Real Madrid vill Konate - Arsenal ætlar að fá sóknarmann - Höjlund á óskalista Inter
   mán 16. júní 2025 19:45
Jóhann Þór Hólmgrímsson
KR ætlaði að spila í öðrum treyjum
Gabríel Hrannar í leiknum í dag.
Gabríel Hrannar í leiknum í dag.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Víkingur og KR eigast við í Víkinni í 11. umferð Bestu deildarinnar þessa stundina.

Það vekur athygli að Gabríel Hrannar Eyjólfsson leikur í treyju númer 19 en er venjulega í treyju númer 21.

Lestu um leikinn: Víkingur R. 3 -  2 KR

KR ætlaði að spila í fjólubláu varatreyjunum sínum en fékk það ekki þar sem treyjur liðanna voru taldar of líkar og það þurfti að bruna eftir hvítu treyjunum.

Víkingur tók forystuna, Helgi Guðjónsson skoraði fyrsta markið úr vítaspyrnu eftir rúmlega tíu mínútna leik. Það var svo áðurnefndur Gabríel sem átti skot sem Karl Friðleifur Gunnarsson varði með höndinni og úr varð vítaspyrna sem Jóhannes Kristinn Bjarnason jafnaði úr.
Athugasemdir
banner