Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
Í BEINNI
Besta-deild karla
Víkingur R.
LL 3
2
KR
Víkingur R.
3
2
KR
Helgi Guðjónsson '12 , víti 1-0
1-1 Jóhannes Kristinn Bjarnason '30 , víti
Karl Friðleifur Gunnarsson '43 2-1
2-2 Matthias Præst '45
Gunnar Vatnhamar '49 3-2
16.06.2025  -  19:15
Víkingsvöllur
Besta-deild karla
Dómari: Jóhann Ingi Jónsson
Byrjunarlið:
1. Ingvar Jónsson (m)
4. Oliver Ekroth (f)
6. Gunnar Vatnhamar
8. Viktor Örlygur Andrason ('59)
9. Helgi Guðjónsson
11. Daníel Hafsteinsson
15. Róbert Orri Þorkelsson
22. Karl Friðleifur Gunnarsson ('46)
25. Valdimar Þór Ingimundarson ('71)
27. Matthías Vilhjálmsson ('71)
32. Gylfi Þór Sigurðsson
- Meðalaldur 29 ár

Varamenn:
80. Pálmi Rafn Arinbjörnsson (m)
2. Sveinn Gísli Þorkelsson
7. Erlingur Agnarsson ('71)
12. Ali Basem Almosawe ('83)
17. Atli Þór Jónasson
23. Nikolaj Hansen ('71)
24. Davíð Örn Atlason ('46)
34. Ívar Björgvinsson
77. Stígur Diljan Þórðarson ('59) ('83)
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Sölvi Ottesen (Þ)
Kári Sveinsson
Viktor Bjarki Arnarsson
Þórir Ingvarsson
Hajrudin Cardaklija
Rúnar Pálmarsson
Aron Baldvin Þórðarson

Gul spjöld:
Karl Friðleifur Gunnarsson ('28)
Róbert Orri Þorkelsson ('55)
Oliver Ekroth ('65)
Stígur Diljan Þórðarson ('68)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
Víkingar komnir á toppinn! Jóhann Ingi flautar til leiksloka, Víkingur fer með sigur af hólmi og koma sér á topp deildarinnar. 3-2 lokatölur í þessum stórskemmtilega leik.
92. mín
Víkingar fá aukaspyrnu á milli vítateigs og hliðarlínu.
91. mín
KR-ingar fá hornspyrnu, en ekkert kemur úr henni.
90. mín
Fjórum mínútum bætt við Fáum við jöfnunarmark?
88. mín
Inn:Atli Hrafn Andrason (KR) Út:Atli Sigurjónsson (KR)
88. mín Gult spjald: Aron Sigurðarson (KR)
Samstuð við Gylfa og fær að líta gula spjaldið, Aron seinni í boltann.
83. mín
Daníel Hafsteinsson liggur nú niðri, Víkingar þó búnir með allar skiptingar. Daníel getur haldið leik áfram.
83. mín
Inn:Ali Basem Almosawe (Víkingur R.) Út:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Stígur neyðist til að fara af velli
82. mín
Stígur Diljan liggur niðri og þarfnast aðhlynningar, 10 Víkingar á vellinum þessa stundina.
79. mín
KR fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu en Víkingar skalla frá.
75. mín
RÉTT YFIR! Atli Sigurjóns sker boltann út í teiginn á Eið Gauta sem setur boltann rétt yfir mark Víkings. Frábær sókn KR-inga!
73. mín
Illa farið með frábæra stöðu! Erlingur Agnars sleppur í gegn og þrír Víkingar keyra í átt að marki. Erlingur sendir boltann fyrir markið en Ástbjörn Þórðar bjargar á síðustu stundu.
73. mín
Inn:Guðmundur Andri Tryggvason (KR) Út:Matthias Præst (KR)
72. mín
Daníel Hafsteins reynir skot frá miðju en boltinn yfir mark gestanna.
71. mín
Inn:Erlingur Agnarsson (Víkingur R.) Út:Valdimar Þór Ingimundarson (Víkingur R.)
71. mín
Inn:Nikolaj Hansen (Víkingur R.) Út:Matthías Vilhjálmsson (Víkingur R.)
71. mín Gult spjald: Matthias Præst (KR)
70. mín
Gylfi setur hann í stöngina! Gylfi lætur vaða með vinstri fyrir utan teig og boltinn í utanverða stöngina!
68. mín Gult spjald: Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.)
Stígur Diljan flaggaður rangstæður og sparkar boltanum í burtu. Jóhann Ingi finnst það ekki sniðugt og gefur Stígi gult.
65. mín Gult spjald: Oliver Ekroth (Víkingur R.)
Ekroth fer ansi harkalega í Ástbjörn og fær verðskuldað gult spjald.
60. mín
59. mín
Inn:Stígur Diljan Þórðarson (Víkingur R.) Út:Viktor Örlygur Andrason (Víkingur R.)
56. mín
Aron Sig tekur spyrnuna en boltinn framhjá marki Víkinga.
55. mín Gult spjald: Róbert Orri Þorkelsson (Víkingur R.)
Róbert Orri brýtur á Præst og fær að líta gula spjaldið, KR-ingar fá aukaspyrnu rétt fyrir utan D-bogann.
54. mín
Hafliði með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
52. mín
Góð sókn KR-inga, Atli Sigurjóns fær boltann í góðri stöðu en marktilraun hans fer hátt yfir mark Víkinga.
49. mín MARK!
Gunnar Vatnhamar (Víkingur R.)
Stoðsending: Gylfi Þór Sigurðsson
VATNHAMARINN STANGAR HANN INN! Gylfi tekur hornspyrnu beint á kollinn á Gunnari Vatnhamar sem skallar boltann inn af stuttu færi.
Víkingar komnir yfir í þriðja sinn!
48. mín
Sláin! Oliver Ekroth með fastann skalla í þverslánna eftir frábæra fyrirgjöf Gylfa. Víkingar banka á hurðina hér í upphafi síðari hálfleiks.
47. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, Matti Villa skallar að marki en Hjalti kemur boltanum frá.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað Gestirnir byrja með boltann.
46. mín
Inn:Davíð Örn Atlason (Víkingur R.) Út:Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Sá umdeildi tekinn af velli
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
45. mín
Innsýn hjá Bö
45. mín
Menn missáttir
45. mín
Hálfleikur
Þvílík skemmtun Jóhann Ingi flautar til hálfleiks, rosalegur fyrri hálfleikur sem við höfum fengið hér í Víkinni.
45. mín MARK!
Matthias Præst (KR)
Stoðsending: Jóhannes Kristinn Bjarnason
ÞETTA ER ÞVÆLA! Jóhann Kristinn keyrir frábærlega upp völlinn og rennir boltanum í gegn á Præst sem klárar fagmannlega.

