Joao Pedro, Madueke, Nunez, Guehi, Mbeumo, Gyökerez, Wirtz, Sesko og fleiri góðir í slúðri dagsins
Lengjudeild karla
Leiknir R.
LL 1
1
Njarðvík
Lengjudeild karla
Fylkir
LL 1
2
HK
Fylkir
1
2
HK
Eyþór Aron Wöhler '29 1-0
1-1 Dagur Orri Garðarsson '45
1-2 Dagur Orri Garðarsson '65
Haukur Leifur Eiríksson '67
20.06.2025  -  19:15
tekk VÖLLURINN
Lengjudeild karla
Dómari: Helgi Mikael Jónasson
Byrjunarlið:
1. Ólafur Kristófer Helgason (m)
2. Ásgeir Eyþórsson (f)
5. Orri Sveinn Segatta
7. Tumi Fannar Gunnarsson ('37)
9. Eyþór Aron Wöhler ('77)
14. Þóroddur Víkingsson
17. Birkir Eyþórsson
19. Arnar Númi Gíslason ('71)
20. Theodór Ingi Óskarsson
70. Guðmundur Tyrfingsson ('46)
77. Bjarki Steinsen Arnarsson ('77)
- Meðalaldur 23 ár

Varamenn:
12. Hilmar Þór Kjærnested Helgason (m)
3. Arnór Breki Ásþórsson ('46)
6. Þorkell Víkingsson
11. Pablo Aguilera Simon ('71)
34. Guðmar Gauti Sævarsson ('37)
72. Helber Josua Catano Catano ('77)
88. Emil Ásmundsson ('77)
- Meðalaldur 23 ár

Liðsstjórn:
Árni Freyr Guðnason (Þ)
Kristófer Sigurgeirsson (Þ)
Daði Ólafsson
Björn Metúsalem Aðalsteinsson
Arnór Gauti Brynjólfsson
Ágúst Aron Gunnarsson
Ólafur Engilbert Árnason

Gul spjöld:
Theodór Ingi Óskarsson ('52)
Emil Ásmundsson ('91)

Rauð spjöld:
Leik lokið!
HK-ingar hirða stigin þrjú! Það er HK sem fer með sigur af hólmi hér í kvöld. Fylkismenn mun meira með boltann en HK-ingar refsuðu.
96. mín
HK-ingar virðast vera að sigla stigunum þremur heim í efri byggðir.
94. mín
Fylkir fær aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, skrýtin útfærsla og þeir tapa boltanum.
92. mín
516 manns á vellinum.
91. mín Gult spjald: Emil Ásmundsson (Fylkir)
Fylkismenn komnir í afbragðsfæri en Helgi Mikael dæmir brot á Fylki, við litla hrifningu Emils sem mótmælir.
90. mín
Fylkismenn reyna og reyna Birkir Eyþórs með skalla framhjá marki HK.
88. mín Gult spjald: Brynjar Snær Pálsson (HK)
87. mín
Pablo Simon með viðstöðulaust skot eftir hornspyrnu Fylkis, en boltinn í Tuma Þorvars.
85. mín
Theodór tekur skot á mark HK en Ólafur ver vel.
77. mín
Inn:Helber Josua Catano Catano (Fylkir) Út:Bjarki Steinsen Arnarsson (Fylkir)
77. mín
Inn:Aron Kristófer Lárusson (HK) Út:Dagur Ingi Axelsson (HK)
77. mín
Inn:Karl Ágúst Karlsson (HK) Út:Dagur Orri Garðarsson (HK)
77. mín
Inn:Emil Ásmundsson (Fylkir) Út:Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
74. mín
Fylkir ógna Skalli á mark gestanna en Ólafur Örn ver vel í marki HK.
71. mín
Inn:Pablo Aguilera Simon (Fylkir) Út:Arnar Númi Gíslason (Fylkir)
70. mín
Tumi í góðu færi HK-ingar fara í skyndisókn, boltinn berst á öskufljótann Tuma sem keyrir að marki en skot hans geigar.
67. mín Rautt spjald: Haukur Leifur Eiríksson (HK)
HAUKUR REKINN AF VELLI! Haukur fer í harkalega tæklingu með sólann á lofti, Helgi Mikael hikar ekki og rífur upp rauða spjaldið. Persónulega finnst mér þetta fullgróft, en hvað veit ég.
65. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
Stoðsending: Jóhann Þór Arnarsson
DAGUR KEMUR HK YFIR! Jóhann Þór þræðir Dag í gegn og sá síðarnefndi lyftir boltanum snyrtilega yfir Ólaf Kristófer og í netið!

Stuðningsmenn HK syngja ,,Þessi fallegi Dagur.”
Algjörlega gegn gangi leiksins.
63. mín
Inn:Birnir Breki Burknason (HK) Út:Kristján Snær Frostason (HK)
63. mín
Inn:Atli Arnarson (HK) Út:Eiður Atli Rúnarsson (HK)
58. mín
Fylkir skorar en boltinn útaf! Fylkismenn koma boltanum í netið en boltinn greinilega farinn allur af vellinum í aðdraganda marksins. Sýndist þetta vera réttur dómur.
57. mín
Arnar Númi með skot framhjá marki gestanna, Fylkir sterkari þessa stundina.
55. mín
Arnar Númi snýr vel á varnarmann HK og ætlar að lyfta boltanum yfir Ólaf, markvörð HK, en boltinn yfir markið.
52. mín Gult spjald: Theodór Ingi Óskarsson (Fylkir)
Fer í bókina góðu fyrir að stöðva skyndisókn.
50. mín
HK-ingar umbreytast í brasilíska landsliðið og spila frábærlega á milli sín, kemur þó ekkert úr sókn gestanna og Ólafur Kristófer markvörður Fylkis endar með boltann.
46. mín
Seinni hálfleikur farinn af stað HK-ingar sparka boltanum beint útaf eftir upphafsspyrnuna, ný taktík.
46. mín
Inn:Arnór Breki Ásþórsson (Fylkir) Út:Guðmundur Tyrfingsson (Fylkir)
Ein breyting í hálfleik.
45. mín
Hálfleikur
Flautar strax til hálfleiks +8

Helgi Mikael flautar til hálfleiks eftir mark HK. Fyllkir búið að vera sterkara liðið en allt jafnt þegar liðin ganga til búningsklefa!
45. mín MARK!
Dagur Orri Garðarsson (HK)
Stoðsending: Ívar Örn Jónsson
Á BESTA TÍMA! +8

Dagur Orri skallar boltann inn eftir hornspyrnu.

HK-ingar að jafna á besta tíma, rétt fyrir hálfleik!


45. mín
+7

Gestirnir fá hornspyrnu.
45. mín
Rangstöðumark! +4

Theódór Ingi setur boltann í netið eftir laglega skyndisókn heimamanna, en flaggið komið réttilega á loft.
45. mín
Heimamenn fá hornspyrnu, en gestirnir skalla frá.
42. mín
Theódór Ingi með skot langt framhjá marki HK.
38. mín Gult spjald: Eiður Atli Rúnarsson (HK)
Eiður fer harkalega í tæklingu og uppsker gult spjald.
Er kominn tími á pizzu? Nú er stutt í hálfleik og fullkominn tími til að panta pizzu til að njóta með seinni hálfleiknum! Kíktu á Dominos.is
37. mín
Inn:Guðmar Gauti Sævarsson (Fylkir) Út:Tumi Fannar Gunnarsson (Fylkir)
29. mín MARK!
Eyþór Aron Wöhler (Fylkir)
WÖHLERINN SKORAR Eyþór sker inn á hægri fótinn og krullar boltann í stöngina og inn!

Frábært mark en þetta var fyrsta mark Eyþórs í Lengjudeildinni.

25. mín
Inn: () Út:Arnar Freyr Ólafsson ()
Arnar neyðist til að fara af velli óskum honum skjóts bata. Ólafur Örn kemur inn.
24. mín
Arnar Freyr markvörður HK liggur niðri og þarfnast aðhlynningar. Þetta er fyrsti leikur Arnars eftir að hann tognaði í upphafi mánaðar.
20. mín
Gestirnir fá hornspyrnu, eftir nokkurn darraðadans koma Fylkismenn boltanum frá.
17. mín
Fylkismenn sterkari aðilinn það sem af er leiks.
12. mín
Eyþór Wöhler fer harkalega í Kristján Snæ en sleppur með tiltal.
9. mín
Guðmundur Tyrfings með kraftlítið skot í átt að marki HK-inga sem Arnar Freyr handsamar auðveldlega.
8. mín
Tumi getur haldið leik áfram, góðar fréttir fyrir HK-inga.
6. mín
Tumi Þorvars liggur niðri og kveinkar sér, leikurinn stöðvaður og Tumi hlýtur aðhlynningar.
4. mín
Fylkismenn fá aukaspyrnu í fyrirgjafastöðu, Ívar Örn varnarmaður HK skallar frá.
3. mín
Leikurinn er í opinni dagskrà á Livey


Mate Dalmay
1. mín
Leikur hafinn
Þetta er farið af stað! Heimamenn byrja með boltann.
Fyrir leik
Liðin trítla inn á völlinn við miklar undirtektir áhorfenda, styttist í þetta!
Fyrir leik
Arnar Freyr snýr aftur Arnar Freyr Ólafsson markvörður HK snýr aftur í byrjunarlið gestanna. Arnar tognaði í leik gegn Selfossi fyrir rúmum tveimur vikum en er klár í dag.
Fyrir leik
Spámaður umferðarinnar Elmar Atli Garðarsson, fyrirliði Vestra sem komst í undanúrslit Mjólkurbikarsins á dögunum er spámaður okkar fyrir komandi umferð í Lengjudeildinni, sem hófst í gær.

Fylkir 2 - 1 HK (19:15 í kvöld)
Trúi ekki öðru en Fylkir rífi sig í gang eftir slaka byrjun á mótinu. Fullkominn leikur fyrir þá til að snúa þessu við. Dramatík og sigurmark í uppótartíma.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Dómarinn Helgi Mikael Jónasson sér um flauta leikinn hér í kvöld. Honum til aðstoðar verða þeir Bryngeir Valdimarsson og Nour Natan Ninir

Eftirlitsmaður KSÍ er Jón Sigurjónsson

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Möst win leikur fyrir Fylki? Fylkir situr fyrir leik kvöldsins í níunda sæti deildarinnar með sjö stig. Liðið hefur aðeins unnið einn leik á timabilinu, gert fjögur jafntefli og tapað þremur. Liðið er aðeins stigi frá fallasæti. Fylkir mætti Grindavík í síðustu umferð og gerði liðið 1-1 jafntefli við Grindavík. Þóroddur Víkingsson skoraði mark Fylkismanna.

Fótbolti.net ræddi við Árna Frey þjálfara Fylkismanna eftir síðasta leik í Árbænum.

„Enn ein vonbrigðin að vinna ekki leik og þá sérstaklega hér á heimavelli. Við erum sjálfum okkur verstir"

Árni segir að liðið sé að slá heimsmet í meiðslum.

„Það gerist alltaf þegar að það gengur ekki vel. Þá fara menn kannski að ofhugsa hlutina. Við erum að skipta mikið á liðinu og rótera ekki kannski afþví að við viljum það endilega alltaf heldur eru margir meiddir og þannig er það hjá öllum liðum. Það var einhver sem kvartaði undan heimsmeti í meiðslum en ég held að við séum að bæta það heimsmet"

Árni Freyr hefur miklar áhyggjur af stöðunni en segist þó ekki geta haft áhyggjur af stöðu sinni hjá Fylki.

„Ég get ekki haft áhyggjur af einhverju sem ég hef enga stjórn á. Það er bara stjórnin sem ákveður það. Ég tel mig og teymið vera nægilega gott til þess að snúa þessu við og gera þetta vel en ég er ekkert að ljúga af þér að þetta hefur alveg komið inn í hausin á mér en við þurfum bara að halda áfram"


Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
HK pakkaði Fjölni saman í Kórnum HK situr fyrir leik kvölsins í þriðja sæti deildarinnar og er liðið með 14.stig, fjórum stigum á eftir toppliði ÍR. HK fékk Fjölni í heimsókn í síðustu umferð í leik sem endaði 3-0 fyrir HK og hefði mjög auðveldlega geta orðið stærri. Brynjar Snær Pálsson, Dagur Orri Garðarsson og Birnir Breki Burknason skoruðu mörk HK.

Hermann Hreiðarsson mætti í viðtal við Fótbolta.net eftir leikinn í Kórnum.

„Það er stutt síðan við spiluðum og fengum rosalegt högg í magann eftir góðan leik. Við svöruðum því, það sýnir oft úr hverju menn eru gerðir þegar það er búið að berja á sér. Þetta var rosalega góð liðsframmistaða," sagði Hemmi.

Hermann Hreiðarsson er ánægðu með leikmannahópinn sinn.

„Heilbrigð og öflug samkeppni. Við erum alltaf að skapa okkur og í dag small þetta hrikalega vel. Þeir áttu allir frábæran leik. Það er ekki bara það hversu öflugir þeir eru fram á við. Þeir eru duglegir, svakalegir iðnaðarmenn fremst á vellinum sem hlaupa úr sér lungun,"



Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Fyrir leik
Lengjudeildin hefur aldrei verið skemmtilegri Góðan og gleðilegan daginn kæru lesendur og verið hjartanlega velkomin með okkur í Árbæinn þar sem Fylkir og HK mætast í Lengjudeild karla.

Flautum til leiks klukkan 19:15.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Anton Freyr Jónsson
Byrjunarlið:
25. Arnar Freyr Ólafsson (m) ('25)
2. Kristján Snær Frostason ('63)
5. Þorsteinn Aron Antonsson
7. Dagur Ingi Axelsson ('77)
9. Jóhann Þór Arnarsson
11. Dagur Orri Garðarsson ('77)
14. Brynjar Snær Pálsson
15. Haukur Leifur Eiríksson
16. Eiður Atli Rúnarsson ('63)
21. Ívar Örn Jónsson
28. Tumi Þorvarsson
- Meðalaldur 24 ár

Varamenn:
1. Ólafur Örn Ásgeirsson (m)
4. Aron Kristófer Lárusson ('77)
10. Birnir Breki Burknason ('63)
18. Atli Arnarson ('63)
23. Rúrik Gunnarsson
29. Karl Ágúst Karlsson ('77)
33. Hákon Ingi Jónsson
- Meðalaldur 24 ár

Liðsstjórn:
Hermann Hreiðarsson (Þ)
Gunnþór Hermannsson
Arnþór Ari Atlason
Sandor Matus
Birkir Örn Arnarsson
Halldór Geir Heiðarsson
Guðbjartur Halldór Ólafsson

Gul spjöld:
Eiður Atli Rúnarsson ('38)
Brynjar Snær Pálsson ('88)

Rauð spjöld:
Haukur Leifur Eiríksson ('67)