Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 09:20
Elvar Geir Magnússon
Real vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann
Powerade
Ibrahima Konate.
Ibrahima Konate.
Mynd: EPA
Alejandro Garnacho.
Alejandro Garnacho.
Mynd: EPA
Félagaskiptaglugginn er opinn á ný og verður opinn til 1. september. Það verður því nóg um að vera í slúðurheimum næstu vikur og mánuði.

Real Madrid vonast til að fá varnarmanninn Ibrahima Konate (26) frá Liverpool á frjálsri sölu næsta sumar, þegar samningur Frakkans rennur út. (Marca)

Arsenal er að vinna í að fá sænska framherjann Viktor Gyökeres (27) frá Sporting Lissabon og slóvenska framherjann Benjamin Sesko (22) frá RB Leipzig. Félagið mun þó ekki kaupa þá báða. (Mirror)

Arsenal telur að verðmiðinn á Gyökeres sé of hár og mun því einbeita sér að því að reyna að fá Sesko eða enska framherjann Ollie Watkins (29) frá Aston Villa. (Record)

Rasmus Höjlund (22), framherji Manchester United, er efstur á óskalistanum hjá Inter á Ítalíu. (Gazzetta dello Sport)

Manchester United hefur ákveðið að halda hollenska framherjanum Joshua Zirkzee (24). (Corriere dello Sport)

Manchester United setti sig í samband við umboðsmenn franska framherjans Hugo Ekitike (22) sem spilar með Eintracht Frankfurt. (Bild)

Chelsea, Aston Villa og Tottenham eru öll með augastað á vængmanninum Alejandro Garnacho (20) hjá Manchester United eftir að Argentínumanninum var sagt að finna sér nýtt félag. (Mail)

Al-Hilal í Sádi-Arabíu hefur komið með endurbætt tilboð til framherjans Victor Osimhen (26) sem er á óskalistanum hjá Manchester United, og lagt fram samning upp á 42,6 milljónir punda í árslaun. (Goal)

AC Milan hefur hafið viðræður við Arsenal um möguleg kaup á úkraínska varnarmanninum Oleksandr Zinchenko (28). (Corriere dello Sport)

Margar fyrirspurnir hafa borist frá félögum í ensku úrvalsdeildinni og ítölsku A-deildinni um hvort tékkneski framherjinn Patrik Schick (29) ára, hjá Bayer Leverkusen, sé fáanlegur. (Sky Þýskalandi)

Paris St-Germain hefur komist að munnlegu samkomulagi við varnarmanninn Illia Zabarnyi (22) hjá Bournemouth og er í viðræðum um kaupverð. (Fabrizio Romano)

Galatasaray hefur lagt fram tilboð í Marc-Andre ter Stegen (33), markvörð Barcelona. (Sport)

Portúgalska félagið Porto vill kaupa enska vængmanninn Tyler Dibling (19) frá Southampton. (Record)
Athugasemdir