SKÝRSLAN: Elska að vera pirrandi og leiðinlegir
Hvað réði úrslitum?
Það er rosalega erfitt að lenda undir gegn ÍR á þeirra heimavelli. Þeir elska að vera pirrandi og leiðinlegir, ef svo má að orði komast, og það á bara að vera einkenni ÍR. Það passar einhvern veginn svo vel. ÍR-ingar náðu forystunni í dag og voru sterkir varnarlega eftir það. Leiknir fékk sín færi í seinni hálfleik en þetta datt með heimamönnum og þeir lönduðu sterkum sigri.
Bestu leikmenn
1. Óðinn Bjarkason (ÍR)
Gríðarlegur kraftur í Óðni á hægri vængnum. Hann skoraði markið sem réði úrslitum og var óheppinn að skora ekki fleiri.
2. Bergvin Fannar Helgason (ÍR)
Skapaði usla í fremstu víglínu en var frábær varnarlega líka og sérstaklega undir lokin. Barðist gríðarlega fyrir liðið og setti tóninn.
Atvikið
Það er auðvitað bara markið sem Óðinn skorar eftir hornspyrnu. Föstu leikatriðin eru sterk hjá ÍR-ingum og þeir nýttu þarna hornspyrnu vel. Maður fékk það á tilfinninguna eftir markið að það yrði erfitt fyrir Leikni að komast aftur inn í leikinn, þó þeir hafi fengið sín færi.
Hvað þýða úrslitin?
ÍR er á toppnum! Ég held að það hafi ekki margir giskað á það fyrir mót að ÍR yrði á toppnum á þessum tímapunkti. Þeir misstu marga af lykilmönnum sínum í Bestu deildina eftir síðasta tímabil en þeir hafa búið til sterkt lið með sterk einkenni. ÍR er á mjög góðum stað og stuðningsmenn geta leyft sér að dreyma. Eftir tvo sigurleiki í röð kom tap hjá Leikni í kvöld en það eru enn fullt af möguleikum fyrir þá enda nóg eftir.
Vondur dagur
Dagur Ingi Hammer Gunnarsson átti erfiðan dag á skrifstofunni. Komst lítið í takt við leikinn og klúðraði frábæru færi í seinni hálfleiknum. Axel Freyr var ágætur í fyrri hálfleik en var eiginlega ósýnilegur í þeim seinni þar sem Leiknir þurfti á meira á honum að halda.
Dómarinn - 6
Arnar dæmdi leikinn ágætlega. Lítil atriði hér og þar sem hægt er að setja athugasemdir við, en bara nokkuð vel dæmt held ég.



