Lengjudeild karla
Grindavík

19:15
0
0
0

Besta-deild karla
Afturelding

19:15
0
0
0

Lengjudeild karla
Þór

24'
0
0
0

Lengjudeild kvenna
HK

19:15
0
0
0

Þór
0
0
Þróttur R.

03.07.2025 - 18:00
Boginn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Boginn
Lengjudeild karla
Dómari: Sveinn Arnarsson
Byrjunarlið:
1. Aron Birkir Stefánsson (m)
5. Yann Emmanuel Affi
6. Ibrahima Balde
7. Orri Sigurjónsson
9. Rafael Victor
10. Aron Ingi Magnússon
11. Clement Bayiha
18. Sverrir Páll Ingason
19. Ragnar Óli Ragnarsson
24. Ýmir Már Geirsson
37. Sigfús Fannar Gunnarsson
- Meðalaldur 26 ár
Varamenn:
28. Franko Lalic (m)
2. Ásbjörn Líndal Arnarsson
4. Hermann Helgi Rúnarsson
8. Einar Freyr Halldórsson
16. Nökkvi Hjörvarsson
25. Pétur Orri Arnarson
27. Atli Þór Sindrason
- Meðalaldur 21 ár
Liðsstjórn:
Sigurður Heiðar Höskuldsson (Þ)
Arnar Geir Halldórsson
Sveinn Leó Bogason
Elín Rós Jónasdóttir
Gestur Örn Arason
Gul spjöld:
Rauð spjöld:
24. mín
Ragnar Óli kemst í boltann eftir hornspyrnu Arons Inga, en Þróttarar ná að koma boltanum aðeins í burtu og lifa þessa lotu af.
21. mín
Aron Snær fer klaufalega og seint í Orra sem fer í jörðina og Þór á aukaspyrnu á nokkuð hættulegum stað úti vinstra megin, fyrirgjafarstaða fyrir Aron Inga.
Ragnar Óli kemst í boltann á fjærstönginni og skallar boltann fyrir markið en gestirnir ná að hreinsa.
Ragnar Óli kemst í boltann á fjærstönginni og skallar boltann fyrir markið en gestirnir ná að hreinsa.
17. mín
Hörku sókn hjá heimamönnum
Rafael með fyrirgjöf eftir lipra takta hjá Balde, boltinn fer yfir Clement og boltinn berst á Sigfús sem er í þröngri stöðu og skot hans fer eiginlega beint aftur á Rafael.
Ýmir á svo flotta fyrirgjöf sem fer yfir Ladda og Baldur Hannes skallar aftur fyrir. Það er svo dæmd aukaspyrna á Þórsara eftir hornspyrnuna.
Þórsarar mun líklegri hér í byrjun!
Ýmir á svo flotta fyrirgjöf sem fer yfir Ladda og Baldur Hannes skallar aftur fyrir. Það er svo dæmd aukaspyrna á Þórsara eftir hornspyrnuna.
Þórsarar mun líklegri hér í byrjun!
15. mín
Orri vinnur boltann en fer aðeins í Eirík og Sveinn dæmir aukaspyrnu, þessi var í ódýrari kantinum. Lítil ánægja með þennan dóm.
12. mín
Fín spyrna frá Aroni Inga á fjærstöngina og Aron Snær þarf að hreinsa. Sverrir Páll sýnir svo mikla baráttu fyrir framan stuðningsmenn Þórs, vinnur innkast og þá er vel fagnað í stúkunni.
11. mín
Þórsarar fá fyrstu hornspyrnu leiksins, Ýmir með fyrirgjöf sem fer að mér sýnist í Eirík og aftur fyrir.
9. mín
Viktor Andri með skot fyrir utan teig sem fer í Ragnar Óla, held þetta hafi verið fyrsta tilraun gestanna.
9. mín
Fínt spil hjá Þórsurum sem endar með skoti fyrir utan teig frá Sverri Páli sem fer beint á Ladda í markinu.
7. mín
Þórhallur Ísak!
