteinn Emil Jónsson (Leiknir R.)
Stoðsending: Axel Freyr Harðarson
Stoðsending: Axel Freyr Harðarson
Frábær einleikur hjá Axel Frey Harðarsyni sem skildi nokkra Fylkismenn eftir og fór að markinu þar sem hann renndi fyrir markið á Þorstein Emil sem renndi boltanum í tómt markið. Leiknir komnir í 0 - 2.
54. mín
Óli Íshólm staðinn upp aftur svo leikur getur hafist að nýju. Fylkismenn í stúkunni eru orðnir þreyttir á sínum gamla liðsfélaga og krefjast þess ítrekað að leikurinnn haldi áfram, þrátt fyrir að sjúkaþjálfari hafi verið að huga að Ólafi.
53. mín
Ólafur Íshólm liggur meiddur á vellinum. Skömmu áður hafði Djorde Vladisavljevic bjargað hættulegu færi. Hann hefur verið mjög öflugur í vörn Leiknis og varið skot Fylkismanna hvað eftir annað.
49. mín
Gult spjald: Axel Freyr Harðarson (Leiknir R.)

Hrinti Bjarka Steini eftir að dæmd hafði verið aukaspyrna.
46. mín
Leikur hafinn
Komið í gang að nýju
Þetta er komið í gang að nýju. Engar breytingar voru gerðar á liðunum í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Kominn hálfleikur í Árbænum. Gestirnir í Leikni leiða með einu marki gegn engu. Sjáumst aftur að vörmu spori.
39. mín
Langur bolti inn í teig á Bjarka Steinsen sem náði engu valdi á honum og lélegt skot.

Er kominn tími á pizzu?
Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
31. mín
Númi fær skammir frá Helga Mikael fyrir að láta sig falla í teignum eftir baráttu við Bogdan Bogdanovic sem stal af honum boltanum. Ekkert spjald á loft samt.
29. mín
Leiknismenn eru bara byrjaðir að tefja. Ólafur Íshólm tekur sér langan tíma í markspyrnu og nú var Dusan Brkovic að stoppa til að reima skóna.
25. mín
Gult spjald: Anton Fannar Kjartansson (Leiknir R.)

Gult spjald fyrir að tefja þegar hann tók innkast. Það er nú 25. mínúta hinkrum aðeins með þetta.
21. mín
MARK!

Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (Leiknir R.)
Gestirnir eru komnir yfir. Eftir hornspyrnu fékk Dagur Ingi boltann í teignum og afgreiddi hann snyrtilega í markið í gegnum þvöguna. Leiknir komið í 0-1 sem er nokkuð gegn gangi leiksins.
15. mín
Fyrsta Leiknismyndin af Gústa Gylfa
Haukur Gunnarsson ljósmyndari er mættur á völlinn. Hér kemur fyrsta myndin af Gústa Gylfa að stýra Leikni sem Haukur var að smella af.

13. mín
Númi lék á varnarmann og átti góðan sprett sem endaði á skoti að marki sem Djorde Vladisavljevic varði í horn. Fylkismennn eru mikið sprækari fyrsta stundarfjórðunginn en varnarmenn Leiknis loka því sem fer í átt að marki.
8. mín
Pablo sendi inn í teiginn á Eyþór Wöhler í skotfæri en varnarmenn Leiknis aftur að komast í veg fyrir boltann.
3. mín
Pablo Simon í góðu færi eftir sendingu frá Benedikt Daríus en varnarmenn Leiknis komast í veg fyrir boltann.
2. mín
Arnar Númi Gíslason spilar á hægri kantinum í dag en ekki vinstri bakverðinum eins og vanalega. Hann komst í fyrsta færið, fékk boltann upp á kantinn og þrumaði að marki en Ólafur Íshólm varði frá honum.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er byrjað!
Leiknir byrjar með boltann og leikur í átt að heimavelli sínum í Breiðholtinu.
Fyrir leik
Stutt í leik
Liðin eru komin út á völl. Fylkismenn í blöndu af appelsínugulum og svörtum búningum og Leiknir í blöndu af bláu og fjólubláu að vanda. Helgi Mikael dómari fer að kasta upp pening og sjá hver fær að byrja með boltann.
Fyrir leik
Nokkrar breytingar hjá báðum liðum
Fylkir tapaði 4-1 gegn Þór á Akureyri í síðustu umferð. Frá þeim leik er fyrirliðinn Ragnar Bragi Sveinsson kominn á meiðslalistann og Árni Freyr Guðnason gerir fleiri breytingar.
Benedikt Daríus Garðarsson, Pablo Aguilera og Bjarki Steinsen Arnarsson koma inn fyrir Ragnar Braga, Theódór Inga Óskarsson og Aron Snæ Guðbjörnsson.
Leiknir
Ágúst Gylfson gerir nokkrar breytingar á Leiknisliðinu í sínum fyrsta leik með liðinu. Liðið tapaði 2-6 heima gegn Grindavík um daginn og frá þeim leik gerir Ágúst fjórar breytingar.
Jón Arnar Sigurðsson, Gísli Alexander Ágústsson, Róbert Quental og Jóhann Tjörvason fara út.
Inn koma þeir Shkelzen Veseli, Djorde Vladisavlejevic, Kári Steinn Hlífarsson og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson.
Benedikt Daríus Garðarsson, Pablo Aguilera og Bjarki Steinsen Arnarsson koma inn fyrir Ragnar Braga, Theódór Inga Óskarsson og Aron Snæ Guðbjörnsson.
Leiknir
Ágúst Gylfson gerir nokkrar breytingar á Leiknisliðinu í sínum fyrsta leik með liðinu. Liðið tapaði 2-6 heima gegn Grindavík um daginn og frá þeim leik gerir Ágúst fjórar breytingar.
Jón Arnar Sigurðsson, Gísli Alexander Ágústsson, Róbert Quental og Jóhann Tjörvason fara út.
Inn koma þeir Shkelzen Veseli, Djorde Vladisavlejevic, Kári Steinn Hlífarsson og Dagur Ingi Hammer Gunnarsson.
Fyrir leik
Sagan er með Leikni fyrir leikinn
Sagan er með Leiknismönnum fyrir leik kvöldsins en undanfarin tíu ár hafa liðin mæst 10 sinnum. Fylkir hefur unnið tvo af þeim leikjum, tveimur hefur lokið með jafntefli og Leiknir hefur unnið sex.
Á morgun eru 8 ár síðan Fylkir náði síðast að vinna Leikni. Það var 4. júní 2017 hér í Árbænum þegar völlurinn hét Flórídanavöllurinn. Fylkir vann þá 2-0 með mörkum Hákons Inga Jónssonar og Orra Sveins Segatta.
Frá þeim leik er miðvarðarparið Ásgeir Eyþórsson og Orri Sveinn líka í byrjunarliðinu en enginn í Leiknisliðinu. Daði Bærings Halldórsson fyrirliði Leiknis var á bekknum í þeim leik.
Þá þjálfaði Kristófer Sigurgeirsson Leikni en hann er í dag aðstoðarþjálfari Fylkis.
Á morgun eru 8 ár síðan Fylkir náði síðast að vinna Leikni. Það var 4. júní 2017 hér í Árbænum þegar völlurinn hét Flórídanavöllurinn. Fylkir vann þá 2-0 með mörkum Hákons Inga Jónssonar og Orra Sveins Segatta.
Frá þeim leik er miðvarðarparið Ásgeir Eyþórsson og Orri Sveinn líka í byrjunarliðinu en enginn í Leiknisliðinu. Daði Bærings Halldórsson fyrirliði Leiknis var á bekknum í þeim leik.
Þá þjálfaði Kristófer Sigurgeirsson Leikni en hann er í dag aðstoðarþjálfari Fylkis.

Fyrir leik
Lítið skorað
Þessi lið hafa ekki farið mikinn við markaskorun í fyrstu umferðunum en þó aðeins náð að koma boltanum í netið. Fylkir sex sinnum og Leiknir fjórum sinnum. Þetta eru markaskorararnir.
Fylkir
Pablo Aguilera (2)
Ásgeir Eyþórsson (1)
Benedikt Daríus Garðarsson (1)
Orri Sveinn Segatta (1)
Tumi Fannar Gunnarsson (1)
Leiknir
Axel Freyr Harðarson (1)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (1)
Djorde Vladisavljecic (1)
Shkelzen Veseli (1)
Fylkir
Pablo Aguilera (2)
Ásgeir Eyþórsson (1)
Benedikt Daríus Garðarsson (1)
Orri Sveinn Segatta (1)
Tumi Fannar Gunnarsson (1)
Leiknir
Axel Freyr Harðarson (1)
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson (1)
Djorde Vladisavljecic (1)
Shkelzen Veseli (1)

Fyrir leik
Dómarateymið
KSÍ fer í efstu hillu við val á dómara á þennan leik því Helgi Mikael Jónasson er með flautuna að þessu sinni.
Hann er með þá Arnþór Helga Gíslason og Kristófer Bergmann sér til aðstoðar á línunum en enginn skiltadómari er að þessu sinni.
Bergur Þór Steingrímsson er svo sendur frá KSÍ til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.
Hann er með þá Arnþór Helga Gíslason og Kristófer Bergmann sér til aðstoðar á línunum en enginn skiltadómari er að þessu sinni.
Bergur Þór Steingrímsson er svo sendur frá KSÍ til að hafa eftirlit með störfum dómara og umgjörð leiksins.

Fyrir leik
Staðan í deildinni
1.Njarðvík - 11 stig (+10)
2.ÍR - 11 stig (+6)
3.Þór - 10 stig (+5)
4.Þróttur R. - 10 stig (+3)
5.Keflavík - 9 stig (+6)
6.HK - 8 stig (+2)
7.Grindavík - 7 stig (+4)
8.Völsungur - 6 stig (-6)
9.Fylkir - 5 stig (-2)
10.Selfoss - 3 stig (-8)
11.Fjölnir - 2 stig (-6)
12.Leiknir R. - 1 stig (-14)
2.ÍR - 11 stig (+6)
3.Þór - 10 stig (+5)
4.Þróttur R. - 10 stig (+3)
5.Keflavík - 9 stig (+6)
6.HK - 8 stig (+2)
7.Grindavík - 7 stig (+4)
8.Völsungur - 6 stig (-6)
9.Fylkir - 5 stig (-2)
10.Selfoss - 3 stig (-8)
11.Fjölnir - 2 stig (-6)
12.Leiknir R. - 1 stig (-14)
Fyrir leik
Leiknir rak Óla Hrannar - Gústi Gylfa mættur
Eftir 2-6 tap gegn Grindavík heima í síðustu umferð brást Leiknismönnum þolinmæðin og Ólafir Hrannar Kristjánsson þjálfari liðsins var látinn taka poka sinn. Eftirmaðurinn fannst hratt því gamli refurinn Ágúst Gylfason er tekinn við liðinu og stýrir sínum fyrsta leik í dag.

Fyrir leik
Bæði lið hafa valdið vonbrigðum
Bæði lið hafa valdið miklum vonbrigðum það sem af er tímabilinu og ljóst að stigin þrjú verða mikilvæg nái annað liðið að vinna.
Flestir bjuggust við að Fylkir myndi rúlla yfir deildina og verða langefst en það er víðs fjarri.
Eftir fyrstu fimm umferðirnar er liðið bara með fimm stig. Þeir unnu Selfoss, gerði jafntefli við Njarðvík og Fjölni en töpuðu fyrir Þrótti og Þór í síðustu tveimur umferðum. Þetta skilar þeim í 9. sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins.
Leikir Fylkis:
Njarðvík 1 1- Fylkir
Fylkir 2-0 Selfoss
Fjölnir 1-1 Fylkir
Fylkir 1-2 Þróttur
Þór 4-1 Fylkir
Leiknir er í mun verri málum. Eru í botnsætinu og hafa aðeins fengið eitt stig í leikjunum fimm sem kom í jafntefli úti gegn Þrótti í 1. umferðinni. Í kjölfarið komu fjórir tapleikir og liðið hefur fengið á sig 18 mörk, þar af fengu þeir sex mörk á sig síðustu tvo leiki í röð.
Leikir Leiknis:
Þróttur 1-1 Leiknir
Leiknir 0-1 HK
Keflavik 6-0 Leiknir
Grindavík 2-6 Leiknir
Flestir bjuggust við að Fylkir myndi rúlla yfir deildina og verða langefst en það er víðs fjarri.
Eftir fyrstu fimm umferðirnar er liðið bara með fimm stig. Þeir unnu Selfoss, gerði jafntefli við Njarðvík og Fjölni en töpuðu fyrir Þrótti og Þór í síðustu tveimur umferðum. Þetta skilar þeim í 9. sæti deildarinnar fyrir leik kvöldsins.
Leikir Fylkis:
Njarðvík 1 1- Fylkir
Fylkir 2-0 Selfoss
Fjölnir 1-1 Fylkir
Fylkir 1-2 Þróttur
Þór 4-1 Fylkir
Leiknir er í mun verri málum. Eru í botnsætinu og hafa aðeins fengið eitt stig í leikjunum fimm sem kom í jafntefli úti gegn Þrótti í 1. umferðinni. Í kjölfarið komu fjórir tapleikir og liðið hefur fengið á sig 18 mörk, þar af fengu þeir sex mörk á sig síðustu tvo leiki í röð.
Leikir Leiknis:
Þróttur 1-1 Leiknir
Leiknir 0-1 HK
Keflavik 6-0 Leiknir
Grindavík 2-6 Leiknir
Byrjunarlið:
1. Ólafur Íshólm Ólafsson (m)
3. Bogdan Bogdanovic
('67)

5. Daði Bærings Halldórsson (f)
8. Sindri Björnsson
('87)


10. Shkelzen Veseli
('67)

19. Axel Freyr Harðarson

20. Dagur Ingi Hammer Gunnarsson

25. Dusan Brkovic
43. Kári Steinn Hlífarsson
('54)

45. Djorde Vladisavljevic
55. Anton Fannar Kjartansson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
12. Hilmar Örn Pétursson (m)
4. Patryk Hryniewicki
6. Jón Arnar Sigurðsson
('67)

7. Róbert Quental Árnason
('67)

14. Davíð Júlían Jónsson
22. Þorsteinn Emil Jónsson
('54)



44. Aron Einarsson
('87)
- Meðalaldur 21 ár

Liðsstjórn:
Nemanja Pjevic (Þ)
Ágúst Þór Gylfason (Þ)
Ósvald Jarl Traustason
Ari Þór Kristinsson
Halldór Fannar Júlíusson
Konráð Grétar Ómarsson
Gul spjöld:
Anton Fannar Kjartansson ('25)
Sindri Björnsson ('32)
Axel Freyr Harðarson ('49)
Þorsteinn Emil Jónsson ('61)
Rauð spjöld: