SKÝRSLAN: Áhyggjur í Árbænum aukast og gott stig til Grindavíkur
Hvað réði úrslitum?
Fylkir byrjaði betur og náðu sanngjarnt forystunni. Hefðu átt að bæta í en tókst það ekki og það var jafnt í hlé. Fylkismenn stýrðu leiknum svona heilt yfir þó Grindvíkignar fengu sín áhlaup. Grindavík jafnar með marki beint úr hornspyrnu. Varnarlega voru Grindvíkingar öflugir en Fylkir horfir á þetta sem tvö töpuð stig á meðan Grindvíkingar virða stigið.
Bestu leikmenn
1. Dennis Nieblas
Fær þetta fyrir hönd varnarleiks Grindavíkur sem stóðu af sér þó nokkrar álitlega stöður Fylkis. Enginn sem skaraði fram úr í kvöld svo hann fær þetta fyrir hönd varnarmanna.
2. Þóroddur Víkingsson
Skoraði gott mark og var að koma sér í stöður. Fannst hann gefa Grindvíkingum oft eitthvað að díla við en heilt yfir erfitt að fylla þessa reiti eftir leikinn.
Atvikið
Í uppbótartíma virðist Eyþór Aron Wöhler ná að skalla boltann innfyrir markínuna en Grindvíkingar ná að henda sér í boltann og koma honum burt. Teymið gaf ekki markið en þetta hefði verið risastórt mark ekki bara fyrir Fylki heldur fyrir Eyþór Aron Wöhler að komast á blað í sumar. Það vill stundum vera að "When it rains, it pours"
Hvað þýða úrslitin?
Stigið gerir lítið fyrir Fylki sem lyftir sé þó upp í 9.sætið uppfyrir Leikni. Grindavík fer með markatölunni upp í 4.sætið um stundarsakir hið minnsta.
Vondur dagur
Ekki vegna slæmrar frammistöðu heldur meiðsla. Ragnar Bragi fer kannski svekktastur frá vellinum með meiðsli aftan í læri í kvöld. Aftur... When it rains, it pours.
Dómarinn - 5
Erfitt að meta [Sjá atvikið] hvort það hafi verið réttur dómur en það er risastórt atvik. Alls ekki fullkomin dómgæsla í kvöld en sleppum þessu með fimmu. Gef teyminu að einhverju leyti smá vafa. [Leyfi því að fylgja í sviga ef boltinn er inni þá dreg ég þetta niður en ég veit ekki hvort ég fái nokkurtíman að sjá það]