Þórhallur Ísak, eða Laddi eins og hann er kallaður, með mjög góða vörslu!
Aron Ingi með flottan sprett inni á vallarhelmingi Þróttar, þríhyrningsspil við Clement og Aron Ingi laumar boltanum inn fyrir á kantmanninn sem er einn gegn Ladda sem sér við honum!
Aron Ingi með flottan sprett inni á vallarhelmingi Þróttar, þríhyrningsspil við Clement og Aron Ingi laumar boltanum inn fyrir á kantmanninn sem er einn gegn Ladda sem sér við honum!
4. mín
Uppstilling Þróttar
Þórhallur
Eiríkur - Hlynur - Baldur - Viktor Steinars
Unnar Steinn - Kolbeinn - Brynjar
Viktor Andri - Liam Daði - Aron Snær
Eiríkur - Hlynur - Baldur - Viktor Steinars
Unnar Steinn - Kolbeinn - Brynjar
Viktor Andri - Liam Daði - Aron Snær
3. mín
Uppstilling Þórs
Aron Birkir
Sverrir - Ragnar - Affi - Ýmir
Orri - Aron Ingi
Clement - Balde - Sigfús
Rafael
Sverrir - Ragnar - Affi - Ýmir
Orri - Aron Ingi
Clement - Balde - Sigfús
Rafael
2. mín
Þróttarar ná að verjast. Þórsarar fara svo í aðra sókn og þá er Balde dæmdur rangstæður eftir fyrirgjöf frá Sverri.
1. mín
Þórsarar fá aukaspyrnu eftir 10 sekúndur, brotið á Ibrahima Balde. Aron Ingi tekur aukaspyrnu úti á vinstri kantinum.
Fyrir leik
Það verða læti
Um helgina er auðvitað N1 mótið á Akureyri og að sjálfsögðu Pollamót Þórs og Samskipa. Það er margmenni á Akureyri og þétt setinn bekkurinn í Boganum. Það má búast við talsverðum látum inni í Boga í kvöld.
Fyrir leik
Fjórða og fimmta sætið
Þór hefur unnið tvo leiki í röð og er í fjórða sæti deildarinnar með sautján stig, fimm stigum minna en topplið ÍR.
Þróttur hefur einungis unnið einn af síðustu fimm leikjum en er í 5. sæti deildarinnar með 15 stig.
Þór er með markatöluna 25:17 og Þróttur er með markatöluna 18:17.
Þróttur hefur einungis unnið einn af síðustu fimm leikjum en er í 5. sæti deildarinnar með 15 stig.
Þór er með markatöluna 25:17 og Þróttur er með markatöluna 18:17.
Fyrir leik
Byrjunarliðin: Tvær breytingar hjá Þór og ein hjá Þrótti
Siggi Höskulds, þjálfari Þórs, gerir tvær breytingar á byrjunarliði sínu frá 0-5 útisigrinum gegn Fjölni í síðustu viku. Vilhelm Ottó Biering Ottósson er meiddur og Atli Þór Sindrason tekur sér sæti á bekknum. Ýmir Már Geirssong og Sigfús Fannar Gunnarsson koma inn í liðið. Pétur Orri Arnarsson kemur inn á bekkinn í stað Peter Jones sem er ekki með í dag.
Venni, þjálfari Þróttar, gerir eina breytingu frá 2-2 jafnteflinu gegn HK. Benoný Haraldsson er ekki með í dag og Viktor Andri Hafþórsson kemur inn í liðið. Njörður Þórhallsson kemur aftur inn í hópinn.
Sigfús Fannar kemur aftur í lið Þórs eftir leikbann
Venni, þjálfari Þróttar, gerir eina breytingu frá 2-2 jafnteflinu gegn HK. Benoný Haraldsson er ekki með í dag og Viktor Andri Hafþórsson kemur inn í liðið. Njörður Þórhallsson kemur aftur inn í hópinn.

