
Stjórn Leiknis tók þá ákvörðun eftir tapleikinn gegn Grindavík á föstudagskvöld að láta þjálfarann, Óla Hrannar Kristjánsson, fara.
Árangur liðsins í upphafi móts er óviðunandi og fékk liðið á sig sex mörk bæði gegn Keflavík og Grindavík sem voru tveir síðustu leikir Óla í starfi.
Liðið er með eitt stig og markatölun 4:18 eftir fimm leiki.
Árangur liðsins í upphafi móts er óviðunandi og fékk liðið á sig sex mörk bæði gegn Keflavík og Grindavík sem voru tveir síðustu leikir Óla í starfi.
Liðið er með eitt stig og markatölun 4:18 eftir fimm leiki.
„Það var bara þjálfarinn, Óli, sem var látinn fara, þjálfarateymið sem var með honum hefur stýrt æfingum."
„Það er ekki búið að ráða þjálfara, svo já (Nemanja Pjevic) er að fara stýra leiknum á miðvikudaginn, ég ætla ekki að gera það," segir Oscar Clausen, formaður Leiknis, í dag.
Nemanja Pjevic, Ari Þór Kristinsson og Ósvald Jarl Traustason voru skráðir aðstoðarþjálfarar í síðasta leik.
„Það eru einhverjir fundir í gangi, þetta skýrist vonandi mjög fljótlega."
Stóru vonbrigðin eru væntanlega þau að þið teljið ykkur vera með betri hóp en þetta?
„Það held ég að hljóti að vera. En flestir eru blindir á sitt eigið ágæti, kannski erum við ekki með betri hóp, ég veit það ekki," segir Oscar.
Leiknir heimsækir Fylki tekk VÖLLINN á miðvikudagskvöldið í 6. umferð Lengjudeildarinnar.
Lengjudeild karla
Lið | L | U | J | T | Mörk | mun | Stig |
---|---|---|---|---|---|---|---|
1. Njarðvík | 5 | 3 | 2 | 0 | 14 - 4 | +10 | 11 |
2. ÍR | 5 | 3 | 2 | 0 | 8 - 2 | +6 | 11 |
3. Þór | 5 | 3 | 1 | 1 | 15 - 10 | +5 | 10 |
4. Þróttur R. | 5 | 3 | 1 | 1 | 10 - 7 | +3 | 10 |
5. Keflavík | 5 | 3 | 0 | 2 | 13 - 7 | +6 | 9 |
6. HK | 5 | 2 | 2 | 1 | 7 - 5 | +2 | 8 |
7. Grindavík | 5 | 2 | 1 | 2 | 17 - 13 | +4 | 7 |
8. Völsungur | 5 | 2 | 0 | 3 | 6 - 12 | -6 | 6 |
9. Fylkir | 5 | 1 | 2 | 2 | 6 - 8 | -2 | 5 |
10. Selfoss | 5 | 1 | 0 | 4 | 3 - 11 | -8 | 3 |
11. Fjölnir | 5 | 0 | 2 | 3 | 6 - 12 | -6 | 2 |
12. Leiknir R. | 5 | 0 | 1 | 4 | 4 - 18 | -14 | 1 |
Athugasemdir