Þvílíkur leikur hérna á Víkingsvelli.
43. mín MARK!
Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
Stoðsending: Matthías Vilhjálmsson
AUÐVITAÐ SKORAR HANN! KR-ingar missa boltann á hættulegum stað, Matthías Vilhjálmsson þræðir Karl Friðleif í gegn sem klárar af miklu öryggi!

Karl Friðleifur sem að margra mati (og mínu) á að hafa verið rekinn af velli skorar auðvitað.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

41. mín
Karl Friðleifur brýtur á Aroni Sig og KR fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu. Karl verður að fara varlega þar sem hann er á gulu spjaldi.
39. mín
KR ætlaði að spila í öðrum treyjum KR ætlaði að spila í fjólubláu varatreyjunum sínum en fékk það ekki þar sem treyjur liðanna voru taldar of líkar og það þurfti að bruna eftir hvítu treyjunum.

Það vekur athygli að Gabríel Hrannar Eyjólfsson leikur í treyju númer 19 en er venjulega í treyju númer 21.



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
33. mín Gult spjald: Ástbjörn Þórðarson (KR)
Ástbjörn fer í bókina góðu fyrir mótmæli.
33. mín Gult spjald: Eiður Gauti Sæbjörnsson (KR)
Atli Sigurjóns í frábæru færi! Atli kominn í gegn, lætur vaða en boltinn í varnarmann Víkinga. Þá tekur Eiður Gauti á því að fara harkalega í Vatnhamar og dæmt brot.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
30. mín Mark úr víti!
Jóhannes Kristinn Bjarnason (KR)
JÓHANNES JAFNAR! Sendir Ingvar í rangt horn og boltinn út við stöng.
28. mín Gult spjald: Karl Friðleifur Gunnarsson (Víkingur R.)
VER Á LÍNU - KR FÆR VÍTI! Gabríel Hrannar með skot á leiðinni í bláhornið en Karl Friðleifur ver boltann með höndum á línu. Þetta er bara rautt!

Ingvar er fyrir aftan Karl en átti aldrei möguleika að verja skotið.
21. mín
KR-ingar leika sér að eldinum! Jóhannes Kristinn skallar boltann til baka en Valdimar Þór kemst á milli og sleppur í gegn. Skottilraun Valdimars þó hræðileg og Halldór Snær í engum vandræðum með að handsama boltann.
18. mín
KR fær hornspyrnu, taka það stutt. Atli Sigurjóns gefur fyrir á Finn Tómas sem skallar boltann framhjá marki heimamanna.
15. mín
KR-ingar pressa Víkinga eins og óðir menn.
12. mín Mark úr víti!
Helgi Guðjónsson (Víkingur R.)
HELGI ÖRUGGUR! Bíður aðeins og sendir síðan Halldór Snæ í rangt horn.
11. mín
VÍKINGAR FÁ VÍTI! Valdimar Þór sleppur aleinn i gegn, fer framhjá Halldóri Snæ sem fer í Valdimar og Jóhann bendir á punktinn.