Fyrir leik
Þriðja liðið
Sveinn Arnarsson er með flautuna í dag. Honum til aðstoðar eru þeir Birkir Örn Pétursson og Ágúst Örn Víðisson. Sverrir Gunnar Pálmason er eftirlitsmaður KSÍ.
Sveinn

Fyrir leik
Tíðindi af Þrótti
Jakob Gunnar Sigurðsson mun í sumarglugganum (opnar 17. júlí) yfirgefa Þrótt og halda á láni til danska félagsins Lyngby. Lyngby fær hann á eins árs lánssamningi með kaupmöguleika. Húsvíkingurinn á því ekki marga leiki eftir með Þrótti, en hann er þar á láni frá KR.
Á móti mun KR lána Hrafn Tómasson til Þróttar. Krummi, eins og hann er oftast kallaður, er að snúa aftur á völlinn eftir að hafa slitið krossband í apríl í fyrra.
Á móti mun KR lána Hrafn Tómasson til Þróttar. Krummi, eins og hann er oftast kallaður, er að snúa aftur á völlinn eftir að hafa slitið krossband í apríl í fyrra.
Fyrir leik
Undirskriftir í Hamri
Á síðustu viku hafa Þórsarar greint frá því að þeir Ibrahima Balde, Aron Ingi Magnússon og Kristófer Kató Friðriksson væru allir búnir að skrifa undir samninga við félagið. Kató (2009) var að skrifa undir sinn fyrsta samning en hinir tveir voru að framlengja samninga sína.
Balde

Fyrir leik
Einn besti leikmaður Þróttar ekki með
Kári Kristjánsson, leikmaður Þróttar, er ekki með í dag en hann er að vinna sig til baka eftir að hafa fengið einkirningasótt. Hann hefur misst af undanförnum leikjum, en það ætti ekki að vera langt í hann.
Félög í Bestu deildinni vildu fá Kára í vetur og þá hafnaði Þróttur nýlega tilboði frá Östersund í sóknarsinnaða miðjumanninn.
Félög í Bestu deildinni vildu fá Kára í vetur og þá hafnaði Þróttur nýlega tilboði frá Östersund í sóknarsinnaða miðjumanninn.

Fyrir leik
Adam spáir sínum gamla aðstoðarþjálfara sigri
Adam Pálsson, leikmaður Vals í Bestu deildinni, er spámaður umferðarinnar. Hann spáir sigri Þórs í kvöld.
Þór 4 - 1 Þróttur (fimmtudagur, 18:00)
Þetta verður erfiður leikur fyrir Þróttarana mína því Siggi Höskulds er að búa til einhverja skepnu þarna fyrir norðan og þeir vinna þetta 4-1 og Siggi rífur sig úr að ofan eftir leik. En Villi Kaldal setur eitt sárabótamark með volley.

1. Þórhallur Ísak Guðmundsson (m)
2. Eiríkur Þorsteinsson Blöndal
5. Kolbeinn Nói Guðbergsson
8. Baldur Hannes Stefánsson
9. Viktor Andri Hafþórsson
20. Viktor Steinarsson
21. Brynjar Gautur Harðarson
25. Hlynur Þórhallsson
32. Aron Snær Ingason
33. Unnar Steinn Ingvarsson
75. Liam Daði Jeffs
- Meðalaldur 22 ár
Varamenn:
12. Benjamín Jónsson (m)
4. Njörður Þórhallsson
6. Emil Skúli Einarsson
7. Eiður Jack Erlingsson
10. Jakob Gunnar Sigurðsson
27. Sigfús Árni Guðmundsson
45. Vilhjálmur Kaldal Sigurðsson
- Meðalaldur 23 ár
Liðsstjórn:
Sigurvin Ólafsson (Þ)
Stefán Þórður Stefánsson
Hans Sævar Sævarsson
Alexander Máni Curtis
Bergsveinn Ás Hafliðason
Amir Mehica
Tiago J, Mota Da Pena Ferreira
Gul spjöld:
Rauð spjöld: