SKÝRSLAN: HK slátraði mölbrotnum Fjölnismönnum
Hvað réði úrslitum?
HK byrjaði leikinn vel og sóttu án þess þó að skapa sér einhver dauðafæri. HK komst yfir þegar rúmart tuttugu mínútur voru liðnar og svöruðu því með marki strax í kjölfarið og þá var stðan orðin rosalega brött fyrir mölbrotna Fjölnismenn. Síðari hálfleikurinn var í rauninni í eign HK og HK skoraði þriðja markið alveg undir lokin en á undan því fékk liðið heldur betur færi og hefði sigurinn geta verið stærri.
Bestu leikmenn
1. Brynjar Snær Pálsson (HK)
Brynjar Snær var rosalega líflegur í kvöld og vr að koma sér í færi og skapa færi fyrir liðsfélaganna og þá sérstaklega í síðari hálfleik. Brynjar skoraði og lagði upp í kvöld.
2. Dagur Orri Garðarsson (HK)
Dagur Ingi var sömuleiðis mjög flottur í sóknarlínu HK í kvöld. Hljóp mikið, kom liðsféögum sínum í færi og skoraði sjálfur eitt.
Atvikið
Þessi tveggja mínútna kafli í fyrri hálfleik - HK komst yfir eftir mark frá Brynjari Snæ. Fjölnir tók miðju, HK vann boltann og Dagur Orri fékk boltann við teig Fjölnis og skoraði.
Hvað þýða úrslitin?
HK er komið upp í annað sæti deildarinnar og er liðið fjórum stigum á eftir toppliði ÍR. Fjölnir er áfram á botni deildarinnar án sigurs þegar átta umferðir eru búnar.
Vondur dagur
Fjölnir... Liðið er án sigurs og það sást í kvöld, alveg mölbrotið lið.
Dómarinn - 7
Vel dæmt hjá teyminu í kvöld.