Háa varnarlína KR klikkar þarna, Valdimar aleinn í gegn.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

11. mín
Stórhætta Gylfi með hættulega fyrirgjöf sem fer af varnarmanni og Halldór Snær ver yfir markið!
Þarna munaði litlu.
10. mín
Víkingar í góðu færi! Karl Friðleifur fær boltann við vítateig en er of lengi að athafna sig, tekur skotið sem fer í varnarmann og í hornspyrnu.
8. mín
Uppstilling liðanna Ingvar
Vatnhamar - Ekroth - Róbert Orri
Karl Friðleifur - Daníel H. - Gylfi - Helgi
Valdimar - Matthías - Viktor Örlygur

Aron Sig (f)- Eiður Gauti - Atli Sigurjónsson
Præst
Akexander Helgi - Jóhannes Kristinn -
Gabríel Hrannar - Finnur - Hjalti - Ástbjörn
Halldór Snær (m)
4. mín
Aron Sig með frábæra sendingu í gegn en Præst nær ekki til knattarins, en úr verður hornspyrna.
1. mín
Stöngin! Jóhannes Kristinn smellir boltanum í stöngina beint úr hornspyrnu KR.
1. mín
Gestirnir fá hornspyrnu eftir 30 sekúndur, alvöru byrjun.
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Hafliði er með myndavélina á lofti
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Styttist Liðin trítla inn á völlinn, vel mætt í stúkuna, þetta stefnir í veislu sýnist mér.
Fyrir leik
Hæ Hó jibbí jey og jíbbí jajey, það er epic early win á KR - stuðull 4,00. Það virkar þannig að ef KR kemst einu marki yfir, einhverntíman í leiknum, þá fá menn það greitt út, óháð því hvernig leikurinn endar. Þetta er ekki grín.
Mate Dalmay
Fyrir leik
Byrjunarliðstíðindi - Fjórar breytingar hjá heimamönnum Víkingar gera fjórar breytingar frá síðasta leik. Oliver Ekroth kemur inn og tekur við fyrirliðabandinu, auk þess sem Karl Friðleifur, Matthías Vilhjálmsson og Viktor Örlygur byrja.

KR gerir tvær breytingar. Alexander Helgi er mættur aftur eftir meiðsli og Atli Sigurjónsson byrjar eftir góða innkomu gegn Vestra. Guðmundur Andri fer á bekkinn og Aron Þórður er í leikbanni.


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Nýr maður í teymi Víkings Víkingur tilkynnti fyrir rúmri viku ráðningu á Brynjari Birni Gunnarssyni í þjálfarateymi meistaraflokks karla. Hann var tilkynntur sem meðþjálfari Sölva Geirs Ottesen fyrir komandi leiki í Sambandsdeildinni.

„Fyrst og fremst erum við að ráða Brynjar Björn út af því hversu öflugur þjálfari hann er, og hann getur nýst okkur mjög vel í deildinni líka. Það er skýr krafa af hálfu UEFA að í Evrópukeppnum þurfa lið að vera með aðalþjálfara sem eru með gilda UEFA Pro þjálfaragráðu. Það er bara staðan," segir Kári Árnason yfirmaður fótboltamála hjá Víkingi.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Óskar lætur sína menn hundelta Víkinga Óskar Hrafn sat fyrir svörum um leik kvöldsins við fótbolti.net í gær. Þá segist hann uppleggið vera að pressa Víkinga stíft.

,,Víkingur er auðvitað með gríðarlega öflugt lið, en við erum svo sem ekkert að fara breyta okkur þannig lagað. Víkingur mun ekki fara jafn langt niður á völlinn og Vestri varnarlega, ég held það sé alveg ljóst."

,,Víkingar eru góðir að halda boltanum þegar þeir geta fengið að stilla sér upp. Grunnstefið varnarlega er að fara agressíft á þá og hundelta þá út um allan völl."

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Fyrir leik
Tveir í banni - KR endurheimtir leikmenn úr meiðslum Þeir Tarik Ibrahimagic og Aron Þórður Albertsson verða ekki með í kvöld en þeir eru báðir í leikbanni vegna uppsafnaðra gulra spjalda.

Þá er möguleiki að Hrafn Tómasson, sem sleit krossband í fyrstu umferð Íslandsmótsins 2024, snúi aftur á völlinn í kvöld eftir rúmlega árs fjarveru.

Alexander Rafn, Alexander Helgi og Kristófer Orri eru allir að snúa til baka eftir meiðsli og gætu komið á bekk KR í kvöld.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Fyrir leik
Tölfræðitaflan Þó að það sé að lokum stöðutaflan sem ræður ferðinni, er alltaf gaman að rýna í hinar ýmsu tölfræðitöflur. KR-ingar koma þar ansi vel út og ef tölfræðin réði væru þeir í toppbaráttu.

xPoints - Áætlaður stigafjöldi

Mælir hversu mörg stig lið hefði átt að fá út frá xG beggja liða í leik.

KR-ingar- stökkva upp um sex sæti og bæta við sig tæpum fjórum stigum samkvæmt áætlaðum stigafjölda.
Víkingur R.- heldur stöðu sinni í 2. sæti deildarinnar en þeir eru þó með eitt stig meira en áætlaður stigafjöldi gerir ráð fyrir.

Mynd: Wyscout skjáskot

xG - Áætluð mörk

KR og Víkingur eru liðin með hæstu xG tölfræðina í deildinni, því má búast við nóg af færum í kvöld.

KR- hefur skorað meira en gert er ráð fyrir, alls hafa þeir skorað 28 mörk í 10 leikjum.
Víkingur R.- þurfa að nýta færin betur, en þeir hafa skorað 19 mörk en eru með xG upp á 21.7.

Mynd: Wyscout skjáskot

Posession - Með bolta

KR- er það lið sem heldur langmest í boltann í allri deildinni, um 65% í hverjum leik.
Víkingur R.- heldur í boltann að meðaltali 55% í hverjum leik.

Mynd: Wyscout skjáskot
Fyrir leik
KR-ingar sneru taflinu við
Fyrir leik
Víkingar töpuðu gegn erkifjendunum
Fyrir leik
Deildin þétt Sæti - Lið - Leikir - Sigrar - Jafntefli - Töp - Stig

1 Breiðablik - 11 - 7 - 1 - 3 - 22
2 Víkingur R. - 10 - 6 - 2 - 2 - 20
3 Vestri - 11 - 6 - 1 - 4 - 19
4 Valur - 11 - 5 - 3 - 3 - 18
5 Stjarnan - 11 - 5 - 2 - 4 - 17
6 Fram - 11 - 5 - 0 - 6 - 15
--------------------------------------------------
7 Afturelding - 11 - 4 - 2 - 5 - 14
8 ÍBV - 11 - 4 - 2 - 5 - 14
9 KR - 10 - 3 - 4 - 3 - 13
10 KA - 11 - 3 - 3 - 5 - 12
--------------------------------------------------
11 FH - 11 - 3 2 6 11
12 ÍA - 11 - 3 0 8 9
Fyrir leik
Stórleikur! Heilir og sælir lesendur góðir, verið velkomin í þráðbeina textalýsingu frá Víkingsvelli. Hér í kvöld tekur Víkingur R. á móti KR í lokaleik 11. umferðar Bestu-deildar karla.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Byrjunarlið:
12. Halldór Snær Georgsson (m)
4. Jóhannes Kristinn Bjarnason
6. Alexander Helgi Sigurðarson
7. Finnur Tómas Pálmason
9. Eiður Gauti Sæbjörnsson
11. Aron Sigurðarson (f)
16. Matthias Præst ('73)
21. Gabríel Hrannar Eyjólfsson
22. Ástbjörn Þórðarson
23. Atli Sigurjónsson ('88)
28. Hjalti Sigurðsson
- Meðalaldur 26 ár

Varamenn:
1. Sigurpáll Sören Ingólfsson (m)
10. Guðmundur Andri Tryggvason ('73)
14. Alexander Rafn Pálmason
15. Gyrðir Hrafn Guðbrandsson
18. Óliver Dagur Thorlacius
20. Atli Hrafn Andrason ('88)
24. Kristófer Orri Pétursson
26. Hrafn Tómasson
27. Róbert Elís Hlynsson
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Óskar Hrafn Þorvaldsson (Þ)
Jamie Paul Brassington
Guðjón Örn Ingólfsson
Jón Birgir Kristjánsson
Guðmundur Óskar Pálsson
Björn Valdimarsson
Lúðvík Júlíus Jónsson

Gul spjöld:
Ástbjörn Þórðarson ('33)
Eiður Gauti Sæbjörnsson ('33)
Matthias Præst ('71)
Aron Sigurðarson ('88)

Rauð spjöld: